Nú ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að fara að ráðskast enn frekar með menntakerfið. Það á að gera það endanlega að útungunarstöð fyrir „atvinnulífið“, breyta okkur öllum í litlar vanhugsandi vélar sem kaupum draslið sem prangarar Flokksins ota að okkur.
Nei, takk.
Það hefur enginn beðið Sjálfstæðisflokkinn um að rústa þessu samfélagi sem við höfum búið hér til að og átti að vera okkur til sóma.
Afhverju leyfum við Flokknum þetta?
Menntakerfi Sjálfstæðisflokksins ætlar ekki að leyfa ungu fólki að hugsa um neitt annað en námið og „þarfir atvinnulífsins“ í skólanum. Allir eiga að útskrifast sem fyrst svo þeir geti farið að vinna. Ekki hugsa, ekki leita fyrir sér, ekki skemmta sér.
Ég man ekki hvaða flokksbroddur Sjálfstæðisflokksins það var sem hæddist að því að uppi í Háskóla væri fólk stundum bara að „leita að sjálfu sér“ í allskonar kúrsum sem væri ekkert víst að kæmu ATVINNULÍFINU að gagni.
Ja, svei. Svo ég vitni í sjálfan mig: Ef mín börn vilja að leita að sjálfum sér um skólakerfið þvert og endilangt, uppá hanabjálka í háskólum eða niðrí kjallara í tækniskóla eða útá túni í landbúnaðarskóla, þá er mér alveg sama bara ef þau finna sig á endanum.
Og jafnvel þó þau finni sig ekki, þá er leitin einhvers virði.
Fólk er ekki „tannhjól atvinnulífsins“, fólk er ekki tölur í kladda braskaranna.
Nú eru þeir að leggja undir sig heilbrigðiskerfið og menntakerfið líka.
Af hverju leyfum við þetta?
Stoppum þennan Flokk áður en hann gerir óafturkræfan óskunda!
Athugasemdir