Engin ríkisstjórn í Íslandssögunni hefur verið eins plöguð af spillingarmálum og sú sem nú er að hrökklast frá.
Forsætisráðherrann reyndist eiga eða hafa átt stórar fjárupphæðir á aflandseyju sem sýndi að hann vildi ekki deila kjörum með íslensku þjóðinni.
Hann neyðist svo til að segja af sér eftir að hafa orðið uppvís að ömurlegum lygaþvættingi.
Lengst af reyndu flokksmenn hans samt að bera af honum blak, þar á meðal bæði núverandi formaður og varaformaður, Sigurður Ingi Jóhannsson og Lilja Alfreðsdóttir.
Bæði formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal, höfðu líka haft viðdvöl á aflandseyjum.
Ráðherrann Hanna Birna Kristjánsdóttir hraktist úr starfi vegna lekamálsins.
Ráðherrann Illugi Gunnarsson hraktist úr pólitík vegna vandræðamála sem hann kom sér í alveg sjálfur.
Fyrstu ráðstafanir þessarar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins snerust um að létta álögum af sægreifunum sem síðan moka svo inn peningum úr auðlindinni, sem á að heita í okkar eigu, að nú stefnir í mestu misskiptingu í Íslandssögunni.
Allar ráðstafanir þessarar ríkisstjórnar í hvaða málum sem er reynast alltaf – já, ALLTAF – gagnast fyrst og fremst þeim sem eiga peninga fyrir.
Innviðir samfélagsins, það sem alþýða landsins treystir á, hafa verið látnir hanga á horriminni.
Heilbrigðiskerfið er svelt – kannski og raunar líklega til að reyna að sætta fólk við aukna einkavæðingu í framtíðinni.
Menntamál sitja á hakanum, samgöngumál, löggæslumál – allt hefur þetta verið látið danka af því þessir hlutir brenna ekki á því ríka fólki sem stjórnin þjónar.
Stjórnin hefur meira að segja klúðrað sínum hluta að uppbyggingu ferðaþjónustunnar, hinnar nýju gullgæsar.
Spilling, þjónkun við ríka fólkið, fúnandi innviðir:
Í alvöru talað, finnst ykkur ástæða til að kjósa þessa flokka?
Í alvöru?!
Athugasemdir