Eins og þið eruð líklega búin að komast að þá er ómögulegt að ná fram raunhæfri leiðréttingu launa með núverandi samninga- og verkfallskerfi. Þið eruð að spila við ríkið á heimavelli þess, þeirra leik með þeirra reglum. Ríkið skammtar sér öll bestu spilin og þegar þið virðist hafa eitt tromp á hendi þá breytir ríkið reglunum eftir hentugleik.
Vandinn er sá að ríkið hefur engan vilja til að semja. Ríkið notar samninganefndina eins og laxveiðimann sem viljandi þreytir laxinn og brýtur smám saman niður baráttuþrekið (og tæmir verkfallssjóðinn í leiðinni).
En sumir laxar sleppa! Ef þið viljið sleppa út úr þessu samningaströgli fyrir fullt og allt þurfið þið að vera samstíga, en leiðin út er sáraeinföld:
- Þið stofnið ykkar eigin sjálfseignarstofnun og skilgreinið hennar markmið, til dæmis „að bæta kjör íslenskra hjúkrunarfræðinga“.
- Sjálfseignarstofnunin setur á fót starfsmannamiðlun hjúkrunarfræðinga og ræður framkvæmdastjóra til að fylgja hugmyndinni eftir.
- Þið skráið ykkur í vinnu hjá starfsmannamiðluninni, óskið eftir vinnu á sömu deild og þið vinnið á í dag og með sama starfshlutfall.
- Starfsmannamiðlunin skipar launanefnd úr röðum hjúkrunarfræðinga sem býr til réttláta/rausnarlega launatöflu sem þið eruð tilbúin að vinna eftir.
- Starfsmannamiðlunin reiknar út hvað útseldur tími þarf að kosta til að geta borgað hjúkrunarfræðingunum sínum laun samkvæmt nýrri launatöflu og sendir til allra vinnuveitenda hjúkrunarfræðinga í opinbera geiranum. Gott væri að rukka frekar of mikið en of lítið til að vera viss! Eins er nauðsynlegt að byggja upp öryggissjóð til að geta borgað væntanleg fæðingarorlof, sjúkrapeninga o.s.frv.
- Síðan skrifið þið fallegt bréf til ykkar yfirmanns og segið honum að ykkur hafi boðist ný vinna á mikið hærri launum sem þið bara getið ekki hafnað og því ætlið þið því miður að segja upp starfi ykkar.
- Svo bíðið þið róleg og njótið þess að vera búin að breyta leikreglunum. Nú er það ríkið sem þarf að manna margar stöður hjúkrunarfræðinga. Þeir geta prófað að auglýsa á Norðurlöndunum eftir hjúkrunarfræðingum. Kannski finna þeir óvænt pening undir koddanum og bjóða ykkur rausnarlega hækkun á núverandi taxta! (af góðmennskunni einni saman).
- Á endanum mun ríkið neyðast til að semja við starfsmannamiðlunina. Þessi samningur er að sjálfsögðu ekki um kaup og kjör enda er það ekki prúttanlegt, heldur einungis í hversu langan tíma í einu ríkið vill tryggja sér ykkar þjónustu.
- Ef það verður hagnaður af rekstri starfsmannamiðlunarinnar umfram söfnun í nauðsynlegan öryggissjóð myndi ég mæla með að það verði sett í lög að allur umframhagnaður verði greiddur út sem jólabónus í lok árs í hlutfalli við unna tíma á árinu.
Þetta snýst allt um samstöðu. Það er nauðsynlegt að þið séuð samstíga og öll á skrá hjá sömu miðluninni. Annars mun ríkið ota saman starsmannamiðlunum til að lækka taxta. Einnig getur þá ríkið aukið óstöðugleika með því að versla við miðlanirnar til skiptis og reynt að lokka ykkur til baka í „öruggara starfsumhverfi“.
Ég veit að mörg ykkar eruð mikið á móti einkavæðingu í heilbrigðisgeiranum. Þið hin sömu getið huggað ykkur við það að sjálfseignarstofnun greiðir ekki arð og enga skatta því hún hefur enga eigendur. Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar ber að fara eftir opinberum markmiðum hennar og fela framkvæmdastjóra verkefni í samræmi við þau en lögum samkvæmt er bannað að bruðla með fjármuni sjálfseignarstofnanna.
Athugasemdir