Í heimi þar sem allt þarf að mæla og búa til lista um hvaðeina, þá hlaut náttúrlega að koma að því að búinn yrði til listi yfir þá flugvelli þar sem best sé - og verst - að fá sér blund milli langra flugferða.
Þann lista er nú að finna á vefsíðunni Sleeping in Airports (sjá hér) og ferðamálaskrifari tímaritsins Economist vitnar til hans í nýjasta pistli sínum.
Og þar kemur fram að Keflavíkurflugvöllur (kallaður „Reykjavík“ í pistlinum eins og útlendingar gera oft) hefur verið valinn sá versti árið 2016.
Ferðamálaskrifarinn, sem kallar sig Gúllíver, segir meðal annars:
„Það hefur alltaf verið leyndardómur af hverju flugvellir virðast hafa svo mikinn áhuga á að koma í veg fyrir að maður blundi. Sumir fara út í öfgar: Keflavíkurflugvöllur hefur meira að segja sett upp skilti þar fólki er sérstaklega bannað að reyna að halla sér augnablik. Kannski hafa menn áhyggjur af því að ef farþegar staðnæmast augnablik, þá hætti þeir að versla í fríhöfninni. Kannski telja menn að útafliggjandi hrjótandi farþegi fari í taugarnar á þeim sem umhverfis eru. Kannski hafa menn bara aldrei leitt hugann að þörfum þreyttra farþega. En Gúllíver grunar að - eins og svo margir í farþegaflugbransanum - séu þeir bara sadistar.“
Næst versti flugvöllurinn að þessu leyti segir Gúllíver að sé Beauvois-Tillé flugvöllurinn í Frakklandi. Hann er 85 kílómetra fyrir norðan París en lággjaldaflugfélögin, sem þangað fljúga, reyna þó að markaðssetja hann eins og hann tilheyri París.
Þá kemur Caravaggio-flugvöllurinn við Bergamo á Ítalíu, í fjórða sæti Luton-flugvöllur norðan við London og í fimmta sæti flugvöllurinn við borgina Christchurch á Nýja-Sjálandi.
Hins vegar skrifar Gúllíver:
„Changi flugvöllurinn í Singapúr tekur efsta sætið [í keppni um velli þar sem gott er að halla sér]. Á vefsíðunni er minnst á ókeypis hægindastólana á vellinum, hæfilega dimm hvíldarsvæði, opna stóla við hliðin, ókeypis nuddstóla og hvíldarstóla. Flugvöllurinn er án nokkurs vafa einn sá þægilegasti sem ég hef farið um ...“
Í næstu sætum koma svo Incheon-völlur við Seúl í Suður-Kóreu, og svo flugvellirnir í Helsinki, München í Þýskalandi og í fimmta sæti er Vínarborg í Austurríki.
Gúllíver hefur samt ekki sagt sitt síðasta orð um Keflavíkurflugvöll.
Hann segir í lokin:
„Miðað við umburðarleysið [sem fyrrnefnd skilti gegn svefni á vellinum sýna], þá kemur engum á óvart að Keflavíkurvöllur hafi verið valinn sá ónotalegasti til að blunda á. Eins og það sé ekki í sjálfu sér nógu þreytandi að heimsækja þetta land miðnætursólarinnar.“
Athugasemdir