Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Katrín útilokar hvorki minnihlutastjórn né þjóðstjórn: „Ekkert útilokað í stöðunni“

Katrín Jak­obs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, hef­ur skil­að for­seta Ís­lands stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­in. Hún úti­lok­ar hvorki minni­hluta­stjórn né þjóð­stjórn og seg­ir að nú verði all­ir flokk­ar að skoða hvað þeir eru til­bún­ir til að gera til að nálg­ast aðra flokka bet­ur.

Katrín útilokar hvorki minnihlutastjórn né þjóðstjórn: „Ekkert útilokað í stöðunni“
Katrín Jakobsdóttir Segir stöðuna nú snúna, þó hún sé ekki tilbúin að tala um stjórnarkreppu. Mynd: Pressphotos

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, ræddi við fréttamenn á Bessastöðum, eftir að hafa skilað Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, stjórnarmyndunarumboðinu nú í morgun. Hún sagðist hafa notað gærdaginn til þess að fara yfir aðra valkosti, eftir vikutíma í stjórnarmyndum sem gekk ekki upp, og í gærkvöldi  hafi hún ákveðið að „kasta inn handklæðinu“. Hún hafi upplýst forseta um þá kosti sem hún sæi í stöðunni. Hún mælti ekki við því við forseta með því að einhver sérstakur fengi stjórnarmyndunarumboðið og sagði forsetann verða að gera grein fyrir því hver næstu skref yrðu.   

Katrín sagði stöðu allra flokka nú vera að þrengjast. Úrslit kosningana hafi falið það í sér að ekki sé hægt að ná eins málefnalegri samstöðu og oft áður. Nú þurfi hver flokkur  að ræða það innan sinna raða hvort slaka þurfi á kröfunum.

Spurð að því hvort nú þurfi hugsanlega að mynda minnihlutastjórn eða þjóðstjórn sagði Katrín ekkert útilokað, nú þegar búið væri að reyna að mynda tvær meirihlutastjórnir án árangurs. Hún vildi ekki kalla ástandið nú stjórnarkreppu en staðan væri snúin.

Vonbrigði að viðræðunum hafi lokið 

Sjálf hefði hún ekki náð þeim árangri sem hún vænti og að hún hefði orðið hissa á því hvernig viðræður Vinstri grænna við Samfylkingu, Pírata, Bjarta framtíð og Viðreisn fóru. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum,“ sagði hún. Hún hafi hins vegar ákveðið að slíta viðræðunum strax. 

„Ég varð fyrir miklum vonbrigðum“

Áður hefur komið fram að á fundi hennar með Benedikt Jóhannessyni, formanni Viðreisnar, hafi hann lýsti því yfir að hann hefði ekki sannfæringu fyrir þessari leið. Í samtali við fréttamenn nú sagði Katrín að hún liti svo á að allir yrðu að hafa sannfæringuna til að halda þessari vegferð áfram. Án þess væri varla hægt að gera nauðsynlegar málamiðlanir til að þessir fimm flokkar geti náð saman. Heilbrigðismálin hafi verið stóra málið í kosningabaráttunni og flokkarnir þyrftu að finna leiðir sem þeir væru sáttir við til að fjármagna þá uppbyggingu.

Ræddi við Bjarna

Þá sagðist hún hafa rætt við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins. „Ég átti samtal við Bjarna í gær og hef átt mörg samtöl við hann,“ en bætti því við að að væri málefnalega langt á milli þessara flokka og málefnin réðu för. Það væri ástæða fyrir því hvar flokkarnir staðsettu sig á þessum hefðbundna ás, til hægri eða vinstri. Staðan væri hins vegar farin að þrengjast. Nú sé tímabært að flokkarnir fari aftur yfir sína afstöðu því á endanum verði að mynda ríkisstjórn. „Mér finnst kannski of snemmt að segja til um það,“ sagði hún um möguleikann á að því að Vinstri grænir og Sjálfstæðisflokkurinn gætu myndað ríkisstjórn.

Að lokum sagði hún að þing þyrfti að koma saman til að ljúka fjárlögum, og það væri vel hægt án þess að búið væri að mynda ríkisstjórn. 

Enginn fær umboðið 

Guðni Th. Jóhannesson steig síðan fram og sagðist ekki ætla að láta neinn fá stjórnarmyndunarumboðið að svo stöddu. Eftir fundinn með Katrínu hefði hann rætt við formenn allra flokka og hvatt þá til þess að ræða sín á milli í leit að lausnum, um leið og hann hefði minnt á þá miklu ábyrgð, sem hvílir á þinginu, að sjá til þess að ný ríkisstjórn verði mynduð þegar fyrri stjórn hefur misst þingmeirihluta og beðist lausnar.

Hann sagðist hafa ástæðu til að ætla að það skili árangri, án þess að skýra það frekar. Hann vænti þess að um eða eftir helgi hefðu línurnar skýrst og þá væri hægt að sjá fyrir næstu skref í þessum stjórnarmyndunarviðræðum. 

Guðni sér möguleikann á nýrri ríkisstjórn.

Í ljósi þess hvernig viðræður um stjórnarmyndun hafa þróast frá kosningum og þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið í samtölum mínum við forvígsmenn flokkanna hef ég ákveðið að veita ekki einum tilteknum formanni eða fulltrúa flokks umboð til stjórnarmyndunar að sinni. Fyrir slíku skrefi eru bæði hefð og gildar ástæður eins og málum er komið. Skynsamlegast er að forystufólk flokkanna á þingi kanni óformlega næstu daga hvers konar samstarf sé mögulegt enda eru slíkar viðræður þegar hafnar. Í því sambandi árétta ég mikilvægi þess að stjórnmálamennirnir rísi undir þeirri ábyrgð sem þeim er lögð á herðar, að sjá til þess að í landinu sé ríkisstjórn sem meirihluti á Alþingi geti sætt sig við. Ég nefni jafnframt þá brýnu nauðsyn að kalla þing senn saman. Vitaskuld væri æskilegast að samkomulag um nýja ríkisstjórn lægi fyrir við þingsetningu.

Aðspurður sagði hann að þing þyrfti að koma saman á næstu vikum. „Ég er ekki að segja að það komi saman í næstu viku eða þar næstu viku. Segjum að það komi saman fyrir jól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Þórður Snær Júlíusson
3
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Grátrana sást á Vestfjörðum
4
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.
Ójöfnuður kemur okkur öllum við
10
Viðtal

Ójöfn­uð­ur kem­ur okk­ur öll­um við

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir að stjórn­völd og sam­fé­lag­ið allt þurfi að horf­ast í augu við að hér ríki ójöfn­uð­ur í heilsu. Rann­sókn­ir sýna að lífs­gæði og lífs­lík­ur þeirra sem búa við efna­hags­leg­an skort eru minni en þeirra sem ná vel end­um sam­an. Alma seg­ir mik­il­væg­ast að hlúa að börn­um sem al­ist upp í fá­tækt. „Því ef fólk fær vont start í líf­inu þá á það sér kannski ekki við­reisn­ar von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
6
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
8
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
10
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár