Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Íslandsdeildin sat hjá í atkvæðagreiðslu um afglæpavæðingu vændis

Til­laga um af­glæpa­væð­ingu vænd­is var sam­þykkt á fund­in­um í dag. Ís­lands­deild­in reyndi að gera breyt­ing­ar á til­lög­unni, en tókst ekki.

Íslandsdeildin sat hjá í atkvæðagreiðslu um afglæpavæðingu vændis

Amnesty International hefur samþykkt að beita sér fyrir afglæpavæðingu vændis. Tillagan var samþykkt á fundi alþjóðahreyfingarinnar í Dublin í dag. Þar var samþykkt að fela stjórn samtakanna að móta stefnu í þessum málum til að styðja við afglæpavæðingu vændis og tryggja að fólk í kynlífsiðnaði njóti fullrar og jafnrar verndar gagnvart misnotkun, mansali og ofbeldi.

Í tilkynningu Amnesty International segir að fólk sem starfar við kynlífsiðnaðinn sé jaðarhópur sem stendur stöðugt frammi fyrir hættu á mismunun, ofbeldi og misnoktun. Það sé niðurstaða tveggja ára rannsóknarvinnu að þessi leið sé best til þess fallin að tryggja mannréttindi þessa hóps og draga úr hættunni á ofbeldi og misnotkun sem þeir standa frammi fyrir. 

Íslandsdeild Amnesty International tók afstöðu gegn afglæpavæðingu vændis í breytingartillögu sem deildin lagði fram með Svíum. Breytingartillagan fékk ekki hljómgrunn á fundinum. Þegar til atkvæðagreiðslu kom sátu fulltrúar Íslandsdeildarinnar hins vegar hjá. 

Hörður Helgason, formaður Íslandsdeildar Amnesty International, segir að alþjóðasamtökin hafi farið fram á að trúnaður myndi ríkja um afstöðu deildarinnar þar til tillagan hefði verið afgreidd og niðurstaðan kynnt. Starfsmennirnir gátu því ekki rætt afstöðu deildarinnar opinberlega á síðustu dögum, þegar mikil umræða hefur verið um málið. „Okkur voru frekar þröngar skorður settar um það hvernig við gátum svarað fjölmiðlum varðandi okkar afstöðu gagnvart þessari tillögu og þurftum að reiða okkur á óformleg samtöl. Sú ákvörðun var tekin á fundi stjórnarinnar 30. júlí síðastliðinn, þar sem það var einróma samþykkt að það væri ekki hægt að styðja þessa tillögu vegna þess að göngin sem lágu fyrir væru ekki nægilega traust.“

Vont að geta ekki leiðrétt ráðherra

Hörður segir bagalegt hvernig brugðist var við tillögunni á Íslandi, í ljósi þess að Íslandsdeildin hafi ávallt verið andsnúin henni. „Við gátum ekki komið á framfæri leiðréttingum við umræðunni sem spannst í kjölfarið. Sérstaklega þótti okkur bagalegt að geta ekki leiðrétt utanríkisráðherra ríkisstjórnar Íslands sem gagnrýndi okkur sérstaklega fyrir þessar tillögur um afglæpavæðingu eða afléttingu refsingu vændisfólks og vitnaði máli sínu til stuðnings í átakið HeForShe sem UN Women stendur að. Í ljósi þess að samtökin eru ekki einungis hlynnt afléttingu refsinga, eins og Amnesty, heldur ganga lengra og viðurkenna þessa iðju sem atvinnugrein,“ segir Hörður.

 „Sérstaklega þótti okkur bagalegt að geta ekki leiðrétt utanríkisráðherra ríkisstjórnar Íslands sem gagnrýndi okkur sérstaklega fyrir þessar tillögur.“

Hann segir að fulltrúar Íslandsdeildarinnar hafi fljótlega fundið samherja í öðrum deildum þegar þeir mættu til þingsins og reynt að ná samstöðu um breytingartillögu við fyrirliggjandi tillögu. „Eina deildin sem ég veit um sem ætlar að uppljóstra að hún hafi tekið þátt í því er sænska deildin.

Breytingartillagan var tekin fyrir í dag og felld. Niðurstaðan var engu að síður sú að upprunalega tillagan sem var til afgreiðslu á þinginu var í meðferðum þingsins stórlega breytt. Svo mikið að hún var lögð til hliðar og ný tillaga samin í staðin. Þessi nýja tillaga, þar sem efnislega var komist að sömu niðurstöðu, var samþykkt,“ útskýrir Hörður.

Hann getur ekki tjáð blaðamanni hvernig deildirnar kusu eftir löndum, en segir að mikill meirihluti hafi verið fyrir tillögunni. Líkt og fyrr segir sat Íslandsdeildin hjá þegar atkvæði voru greidd um tillöguna umdeildu, þar sem lagt var til að vændi yrði afglæpavætt. „Við sátum hjá við lokaafgreiðslu málsins í samræmi við stjórnarályktun þann 30. júlí, þar sem við komumst að þeirri niðurstöðu að það væru ekki fyrirliggjandi gögn til að styðja þetta en við gætum ekki tekið afstöðu til þess hvað gerðist ef alþjóðasamtökin myndu leggja gögnin fram síðar.“ 

„Við sátum hjá við lokaafgreiðslu málsins í samræmi við stjórnarályktun þann 30. júlí.“ 

Vændiskonur mótmæltu tillögunni

Í sameiginlegri yfirlýsingu sjö kvennasamtaka á Íslandi var tillagan um afglæpavæðingu vændis gagnrýnd harðlega. „Ef Amnesty International mælir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólgum og vændiskaupendum þar með gefin friðhelgi og mannréttindi kvenna í vændi fótum troðin. Slík stefna myndi skaða þann mikilvæga trúverðugleika og það traust sem Amnesty nýtur í dag. Það má ekki gerast,“ segir í yfirlýsingu þeirra.

Sambærilegar yfirlýsingar bárust frá ýmsum kvennahreyfingum erlendis. Auk þess tjáði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sig um málið, sagði vændi ekki vera atvinnugrein og ekki eiga að fá að þrífast sem slík. „Mér finnst hryggilegt til þess að hugsa að á sama tíma og við hvetjum karla um allan heim til að leggja sitt af mörkum til #heforshe og koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og tryggja kynjajafnrétti þá skulu ein stærstu og virtustu mannréttindasamtök heims leggja þessar tillögur fram,“ skrifaði hann á Facebook.

Þá skrifaði íslensk kona sem hefur verið í vændi bréf til Íslandsdeildarinnar sem birt var á Stundinni þar sem hún biðlaði til þeirra að berjast gegn tillögunni. Í sama streng tóku fyrrverandi vændiskonur sem útskýra hér af hverju þær lögðust gegn tillögunni. 

„Getum ekki gefist upp“

„Við getum ekki gefist upp. Það er rignir inn á netið yfirlýsingum frá samstarfskonum okkar um allan heim. Amnesty hefur misst trúverðugleika og traust,“ skrifaði Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, á Facebook eftir að tillaga Amnesty var samþykkt á alþjóðaþinginu.

Fyrr í dag var hún til viðtals í þætti um vændi á BBC, ríkisútvarpi Bretlands. Þar vitnaði hún í skýrslu um hvernig sænska módelið hefði gefist í Noregi og sagði þar vændi hafa minnkað um 25 prósent og lögin stuðlað að vitundarvakningu um vændi. „Auk þess teljum við mikilvægt að bent sé á að þeir sem kaupa vændi geta aldrei vitað hvort konurnar eru þar af fúsum og frjálsum vilja eða hvort þær eru fórnarlömb mansals. Ef okkur er alvara með baráttunni gegn mansali þá getum við ekki annað en reynt að draga úr eftirspurn eftir vændi, því mansal þrífst nær einvörðungu þar sem vændi blómstrar.

Í umræðum um jaðarsettar fátækar konur sagði Guðrún óþolanlegt að slíkar konur stæðu eftir án nokkurra valkosta og yrðu að hafa lifibrauð af því að selja líkama sinn. „Við skilgreinum þetta ekki sem atvinnugrein og óháð því hvaða lög gilda verður að efla félagsleg aðstoð og tryggja konum útgönguleið. Konur þurfa á slíkum kostum að halda til að þær neyðist ekki til að halda áfram í vændisiðnaðinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
1
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
„Ég hef að góðu að hverfa aftur“
3
Allt af létta

„Ég hef að góðu að hverfa aft­ur“

Guð­mund­ur Karl Brynj­ars­son, sókn­ar­prest­ur í Linda­kirkju, laut í lægra haldi í bisk­ups­kjöri sem fram fór síðaslið­inn þriðju­dag. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist Guð­mund­ur ganga sátt­ur frá borði. Bisk­ups­kjör­ið hafi ver­ið ánægju­leg og lær­dóms­rík reynsla sem hann sé þakk­lát­ur fyr­ir. Hann seg­ist nú snúa sér aft­ur að sókn­ar­starf­inu í Linda­kirkju. Þar bíði hans mörg verk­efni.
Brosir gegnum sárin
5
ViðtalHlaupablaðið 2024

Bros­ir gegn­um sár­in

Andrea Kol­beins­dótt­ir, marg­fald­ur Ís­lands­meist­ari í hlaup­um, ger­ir hlé á lækn­is­fræði til að reyna að verða at­vinnu­hlaup­ari. Hún deil­ir lær­dómi sín­um eft­ir hindr­an­ir og sigra síð­ustu ára. Fjöl­skyldu­með­lim­ir hafa áhyggj­ur af hlaup­un­um, en sjálf ætl­ar hún að læra meira á manns­lík­amann til að bæta sig og hjálpa öðr­um. Hlaup­in snú­ast um sig­ur hug­ans og stund­um bros­ir hún til að plata heil­ann.
Vill að NATO greiði fyrir nýjan flugvöll
8
Fréttir

Vill að NATO greiði fyr­ir nýj­an flug­völl

Ei­rík­ur Ingi Jó­hanns­son for­setafram­bjóð­andi tel­ur að að­ild Ís­lands að Norð­ur-Atlants­hafs­banda­lag­inu (NATO), sem sam­þykkt var á Al­þingi ár­ið 1949, hefði átt að vera sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í nýj­asta þætti Pressu sagði Ei­rík­ur að Ís­land ætti ekki að leggja til fjár­muni í varn­ar­banda­lag­ið. Þvert á móti ætti NATO, að hans mati, að fjár­magna upp­bygg­ingu á mik­il­væg­um inn­við­um hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
9
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár