Nýtt efni
Viktor Traustason tekur lítið mark á skoðanakönnunum
Viktor Traustason forsetaframbjóðandi segist taka lítið mark skoðanakönnunum enn sem komið er. Í síðasta þætti Pressu mætti Viktor ásamt öðrum frambjóðendum til þess að ræða framboð sitt og helstu stefnumál sín. Viktor telur sig geta náð kjöri og benti á að flestar kannanir hafi verið framkvæmdar áður en honum gafst tækifæri á að kynna sig fyrir kjósendum.
„Finnst ég vera að heyja dauðastríð“
Nígerísku konurnar þrjár sem flúðu til Íslands undan mansali fyrir nokkrum árum verða sendar úr landi í kvöld. Þær eru í fangelsinu á Hólmsheiði og ræddu við Heimildina í síma síðdegis. Ein kvennanna er alvarlega veik og segist líða eins og hún sé að heyja dauðastríð. Þær segja að læknir verði með í för þegar þær verða fluttar úr landi. „Læknir á að sjá til þess að hún andi út fyrir lofthelgi Íslands,“ segir íslensk vinkona kvennanna þriggja.
Á vettvangi með kynferðisbrotadeildinni: Skaðleg áhrif kláms
„Við sjáum í rauninni allan þennan ljótleika sem tilheyrir þessum brotaflokki gerast í nánum samböndum,“ segir Jenný Krístín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ari Trausti Guðmundsson
Námur í sjó?
Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísindamaður og fyrrum þingmaður Vinstri grænna, skrifar um námurekstur á hafsbotni og áhrifunum sem slíkur iðnaður gæti haft á vistkerfin til lengri og skemmri tíma. Áhugi stjórnvalda og stórfyrirtækja á slíkri auðlindanýtingu hefur aukist á undanförnum árum en Ari varar við því að slík starfsemi kunni að vera ósjálfbær.
Reyndi á fæðingarorlofslöggjöfina þegar hún varð barnshafandi – fyrst ráðherra
Þegar Katrín Jakobsdóttir varð ófrísk á sama tíma og hún gegndi ráðherraembætti þurfti að láta á fæðingarorlofslöggjöfina reyna. Nokkuð var þrýst á Katrínu að víkja, en í ljós kom að ráðherrar eiga rétt á fæðingarorlofi líkt og aðrir.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
„Mögnuð“ breyting verður á huganum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þunglyndislyf á þau sem glíma við vægt eða miðlungs þunglyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun tilfinninga, deyfa sársauka og valda sælutilfinningu. Steinn B. Gunnarsson íþrótta- og lýðheilsufræðingur veitir innsýn í áhrifin og ráð til að fá hugann til að halda sig við hreyfinguna.
Halla Tómasdóttir hótar að endurtaka leikinn frá 2016
Halla Hrund Logadóttir er enn með forystu í kapphlaupinu á Bessastaði og Katrín Jakobsdóttir er skammt undan. Báðar hafa hins vegar verið að tapa fylgi og sömu sögu er að segja um Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Sú sem hefur verið að taka mest til sín er Halla Tómasdóttir.
84 ár í dag frá orrustunni við Sedan: Réðust örlög stríðsins á þessum degi?
Þvert ofan í það sem margir halda hafði þýski herinn hvorki yfirburði í mannafla né tækjabúnaði árið 1940. Sigur Þjóðverja við Sedan og þar með fall Frakklands var alls ekki óhjákvæmilegur.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
Mikið er skeggrætt um fjárhagsstöðu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þegar horft er á skuldastöðu þess hluta reksturs þeirra sem er fjármagnaður með skatttekjum er staðan skást í Kópavogi og Reykjavík en versnar hraðast í Garðabæ og á Seltjarnarnesi, þar sem veltufé frá rekstri var neikvætt í fyrra. Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem var með veltufjárhlutfall, sem segir til um getu sveitarfélags til að borga skuldir sínar, umfram það sem æskilegt er. Heimildin rýndi í ársreikninga sveitarfélaganna.
„Óviðunandi“ að bíða í þrjú ár – Var læstur inni árum saman
Þriggja ára bið eftir ráðgjöf frá sérfræðiteymi um aðgerðir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk er óviðunandi að mati félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Það var hins vegar sá tími sem Akureyrarbær beið eftir ráðgjöfinni í máli Sveins Bjarnasonar sem var læstur inni í íbúð á vegum bæjarins. Ráðuneytið ítrekar þó ábyrgð þeirra sem beita slíkri nauðung.
Hvernig er best að byrja að hlaupa?
Aðeins eitt skref tekur að byrja hlaup, en hér eru leiðbeiningar um bestu leiðina til að viðhalda samstarfsvilja líkamans.
Menning mótmæla í Bandaríkjunum gleymd og grafin
Nútímasaga Bandaríkjanna er mótuð af kröftugum mótmælahreyfingum. Mótmæli gegn Víetnamstríðinu og fyrir réttindabaráttu þeldökkra og annarra minnihlutahópa höfðu áhrif á stjórnmálavitund heilla kynslóða. Mótmæli háskólanema þessa dagana gegn fjárhagslegum tengslum háskóla sinna við Ísrael og gegn stríðinu á Gaza mæta þó harkalegri valdbeitingu yfirvalda. Sögulegi baksýnisspegillinn dæmir slíkar aðgerðir hart.
Læknir segir lífi Blessing ógnað með brottvísun
Læknir á Landspítala segir að það sé óforsvaranlegt með öllu út frá læknisfræðilegu sjónarmiði að Blessing Newton frá Nígeríu verði vísað úr landi á morgun. Hún sé með sex æxli í legi og lífsnauðsynlegt að hún hafi greiðan aðgang að bráðaþjónustu. Blessing er nú í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði að sögn lögmanns hennar. Hann segir læknisvottorðið þess eðlis að ekki sé annað hægt en að fresta framkvæmd brottvísunar.