Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

„Það er verið að blekkja fólk og auka skerðingar“

Hart var tek­ist á um aukn­ar skerð­ing­ar í al­manna­trygg­inga­kerf­inu í óund­ir­bún­um fyr­ir­spurn­ar­tíma.

„Það er verið að blekkja fólk og auka skerðingar“

„Annaðhvort hefur Framsóknarflokkurinn látið Sjálfstæðisflokkinn plata sig eða þá að Framsóknarflokkurinn styður stefnu samstarfsflokksins um aukinn ójöfnuð á Íslandi.“

Þetta sagði Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, þegar rætt var um breytingartillögur ríkisstjórnarinnar við almannatryggingafrumvarp félagsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. 

„Með breytingartillögum meiri hlutans við almannatryggingafrumvarpið er verið að auka muninn á greiðslum til einhleypra lífeyrisþega og lífeyrisþega sem eru í sambúð,“ sagði Sigríður í fyrirspurn til Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, og bætti við: „Til að ná markmiðinu um 280.000 kr. fyrir þá sem búa einir árið 2017 eru skerðingar á eldri borgara og öryrkja auknar frá því sem nú er. Þessi munur og skerðingarnar munu aukast enn frekar árið 2018 nái tillögur meiri hlutans fram að ganga. Mér leikur hugur á að vita hvers vegna hæstvirtur félagsmálaráðherra er tilbúin að snuða lífeyrisþega í sambúð um eðlilega hækkun og hvers vegna hún er tilbúin að auka skerðingar hlutfallslega á þá sem búa einir.“

Eygló Harðardóttir svaraði ekki spurningum Sigríðar Ingibjargar efnislega en sagðist hafa „lagt mjög mikla áherslu á, að tryggja að lífeyrisþegar fái sambærilegar kjarabætur og búið var að semja um á almennum vinnumarkaði þannig að þeir sem minnst hafa í kerfinu okkar, alveg eins og á vinnumarkaðnum, mundu fá sambærilegar kjarabætur“.

Í framhaldinu benti Sigríður Ingibjörg á að spurningum hennar hefði ekki verið svarað. „Hæstvirtur ráðherra leggur til að fólk sem er í sambúð, lífeyrisþegar, fái minni hækkun hlutfallslega en þeir sem búa einir. Hún er líka að taka ákvörðun um að auka hlutfallslega skerðingar á þá sem búa einir. Hún talar um að þetta sé kjarabót,“ sagði hún og bætti við: 

„Sannarlega er verið að hækka greiðslurnar en það er gert með nánasarlegum hætti, það er verið að blekkja fólk, það er verið að auka skerðingar og auka mun eftir sambúðarformi. Ég óska eftir því að ráðherra svari spurningum mínum. Þær eru tvær. Í fyrsta lagi: Af hverju er verið að auka hlutfallslegan mun á milli einhleypra og fólks í sambúð? Í öðru lagi: Af hverju er verið að auka hlutfallslegar skerðingar á þá sem búa einir?“

Eygló Harðardóttir sagði þá að það væri „einfaldlega rangt sem þingmaðurinn heldur hér fram“ enda væri verið að „bæta verulega í hvað snertir lífeyrisþega“. Hún útskýrði ekki í hverju rangfærslan fælist, en sagði að samkvæmt félagsvísum væri staða fólks sem býr eitt verri en þess sem byggi með öðrum.

„Það eru mjög fáir — við erum að kalla eftir upplýsingum um það — sem eru í þeirri stöðu að vera í sambúð með öðrum sem munu ekki njóta góðs af þeim breytingum sem við erum að tala um,“ sagði Eygló og bætti við: „Við erum líka að fara í verulegar hækkanir á bótum á grundvelli 69. gr. þannig að allir munu koma betur út á grundvelli styrkrar efnahagsstjórnunar hjá þessari ríkisstjórn.“ Þegar Eygló gekk úr pontu kallaði Sigríður Ingibjörg: „Þú svaraðir ekki spurningunum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafs­son um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sextánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dótt­ir, að­stoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafs­son, sér­fræð­ing­ur hjá Efl­ingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs kon­ar veð­mál, þar sem von­ir væru bundn­ar við hjöðn­un verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­leg­um kjara­bót­um.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Sam­tök at­vinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á fé­lags­menn VR

Stjórn Sam­taka at­vinnu­lífs­ins hef­ur sam­þykkt ein­róma að halda at­kvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á fé­lags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins sem birt­ist fyr­ir skömmu seg­ir að verði verk­bann­ið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með að­ild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerð­um sem VR hef­ur boð­að með­al starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelanda­ir
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeyp­is skóla­mál­tíð­ir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt um­fangs­mesta verk­efn­ið sem fólg­ið er í að­gerðapakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyr­ir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjáls­ar skóla­mál­tíð­ir í grunn­skól­um. Tals­mað­ur Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga seg­ir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyr­ir breyt­ing­arn­ar muni fá frí­ar skóla­mál­tíð­ir. Ekki ligg­ur fyr­ir hvernig verk­efn­ið verð­ur út­fært í skól­um sem hafa út­vistað mat­ar­þjón­ustu sinni.
Samninganefnd VR samþykkir atkvæðagreiðslu um verkfall
FréttirKjaramál

Samn­inga­nefnd VR sam­þykk­ir at­kvæða­greiðslu um verk­fall

Samn­inga­nefnd VR sam­þykkti í gær að halda at­kvæða­greiðslu um verk­föll með­al flug­vall­ar­starfs­manna sem starfa á Kefla­vík­ur­flug­velli. Um er að ræða um 150 starfs­menn sem starfa all­ir fyr­ir Icelanda­ir og sinna með­al ann­ars inn­rit­un, tösku­mót­töku, brott­för­um og þjón­ustu vegna týnds far­ang­urs. At­kvæða­greiðsl­an fer fram á mánu­dag­inn eft­ir helgi og verði vinnu­stöðv­un sam­þykkt er gert ráð fyr­ir að verk­föll hefj­ist 22. mars.
Tæplega helmingur launafólks á í fjárhagslegum erfiðleikum
FréttirKjaramál

Tæp­lega helm­ing­ur launa­fólks á í fjár­hags­leg­um erf­ið­leik­um

Sam­kvæmt nýrri könn­un Vörðu – Rann­sókn­ar­stofn­un­ar vinnu­mark­að­ar­ins á 40 pró­sent launa­fólks erfitt með að ná end­um sam­an. Skýrsl­an, sem kynnt var á fundi í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu í dag, leið­ir ljós að kjör til­tek­inna hópa sam­fé­lags­ins hafi versn­að um­tals­vert milli ára. Tæp­lega fjórð­ung­ur ein­hleypra for­eldra býr við efn­is­leg­an skort og fjár­hags­staða kvenna er verri en á karla á öll­um heild­ar­mæli­kvörð­um rann­sókn­ar­inn­ar. Þá mæl­ist staða inn­flytj­enda verri í sam­an­burði við inn­fædda Ís­lend­inga fjórða ár­ið í röð.

Mest lesið

„Mér hefur ekki verið nauðgað“
1
Fréttir

„Mér hef­ur ekki ver­ið nauðg­að“

„... þó að fjór­ar rík­is­stjórn­ir hafi geng­ið úr skugga um að flokka, bæla nið­ur og jafn­vel þurrka út eig­in­lega öll mest af­ger­andi sönn­un­ar­gögn­in tókst þeim ekki að halda lok­inu á sam­ráði og mis­ferli sínu,“ skrif­ar pró­fess­or Nils Melzer sem rann­sak­aði mál Ju­li­an Assange sem sér­stak­ur skýrslu­gjafi fyr­ir Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar. Skýrsl­an kom út sem bók.
Halla Tómasdóttir
10
Aðsent

Halla Tómasdóttir

Með mennsk­una að leið­ar­ljósi

„Ég hvet ís­lensk fyr­ir­tæki til að velta fyr­ir sér hvernig þau geti lagst á ár­ar um að gefa fólki til­gang og tæki­færi, þeim og sam­fé­lag­inu til góðs,“ skrif­ar Halla Tóm­as­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi. Hún skrif­ar stutt­lega um sögu Hamdi Ulukaya sem er tyrk­nesk­ur smali sem flúði til Banda­ríkj­anna til að læra ensku. Hann stofn­aði stór fyr­ir­tæk­ið Chobani sem er í dag stærsti fram­leið­andi grísks jóg­úrts í Banda­ríkj­un­um og hvernig hann. Þar ræð­ur hann helst inn inn­flytj­end­ur og flótta­fólk til vinnu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
3
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
9
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár