Ekki er alfarið óheimilt að aka að Þingvallakirkju, þótt beðist sé undan því, samkvæmt svörum frá fræðslufulltrúa Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Tveir menn og dóttir annars þeirra þurftu að stíga til hliðar af stíg sem liggur að Þingvallakirkju svo Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og eiginkona hans kæmust fram hjá á Landcruiser-jeppa forsætisráðherra. Skammt frá er að finna skilti þar sem beðist er undan því að ekið sé niður að kirkjunni.
„Gaman að sjá hvað forsætisráðherra Íslands var jákvæður áðan, að láta konu sína keyra um á göngustígum þjóðgarðsins á Þingvöllum í dag, þannig að við þurftum að stíga til hliðar svo þau kæmust fram hjá,“ skrifaði annar viðmælenda Stundarinnar á Facebook þann 3. janúar síðastliðinn. Hinn viðmælandinn staðfestir frásögnina og segir að skömmu áður hafi þau orðið vitni að því þegar ferðamönnum á bíl var vísað af stígnum.
Uppfært 8. janúar kl. 13:15: Bent hefur verið á að vegurinn sem hér er fjallað um liggur einnig að bústað forsætisráðherra sem er við hliðina á Þingvallakirkju. Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi Vefpressunnar og fyrrverandi starfsmaður forsætisráðuneytisins, vekur athygli á þessu á Facebook. „Þennan veg hafa forsætisráðherrar því notað undanfarna áratugi til að komast til og frá bústaðnum,“ skrifar hann.
Að sögn Einars Á. E. Sæmundsen, fræðslufulltrúa Þjóðgarðsins á Þingvöllum, hefur verið reynt að takmarka umferð að kirkjunni og Þingvallabæ til að bæta ásýnd staðarins. „Það eru bara þeir sem eiga erindi að Þingvallabæ og Þingvallakirkju og starfsfólk í sínum erindum sem keyrir þarna niður eftir,“ segir hann og bætir því við að skiltið hafi verið sett upp til að minnka sjónræn áhrif af bílum. Engu að síður séu ýmsar undantekningar gerðar, svo sem fyrir þá sem eiga sérstakt erindi í kirkjuna og vegna opinberra heimsókna.
Í samtali við Stundina segist Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs, ekki vita hvort Sigmundur hafi skroppið á Þingvelli þessa helgi. Skemmst er að minnast þess að síðasta sumar gekk mynd á Facebook af Sigmundi, þar sem hann sat í Land Cruiser-jeppanum sem lagt hafði verið í tvö bílastæði.
Athugasemdir