Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Frelsissvipting í Breiðholti: Annar ákærðu viðurkenndi hnífaárás

„Ég er stund­um paranoj­að­ur,“ sagði mað­ur sem við­ur­kenndi hnífa­árás fyr­ir hér­aðs­dómi í morg­un. Hann sagð­ist sofa með ham­ar und­ir kodd­an­um.

Frelsissvipting í Breiðholti: Annar ákærðu viðurkenndi hnífaárás
Ákærður Sigurður Brynjar Jensson var mættur í morgun.

Aðalmeðferð fór fram í máli Sigurðar Brynjar Jenssonar og annars manns, fæddur árið 1988, í dag en tvímenningarnir eru sakaðir um frelsissviptingu og rán í sameiningu meðan hinn maðurinn er sakaður um sérstaklega hættulega líkamsárás. Samkvæmt ákæru sviptu þeir stúlku á 19. ári og karlmann á 22. ári frelsi sínu.

Sigurður Brynjar neitaði sök við héraðsdóm en hann var í sumar dæmdur fyrir aðild að Vogamálinu svokallaða. Atvikið sem hann er nú ákærður fyrir átti sér stað aðeins mánuði eftir að dómur féll í því máli.

Einn liður ákærunnar beinist eingöngu að eldri manninum en hann er sakaður um sérstaklega hættulega líkamsárás í tengslum við málið. Maðurinn er sagður hafa skorið karlmanninn með hnífi í hægri fótlegg og er hann lá á grúfu á gólfi íbúðarinnar slegið og sparkað í höfuðið á manninum. Hann er enn fremur sakaður um hafa slegið karlmanninn með hamri í höfuðið og stúlkuna með hamri í vinstri handlegg. Hann er sagður hafa skorið bæði stúlkuna og karlmanninn á vinstri kinn með hníf. Bæði hlutu þau fjögurra sentímetra langa skurði á kinnum. Hann viðurkenndi fyrir rétti að hafa beitt leatherman-hníf sínum á brotaþola.

Sefur með hamar undir koddanum

Sigurður bað um fresta skýrslutöku sinni sem hann og fékk. Því var byrjað á skýrslutöku hins mannsins, eða ákærða B til þæginda. Hann lýsti forsögu málsins á þá leið að báðir brotaþolar hafi komið til sín í heimsókn ásamt þriðja manni. Hann hafi síðar farið og sótt Sigurð og þegar heim var komið fóru þremenningarnir á brott. Þá hafi hann tekið eftir því að lyf í sinni eigu, seroquel og lyrica, hafi verið horfin. Enn fremur hafi sími Sigurðar ekki verið á sínum stað.

Hann og Sigurður hafi því farið að heimili stúlkunnar og þar sem hún hafi á endanum sagt honum að annar brotaþola hafi tekið lyfin. „Þá verð ég pirraður á henni, þá förum við aftur til þeirra og [brotaþoli] er sofandi og ég kýli hann en hann vaknar ekki við það, svo ég sker hann í löppina, mjög grunnt. Ég ætlaði ekki að meiða hann. Hann réttir mér örfáar töflur. Þá byrja ég að rispa [stúlkuna] og hann mjög grunnt í kinnina,“ sagði maðurinn í réttarsal. Hann ítrekaði að hún hafi ekki verið beitt harðræði og frelsi hennar hafi ekki verið skert.

Maðurinn er ákærður fyrir að ráðast á brotaþola með hamar. Hann neitaði því staðfastlega í réttarsala. „Það segir sig sjálft að ef ég hafi lamið þau ítrekað í hausinn með hamri væru þau dauð,“ sagði maðurinn. Spurður nánar út í orð sín í yfirheyrslu þar sem hann hafi sagt að hann svæfi með hamar undir koddanum svaraði maðurinn játandi og sagðist „ég er stundum paranojaður“.

Maðurinn gerði lítið úr aðkomu Sigurðar að málinu og neitaði enn fremur staðfastlega að hann hafi rænt brotaþola. „Ég tók tvær peysur sem [brotaþoli] var með í láni. Þau rændu símanum hans [Sigurðar]. Hann tók símann sinn til baka og síðan tók ég þessar töflur, þetta voru örfáar töflur. Maðurinn sagðist hafa verið vakandi í viku á amfetamíni þegar atvikið átti sér stað.

Með sýnilegt ör

Stúlkan kom því næst í skýrslutöku. Hún hóf mál sitt á því að lýsa því er hún var komin heim til sín frá heimili ákærða. Þá hafi Sigurður og karlmaðurinn verið fyrir utan íbúð sína þar sem þeir „öskruðu og görguðu“. Hún hafi komið með hugmynd að þriðji maðurinn, ekki brotaþoli, hafi rænt lyfjunum.  

„Við áttum að hafa stolið síma og einhverjum pillum, fólk var byrjað að kvarta vegna hávaðans á ganginum, þeir sögðu að ég ætti að hjálpa þeim að finna þennan gæja sem átti að hafa stolið þessum síma. Við fórum heim til hans og tókum hann með okkur. Þeir voru hóta honum að sprauta hann með einhverju, berja hann og fara illa með hann,“ sagði stúlkan. Tekið skal fram það sem stúlkan lýsir hér að framan er ekki að finna í ákæru og nafn mannsins er ekki að finna þar.

Stúlkan sagðist hafa reynt að fá ákærðu til að hætta án mikils árangurs. Þriðji maðurinn hafi að lokum bent á annan brotaþola, ekki stúlkuna, og þá hafi Sigurður reiðst og sagt hana samseka.

„Þá byrjaði hann að reyna að berja mig í andlitið, sprauta einhverjum vökva á mig, hann byrjaði bara að vera fokking leiðinlegur,“ sagði stúlkan.

Þegar komið var að heimili hennar hafi [ákærði B] tekið hana smá hálstaki á leiðinni svo ég myndi opna fyrir þeim, hann hrinti mér og var leiðinlegur,“ lýsti stúlkan. Þegar þangað var komið hafi þau farið inn í svefnherbergi þar sem brotaþolinn hafi verið sofandi. Stúlkan sagði að þá hafi ákærði B ráðist á manninn og meðal annars slegið hann nokkrum sinnum með hamri í hausinn. Hún var margspurð út í þetta atriði og svaraði staðfastlega að hún hafi séð manninn sleginn með hamri.

Spurð um áverka sýndi hún lögmönnum og dómara ör á kinn hennar eftir að [ákærði B] skar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Missti göngugetuna níu ára og missir „himnaríki“ ellefu ára
1
FréttirFlóttamenn

Missti göngu­get­una níu ára og miss­ir „himna­ríki“ ell­efu ára

Þó að lækn­ar telji mik­il­vægt að hinn ell­efu ára gamli Yaz­an, sem er með ágeng­an vöðvarýrn­un­ar­sjúk­dóm, haldi áfram í lækn­is­með­ferð tel­ur Kær­u­nefnd út­lend­inga­mála ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að vísa hon­um til lands sem hann hef­ur sem stend­ur eng­in rétt­indi í. „Ég hef unn­ið við þetta í næst­um 8 ár og aldrei séð svona af­ger­andi lækn­is­vott­orð,“ seg­ir tals­mað­ur fjöl­skyld­unn­ar. Sex sam­tök og fjöl­marg­ir Ís­lend­ing­ar hafa mót­mælt fyr­ir­hug­aðri brott­vís­un.
Ráðherrum ítrekað bent á að gjöf Haraldar stæðist ekki skoðun
3
AfhjúpunDýr skyldi Haraldur allur

Ráð­herr­um ít­rek­að bent á að gjöf Har­ald­ar stæð­ist ekki skoð­un

Upp­lýs­ing­ar úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu styðja ekki þá full­yrð­ingu Bjarna Bene­dikts­son­ar að ráðu­neyt­ið teldi rík­is­lög­reglu­stjóra hafa haft heim­ild til „út­færslu samn­inga“ sem sagð­ir eru gjafa­gjörn­ing­ar. Í ráðu­neyt­inu voru þvert á móti veru­leg­ar efa­semd­ir um að sam­komu­lag­ið stæð­ist. Ráðu­neyt­is­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og lög­reglu­stjór­ar töldu rétt að skoða hvort Har­ald­ur hefði brot­ið lög.
Aukinn einkarekstur:  „Ég hef líka áhyggjur af þessu“
4
Fréttir

Auk­inn einka­rekst­ur: „Ég hef líka áhyggj­ur af þessu“

Alma Möller, land­lækn­ir seg­ir að líkt og for­stjóri Land­spít­al­ans hafi hún áhyggj­ur af auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigðis­kerf­inu. Áhyggj­urn­ar snú­ist fyrst og fremst að því að ef við sofn­um á verð­in­um geti auk­in út­vist­un heil­brigð­is­þjón­ustu leitt til meiri ójöfn­uð­ar á Ís­landi. Þá verði að gæta sér­stak­lega að því að veikja ekki Land­spít­al­ann.
Popúlísk aðferð til að ná eyrum óöruggra karla
5
Greining

Po­púlí­sk að­ferð til að ná eyr­um óör­uggra karla

Po­púl­ist­ar karl­mennsk­unn­ar njóta sí­vax­andi vin­sælda. Í spjalli Skoð­ana­bræðra við Pat­rik Atla­son virt­ist ljóst að kon­ur eigi að til­heyra hlut­verki hefð­bund­inn­ar hús­móð­ur á með­an að karl­inn sér fyr­ir tekj­um heim­il­is­ins. Ung­ir karl­menn eru stöð­ugt áreitt­ir af al­gór­yþm­um sam­fé­lags­miðla með pre­dik­ur­um goð­sagna­kenndr­ar karl­mennsku, enda­lausu klámi og óraun­hæf­um mark­mið­um sem grafa und­an sjálfs­vit­und þeirra.
Gerir starfsfólki kleift að geta sjálft mælt sig reglulega
7
Nýsköpun

Ger­ir starfs­fólki kleift að geta sjálft mælt sig reglu­lega

Ef­fect er lít­ið fyr­ir­tæki stað­sett rétt fyr­ir ut­an Borg­ar­nes sem býð­ur upp á hug­bún­að­ar­lausn til að mæla hæfn­is­gat starfs­manna. „Ég hef al­veg far­ið inn í fyr­ir­tæki þar sem stjórn­end­ur horfa fyrst á mig stór­um aug­um og halda að þetta muni ekki ganga. En núna hef ég far­ið í gegn­um þetta með yf­ir tutt­ugu fyr­ir­tækj­um,“ seg­ir stofn­and­inn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
5
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Þórður Snær Júlíusson
7
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
2
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
5
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár