Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Fyrrverandi landlæknir: „Aukin tilhneiging til að einkavæða sífellt stærri hluta af kerfinu“

Ólaf­ur Ólafs­son, fyrr­ver­andi land­lækn­ir, var­ar við því að gróða­fyr­ir­tækj­um sé hleypt að rekstr­in­um

Fyrrverandi landlæknir: „Aukin tilhneiging til að einkavæða sífellt stærri hluta af kerfinu“

Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, lýsir áhyggjum af síaukinni einkavæðingu íslenskrar heilbrigðisþjónustu í viðtali sem birtist í febrúarhefti Læknablaðsins. „Það virðist sem aukin tilhneiging sé til þess að einkavæða sífellt stærri hluta af kerfinu og draga samhliða verulega úr opinberri fjármögnun þess,“ segir hann.

Hann bendir sérstaklega á að reynsla Breta af einkavæðingu hluta heilbrigðisþjónustunnar sé slæm. „Í kjölfar verktakasamninga við lækna árið 1991 í Bretlandi var ekki numið staðar. Verulegar breytingar urðu á samfélagslegum rekstri heilbrigðisþjónustunnar og við tók einkarekstur og að hluta til einkavæddur rekstur. Mörg opinber sjúkrahús eru nú einkarekin og taka við einkafjármagni frá hluthöfum sem markaðsvæða stofnanir og vilja eðlilega græða á rekstrinum. Hagnaðurinn fer yfirleitt út úr greininni,“ segir hann og bætir við: 

„Hagnaðarsjónarmiðin valda því að frekar eru valdir „auðveldir“ sjúklingar til meðferðar en síður erfiðir eða þungir sjúklingar vegna aldurs eða langvinnra sjúkdóma. Sjúklingum er mismunað og ójafnræði skapast. Stjórnunarkostnaður hefur tvöfaldast og færst meira í hendur hluthafanna. Svipuð þróun hefur orðið í Svíþjóð eftir 2008 og samkvæmt skýrslum sænsku ríkisendurskoðunarinnar fyrir árið 2015 hafa jákvæðar breytingar á heilsufarsárangri enn ekki komið fram.“ 

Ólafur segir að svo virðist sem íslensk stjórnvöld skorti algjörlega rökstuðning fyrir því að breyta frekar rekstrarfyrirkomulagi heilbrigðisþjónustunnar nema gert sé ráð fyrir því að hið opinbera verði meðstjórnandi í rekstrinum. Það sé óráð að hleypa gróðafyrirtækjum að rekstrinum líkt og gert hefur verið í Bretlandi.

Stór ákvörðun á borði Óttars

Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum stendur Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra frammi fyrir því að ákveða hvort einkafyrirtækið Klíníkin fái að opna legudeild fyrir sjúklinga í Ármúla.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, hefur lýst því yfir að slíkt kynni að draga úr getu spítalans til að rækja hlutverk sitt. Haft var eftir honum í umfjöllun Fréttatímans á dögunum að hann hefði þá sérstakar áhyggjur af að missa dýrmæta starfskrafta sérhæfðs starfsfólks til einkafyrirtækisins:

„Verði af þessum áformum mun það ekki einfalda rekstur Landspítala, eins og ég sé fram haldið, heldur flækja hann. Framlag einkarekstrar sem þessa er takmarkaður fyrir heildina enda þungi þeirra í einfaldari aðgerðum með mikla framlegð, sem er hefðbundin rjómafleyting. Afleiðingin verður sú að grafið verður undan fámennri en mikilvægri sérgrein, sem sinnir sérhæfðum hópi sjúklinga á Landspítala. Flóknari aðgerðir þyrftu áfram að vera á Landspítala, en sjúklingar sem á slíkum aðgerðum þurfa að halda munu líða fyrir það að bæklunarsérgreinin væri orðin miklu veikari á spítalanum. Afleiðingarnar yrðu mjög alvarlegar, út frá öllum mælikvörðum, öðrum en gróða viðkomandi heilbrigðisstarfsmanna. Auðvitað gæti þetta orðið þeim til hagsbóta sem einfaldari þjónustu þurfa og bíða hennar, en þá þjónustu getur spítalinn veitt, fái hann til þess möguleika.“

Óttarr Proppé hefur ekki gert upp hug sinn ef marka má svör hans á Alþingi en þó sagt að engar ákvarðanir um grundvallarbreytingar á rekstrarformi heilbrigðisþjónustunnar verði teknar án víðtæks samráðs.

Stundin hefur fjallað umtalsvert um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu, meðal annars um fyrirtækið Klíníkina og arðgreiðslur heilbrigðisfyrirtækja.

Á lista Lánstrausts yfir arðbærustu fyrirtæki landsins miðað við hagnað sem hlutfall af eigin fé er að finna þrjú slík fyrirtæki. Arðgreiðslur úr tveimur þeirra nema mörg hundruð milljónum, en starfsemin er fjármögnuð að hluta til af Sjúkratryggingum Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an þeir dæmdu Arn­fríð­ar­mál

Arn­fríð­ur Ein­ars­dótt­ir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveim­ur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku af­stöðu um hæfi henn­ar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og mál­ið var til með­ferð­ar. Hinir þrír sem vald­ir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an Hæstirétt­ur tók fyr­ir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Við hvaða götu býr Ragnar? Reykás
1
Helgi skoðar heiminn

Við hvaða götu býr Ragn­ar? Reykás

Sauð­kræk­ing­ur­inn Ragn­ar Páll Árna­son, sem starfar hjá Öss­uri, býr í ná­grenni höf­uð­stöðva fyr­ir­tæk­is­ins, við göt­una Reykás. Seg­ist ekki hafa ætl­að að ílengj­ast þar, en kann nú hvergi bet­ur við sig. Siggi Sig­ur­jóns, guð­fað­ir Ragn­ars Reykáss, kann vel að meta sög­una af „nafna“ sín­um. Hann á sjálf­ur pín­lega en um leið drep­fyndna sögu tengda göt­unni í Ár­bæn­um.
Segja leigusala nýta sér neyð flóttafólks til að okra á Bifröst
2
Fréttir

Segja leigu­sala nýta sér neyð flótta­fólks til að okra á Bif­röst

Íbú­ar á Bif­röst segja fyr­ir­tæki sem leig­ir út gamla stúd­enta­garða nýta sér neyð þeirra sem þar búa til að standa í óhóf­leg­um verð­hækk­un­um. Meiri­hluti íbú­anna eru flótta­menn, flest­ir frá Úkraínu. „Við höf­um eng­an ann­an mögu­leika. Við get­um ekki bara far­ið.“ Leigu­sal­inn seg­ir við Heim­ild­ina að leigu­verð­ið þyki af­ar hag­stætt.
„Það er ekkert svo ógeðslegt og hryllilegt að það sé ekki til“
4
FréttirÁ vettvangi

„Það er ekk­ert svo ógeðs­legt og hrylli­legt að það sé ekki til“

„Það er her úti í hinum stóra heimi, óskipu­lagð­ur og skipu­lagð­ur sem vinn­ur við það að reyna að búa til nú fórn­ar­lömb og þeir svíf­ast bók­staf­lega einskis,“ seg­ir Hall­ur Halls­son rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur. Hann vinn­ur í deild sem sér­hæf­ir sig í að mynd­greina barn­aníðs­efni. Í þátt­un­um Á vett­vangi fylg­ist Jó­hann­es Kr. Kristjáns­son með störf­um kyn­ferð­is­brota­deild­ar lög­regl­unn­ar.
Ingrid Kuhlman
9
Aðsent

Ingrid Kuhlman

Hinn kaldi raun­veru­leiki: Þess vegna þurf­um við að eiga mögu­leika á dán­ar­að­stoð

„Á síð­ustu stund­um lífs síns upp­lifa sum­ir deyj­andi ein­stak­ling­ar óbæri­leg­an sárs­auka og önn­ur al­var­leg ein­kenni sem valda þján­ingu.“ Ingrid Ku­hlm­an skrif­ar í að­sendri grein um lík­am­lega og til­finn­inga­lega van­líð­an sem deyj­andi ein­stak­ling­ar með ban­væna sjúk­dóma upp­lifa við lífs­lok.
Þingið samþykkir tillögu um skipun rannsóknarnefndar um Súðavíkurflóðið
10
FréttirSúðavíkurflóðið

Þing­ið sam­þykk­ir til­lögu um skip­un rann­sókn­ar­nefnd­ar um Súða­vík­ur­flóð­ið

Al­þingi sam­þykkti rétt í þessu að skipa rann­sókn­ar­nefnd vegna snjóflóðs­ins sem féll á Súða­vík í janú­ar 1995. Fjöl­mörg­um spurn­ing­um er ósvar­að um það hvernig yf­ir­völd brugð­ust við í að­drag­anda og eft­ir­leik flóð­anna. Fjór­tán lét­ust í flóð­inu þar af átta börn. Að­stand­end­ur hinna látnu hafa far­ið fram á slíka rann­sókn síð­an flóð­ið varð. Nýj­ar upp­lýs­ing­ar í mál­inu komu fram í rann­sókn Heim­ild­ar­inn­ar fyr­ir ári.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
3
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
10
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu