Illa er nú komið fyrir Venesúela, en þrátt fyrir miklar auðlindir sem landið býr yfir virðist þar allt komið að fótum fram. Flestir virðast sammála um að sá sósíalismi sem Hugo sálugi Chávez forseti kom á hafi gengið of langt og gert skuldir landsins óbærilegar. Stuðningsmenn og arftakar Chávez halda því á hinn bóginn fram að vandræðin nú stafi ekki síst af þeim fyrirætlunum Bandaríkjanna að knésetja hina sósíalísku stjórn Venesúela með hjálp innlends og alþjóðlegs auðvalds.
Helgi Hrafn Guðmundsson skrifaði reyndar á dögunum í Fréttatímann mjög góðan yfirlitspistil um ástand mála í Venesúela og má lesa hann hér.
Í erjum Chávez við andstæðinga sína skipti óneitanlega máli að hann var að verulegu leyti af ættum innfæddra Ameríkumanna, þeirra sem bjuggu í landinu áður en Kristófer Kólumbus kom með sitt spænska innrásarfólk yfir hafið undir lok 15. aldar. Reyndar eru flestallir Venesúelabúar að einhverju leyti blandaðir, en ljóst er að Chávez leit á sig sem innfæddan („Indíána“ sem einu sinni var kallað) og að barátta hans væri á sinn hátt framhald af aldalangri baráttu innfæddra með útlendum innrásarmönnum.
Til hægðarauka verður hugtakið Indíánar notað hér eftir í þessari grein, þótt það sé misvísandi og raunar rangt.
Og í þessari baráttu átti Chávez reyndar fræga fyrirmynd í höfðingjanum Guacaipuro, sem er sögufrægur baráttumaður gegn erlendu valdi í Venesúela - og einn af fyrstu og frægustu Indíánahöfðingjunum sem snerust til varnar gegn Spánverjum, ef undan eru skildir konungar þróaðra ríkja Azteka og Inka.
Spánverjar hófu að nema land í Venesúela strax í byrjun 16. aldar og hvatti þá mjög til dáða þegar gull fannst í fjöllunum í nágrenni við þann stað þar sem nú er höfuðborgin Caracas. Þar á svæðinu bjuggu fjölmargir Indíánaættbálkar og nefndist einn þeirra Tequar. Um 1530 fæddist Guacaipuro og er hann var orðinn tvítugur var hann orðinn höfðingi ættbálks síns, svonefndur „cacique“.
Þá voru Spánverjar orðnir mjög uppivöðslusamir á svæðinu og Guacaipuro náði að sameina marga ættbálka á svæðinu gegn þeim. Ráðist var gegn þeim Spánverjum sem voru að hreiðra um sig á svæðinu og þeir hraktir burt.
Juan Rodríguez Suárez var herforingi sem hafði þá verið skipaður landstjóri á svæðinu af Spánarkóngi og hann hélt nú með herflokk gegn Indíánum. Þá urðu Gaicaipuro og menn hans að láta undan síga, enda höfðu þeir hvergi nærri nógu fullkomin vopn og Spánverjar.
Rodríguez taldi nú að Gaicapuro yrði héðan í frá til friðs. Hann staldraði við nógu lengi til að gullnámur voru að nýju komnar í gagnið en hélt svo brott. Hann skildi eftir á svæðinu þrjá syni sína sem áttu að sjá um að hrella Indíána svo þeir gerðust ekki uppivöðslusamir á ný.
En Gaicapuro ætlaði ekki að gefast upp. Hann dró saman heilmikið lið og réðist svo gegn gullnámunum. Allir Spánverjar sem þar voru að störfum voru dregnir, þar á meðal synir Rodríguez. Og hann sjálfur var eltur uppi og drepinn ásamt öllum sínum mönnum.
Gaicapuro vonaði að honum og mönnum hans hefði nú tekist að hrinda innrásinni í land sitt til frambúðar. Svo var þó ekki. Spánverjar ætluðu ekki að sleppa taki sínu af gullinu á svæðinu. Þeir sendu út herflokk árið 1562 undir stjórn Luis Narváez og var ætlunin að ganga milli bols og höfuðs á Indíánum. En Gaicapuro var ekkert lamb að leika sér við. Enn náði hann að sameina Indíána svo þeir börðust sem einn maður gegn innrásarliðinu og Narváez var sigraður og hrakinn á brott, hvað sem leið stáli og byssum hermanna hans.
Og í mörg ár voru allar tilraunir Spánverja til að brjótast aftur inn á svæðið brotnar á bak aftur af hinum einbeittu mönnum Gaicapuro.
Árið 1568 gerðu Spánverjar úrslitatilraun til að kveða hinn hnarreista Indíánahöfðingja í kútinn. Borgin Caracas hafði verið stofnuð ári fyrr og Spánverjum leist ekki á að hafa sjálfstæða og herskáa Indíána í nágrenninu undir forystu manns sem hafði sýnt að hann hikaði ekki við að ráðast gegn hersveitum þeirra - og sigra.
Nýskipaður borgarstjóri Caracas, Francisco Infanta, náði nú að kaupa sér stuðning nokkurra Indíána sem féllust á að leiða hann að frumskógarþorpinu þar sem Gaicapuro bjó. Herflokkur Infanta náði að ráðast inn í þorpið og umkringja húsið þar sem höfðinginn hélt til. Infanta hikaði ekki frekar en Flosi Þorgeirsson við að brenna andstæðinga sína inni og var nú lagður eldur að húsinu.
Gaicapuro vildi ekki láta brenna sig inni og réðist því út úr húsinu og barðist af hörku gegn ofurefli liðs þar til yfir lauk. Menn Infanta brytjuðu höfðingjann niður - og þótt fleiri Indíánahöfðingjar héldu uppi baráttu gegn Spánverjum á næstunni duldist engum að með falli Gaicapuro var mestallur þróttur úr þeirri baráttu.
En Gaicarapuro gleymdist ekki í sögum og minningum innfæddra, og í desember 2001 lét Hugo Chávez halda viðhafnarmikla athöfn þar sem höfðinginn knái var jarðsettur í þjóðargrafreit Venesúela-manna. Þótt athöfnin væri táknræn - enda vissi enginn hvar líkamsleifar Gaicapuro væri að finna - þá var þetta mikilvæg og áhrifamikil stund í augum þeirra Venesúela-búa sem röktu ættir sínar til innfæddra.
Hér má sjá fyrsta hlutann af spænskri heimildarmynd um Gaicapuro, hinir hlutarnir eru auðfinnanlegir á eftir þessum.
Athugasemdir