Sama dag og tilkynnt var um að nýr spítali skyldi boðin út greyptist saga þessara þriggja einstaklinga í huga mér. Saga þeirra er kannski að endurtaka sig hjá þér eða þeim sem er þér næstur. Öll hafa þau bloggað um sögu sína og baráttu við heilbrigðiskerfið. Í veikum mætti heldur Matthildur Kristmannsdóttir ein áfram, því Atli Thoroddsen lést í júlí 2009 og Elísabet Sóley Stefánsdóttir nú 15. febrúar bæði úr krabbameini sem greindist allt of seint.
Ég gæti haft nafnalistann langan en læt lesendum eftri að bæta nöfnunum við því þetta eru ekki einu undantekningar frá heimsklassa heilbrigðisþjónustu.
Það sem þessir þrír einstaklinga eiga sameiginlegt er að hafa í mörg ár gengið milli lækna, apóteka og heilbrigðisstofnana án þess að fá bót meina sinna. Þrátt fyrir ákafa leit þeirra að lausn kom stóri dómur seint og um síðir þannig að tjónið varð óafturkræft. Öll höfðu þau svipuð einkenni sem þú jafnvel kannast við. Fálmkenndar tilraunir og greiningar hámenntaðra sérfræðinga hjálpuðu þeim ekkert en kostuðu sitt.
Hvað klikkaði hjá þessum þremur sem ætti ekki að klikka hjá þér og mér?
Nýr spítali á nú að laga þetta allt.
Þau þrjú skrifuðu blogg og greinar öðrum til lífs, þau hvetja sjúklinga til að standa með sjálfum sér og gefast ekki upp. Einnig skrifa þau heilbrigðisstarfsfólki sem mögulega getur lagfært skaðlega heilbrigðisþjónustu og þar með bjargað öðrum. Hvað þarf að gera svo koma meigi í veg fyrir að fólk falli frá í blóma lífsins? Hefur einhver innan kerfisins heyrt og skilið þessar sögur? Atli skildi eftir sig bók (Dagbók rokkstjörnu) svo þetta færi örugglega ekki í gröfina með honum. Svo mikilvægt var þetta að hann notaði síðustu kraftana til að koma þessu skilmekilega frá sér. Ennþá er tækifæri til að heyra.
Þegar heilbrigðiskerfið bregst er nánast útilokað að ná fram rétti sínum af augljósri ástæðu. Fólk er mjög veikburða og fjárþurfi eftir langvarandi veikindi og áföll. Orkunni og fjármunum þarf að forgangsraða í lífið en ekki í þref við kerfi sem er upptekið við að vera best í heimi.
Tíminn einfaldlega leifir ekki slíkt, hann er að renna út. Þar með sleppur kerfið við allan lærdóm og tækifæri glatast til að bæta fyrir tjónið. Þó svo að rík réttlætiskennd sé til staðar er tímanum illa varið gegn ofurafli þekkingar og fjármagns. Eftirlifendur fá engan aðgang að gögnum ef þeir skyldu vilja fylgja málum eftir við andlát. Kerfið sigrar þannig alltaf og lærir ekkert. Raunverulegur réttur sjúklinga er enginn. Til þess að tryggja réttarstöðu þeirra þarf virkan umboðsmann líkan þeim í löndunum sem við berum okkur saman við. Hann mundi safna gögnum, greiða veg sjúklings og sjá um að réttur hans sé tryggður. Á meðan styrkist sjúklingurinn og fjölskyldan í endurhæfingu og nýtir orkuna í eitthvað uppbyggilegt í staðin fyrir tortíminguna sem kerfið býður okkur uppá í dag. Eftir eigin reynslu get ég ekki ráðlagt neinum að leita réttar síns, það er illa farið með dýrmætan tíma og þú einn situr uppi með enn stærra tjón og endalaus vonbrigði. Það fer illa með heilsuna og fjárhaginn. Eitt er víst að nýr spítali hjálpar okkur ekkert í þessum efnum og grátlegt að stjórnendur og alþingismenn halda að þeir séu að kaupa okkur öryggi og betri þjónustu. Það er blekkingarleikur með stjórnendur Lsh í fararbroddi. Sér til fulltingis hefur spítalinn greiðan aðgang að fjölmiðlum sem eru svo huglausir að fjalla lítið sem ekkert um hina hliðina sem skyggir á draumsýnina um nýjan hátæknispítala.
Ef þú þekkir einhvern sem er að fá skaðlega þjónustu skaltu gefa þér tíma til að standa með honum. Slóðin er vægast sagt grýtt og stuðningur lífsnauðsynlegur í mörgum tilfellum. Láttu í þér heyra. Þannig stendur þú einnig með Atla, Elísabetu og Matthildi. Sannleikurinn þarf að koma fram í dagsljósið. Hér þarf sameiginlegt átak til að ná áheyrn til betri heilbrigðisþjónustu. Hús og tæki eru gagnslaus ef ekki er hlustað.
Það sætir furðu að verkefnið "Betri heilbrigðisþjónustu" sem heilbrigðisráðuneytið hefur alfarið falið læknum, inniheldur ekkert sem heitir að heyra eða bregðast við reynslu sjúklinga sem fórna síðustu orkunni í að upplýsa um svo mikilvæg tækifæri til að bæta þjónustuna.
Fínt kerfi ef ekki væru allir þessir sjúklingar.
Athugasemdir