Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Segir að eineltið hafi „nákvæmlega ekkert með skipulagsbreytingar að gera“

Lög­mað­ur lög­reglu­manns­ins sem hrökkl­að­ist frá störf­um vegna fram­göngu Sig­ríð­ar Bjark­ar Guð­jóns­dótt­ur lög­reglu­stjóra ger­ir at­huga­semd­ir við yf­ir­lýs­ingu henn­ar vegna máls­ins.

Segir að eineltið hafi „nákvæmlega ekkert með skipulagsbreytingar að gera“
Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd: Af Facebook-síðu lögreglunnar

Kristján B. Thorlacius, lögmaður lögreglumanns af fíkniefnasviði sem nýlega kvartaði undan einelti Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lögreglustjóra, segir fráleitt að hún skuli láta í veðri vaka að kvörtunina megi rekja til skipulagsbreytinga hjá embættinu. „Þær gerræðislegu ákvarðanir sem lögreglustjóri tók í máli umbjóðanda míns höfðu nákvæmlega ekkert með skipulagsbreytingar að gera,“ segir hann. 

Eins og Stundin greindi frá í síðustu viku hefur lögmaðurinn sent starfsmannaskrifstofu lögreglunnar og innanríkisráðuneytinu bréf þar sem því er lýst hvernig Sigríður Björk hótaði manninum stöðulækkun, svipti hann lögreglufulltrúastöðu og dró til baka ákvörðun um að hann fengi að sækja sérhæfingarnámskeið erlendis. Allt þetta gerðist í vitna viðurvist eftir að lögreglumaðurinn lét í ljós efasemdir um réttmæti ásakana sem bornar höfðu verið á samstarfsmann hans, þann mann sem kallaður hefur verið lögreglufulltrúi x í umfjöllun Stundarinnar og var hreinsaður af ásökunum um brot í starfi og óeðlileg samskipti við aðila úr fíkniefnaheiminum fyrr í sumar

Eftir að Stundin greindi frá þessu sendi Sigríður Björk frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar um málið. Þar segir hún að ekki séu allar ákvarðanir lögreglustjóra líklegar til vinsælda og síst þær sem feli í sér breytingar á verkefnum eða valdsviði einstaklinga. Þá minnist hún á skipulagsbreytingar og umbreytingarverkefni sem séu í gangi hjá verkefninu. „Ég hef gert margar breytingar frá því að ég tók við sem lögreglustjóri og miða þær allar að því að gera lögregluna aðgengilegri, skipurit flatara, boðleiðir styttri og en fyrst og fremst að bæta þjónustu okkar við borgarana. Einnig hef ég lagt aukna áherslu á ákveðna málaflokka eins og kynferðisbrotamál, mansal og heimilisofbeldismál og þar er starfsfólk embættisins búið að vinna frábært starf í erfiðum verkefnum,“ segir Sigríður Björk í yfirlýsingu sinni og bætir við: „Líkt og títt er um slíkar breytingar geta þær verið umdeildar, hitt í mark hjá sumum en valdið óánægju annarra. Ég hef hlustað á ábendingar lögreglumanna en mikið af óánægjunni hefur borist frá nafnlausum aðilum í gegnum fjölmiðla.“

Stundin bauð lögmanni og talsmanni lögreglumannsins sem kvartaði undan einelti lögreglustjóra að bregðast við yfirlýsingunni. Hann sendi blaðamanni eftirfarandi tölvupóst:

Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins sendi fjölmiðlum fyrir helgi yfirlýsingu sem virðast vera viðbrögð við umfjöllun fjölmiðla um kvörtun umbjóðanda míns um einelti af hennar hálfu. Þar lætur lögreglustjóri í veðri vaka að kvörtun umbjóðanda míns megi rekja til skipulagsbreytinga hjá embættinu. Rétt er að halda því til haga að þær gerræðislegu ákvarðanir sem lögreglustjóri tók í máli umbjóðanda míns höfðu nákvæmlega ekkert með skipulagsbreytingar að gera.  Þær má alfarið og eingöngu rekja til þess að umbjóðandi minn vildi ekki draga til baka afstöðu sína til tiltekinna starfsmanna embættisins, sem farið höfðu fram gegn lögreglufulltrúa við embættið með rangfærslum og ósannindum. Það liggur fyrir, staðfest í tölvupósti hennar sjálfrar, að lögreglustjóri bauð umbjóðanda mínum ítrekað að skipta um skoðun í málinu og hverfa frá sannfæringu sinni. Ef hann gerði það þá myndi málið ekki hafa nein áhrif á stöðu hans við embættið.

Vegna ummæla lögreglustjóra um nafnlausar ábendingar lögreglumanna í fjölmiðlum, þá er rétt að benda á að umbjóðandi minn hefur lagt sínar kvartanir um framgang lögreglustjóra í málinu fram undir fullu nafni og á það bæði við um þær kvartanir sem hann hefur nú gert með formlegum hætti til LRH og innanríkisráðuneytisins, sem og þá fundi sem hann hefur áður átt með lögreglustjóra og fulltrúum innanríkisráðuneytisins vegna málsins.    

Tölvupósturinn sem lögmaðurinn vísar til hér að ofan verður birtur á vef Stundarinnar um helgina. Ítarlega er fjallað um málið í blaðinu sem kemur út á morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan mælir aukna ógn á hryðjuverkum í nýju áhættumati
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­regl­an mæl­ir aukna ógn á hryðju­verk­um í nýju áhættumati

Grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra kynnti fyr­ir skömmu til sög­unn­ar nýtt áhættumat sem legg­ur mat á ógn sem staf­ar af hryðju­verk­um hér á landi. Sam­kvæmt nýju áhættumati er hættu­stig­ið hér á landi met­ið á þriðja stigi af fimm sem þýð­ir að til stað­ar sé ásetn­ing­ur og geta til þess að skipu­leggja hryðju­verk hér á landi.
Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­regl­an seg­ir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meint­um IS­IS-liða

Þrír menn voru hand­tekn­ir 12. janú­ar síð­ast­lið­inn í um­fangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Ak­ur­eyri. Tveim­ur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­að­ur um að­ild að IS­IS-hryðju­verka­sam­tök­un­um, var send­ur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lög­regla hef­ur lít­ið tjáð sig um mál­ið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svör­um lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­inn­ar er þess þó get­ið að lög­regla hafi ekki ver­ið heim­iilt að nota all­ar upp­lýs­ing­arn­ar sem var miðl­að til henn­ar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverf­is.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ing­ur yf­ir­stjórn­enda lög­regl­unn­ar fékk stöð­una án aug­lýs­ing­ar

Ít­rek­að er vikist und­an meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þeg­ar ráð­ið er í yf­ir­manns­stöð­ur hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekk­ið eru breyt­ing­ar og aug­lýs­ing­ar á yf­ir­manna­stöð­um sér­stak­lega vel til þess falln­ar að stuðla að óró­leika hjá embætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hef­ur gagn­rýnt verklag­ið.

Mest lesið

Við hvaða götu býr Ragnar? Reykás
1
Helgi skoðar heiminn

Við hvaða götu býr Ragn­ar? Reykás

Sauð­kræk­ing­ur­inn Ragn­ar Páll Árna­son, sem starfar hjá Öss­uri, býr í ná­grenni höf­uð­stöðva fyr­ir­tæk­is­ins, við göt­una Reykás. Seg­ist ekki hafa ætl­að að ílengj­ast þar, en kann nú hvergi bet­ur við sig. Siggi Sig­ur­jóns, guð­fað­ir Ragn­ars Reykáss, kann vel að meta sög­una af „nafna“ sín­um. Hann á sjálf­ur pín­lega en um leið drep­fyndna sögu tengda göt­unni í Ár­bæn­um.
Segja leigusala nýta sér neyð flóttafólks til að okra á Bifröst
2
Fréttir

Segja leigu­sala nýta sér neyð flótta­fólks til að okra á Bif­röst

Íbú­ar á Bif­röst segja fyr­ir­tæki sem leig­ir út gamla stúd­enta­garða nýta sér neyð þeirra sem þar búa til að standa í óhóf­leg­um verð­hækk­un­um. Meiri­hluti íbú­anna eru flótta­menn, flest­ir frá Úkraínu. „Við höf­um eng­an ann­an mögu­leika. Við get­um ekki bara far­ið.“ Leigu­sal­inn seg­ir við Heim­ild­ina að leigu­verð­ið þyki af­ar hag­stætt.
„Það er ekkert svo ógeðslegt og hryllilegt að það sé ekki til“
4
FréttirÁ vettvangi

„Það er ekk­ert svo ógeðs­legt og hrylli­legt að það sé ekki til“

„Það er her úti í hinum stóra heimi, óskipu­lagð­ur og skipu­lagð­ur sem vinn­ur við það að reyna að búa til nú fórn­ar­lömb og þeir svíf­ast bók­staf­lega einskis,“ seg­ir Hall­ur Halls­son rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur. Hann vinn­ur í deild sem sér­hæf­ir sig í að mynd­greina barn­aníðs­efni. Í þátt­un­um Á vett­vangi fylg­ist Jó­hann­es Kr. Kristjáns­son með störf­um kyn­ferð­is­brota­deild­ar lög­regl­unn­ar.
Ingrid Kuhlman
9
Aðsent

Ingrid Kuhlman

Hinn kaldi raun­veru­leiki: Þess vegna þurf­um við að eiga mögu­leika á dán­ar­að­stoð

„Á síð­ustu stund­um lífs síns upp­lifa sum­ir deyj­andi ein­stak­ling­ar óbæri­leg­an sárs­auka og önn­ur al­var­leg ein­kenni sem valda þján­ingu.“ Ingrid Ku­hlm­an skrif­ar í að­sendri grein um lík­am­lega og til­finn­inga­lega van­líð­an sem deyj­andi ein­stak­ling­ar með ban­væna sjúk­dóma upp­lifa við lífs­lok.
Þingið samþykkir tillögu um skipun rannsóknarnefndar um Súðavíkurflóðið
10
FréttirSúðavíkurflóðið

Þing­ið sam­þykk­ir til­lögu um skip­un rann­sókn­ar­nefnd­ar um Súða­vík­ur­flóð­ið

Al­þingi sam­þykkti rétt í þessu að skipa rann­sókn­ar­nefnd vegna snjóflóðs­ins sem féll á Súða­vík í janú­ar 1995. Fjöl­mörg­um spurn­ing­um er ósvar­að um það hvernig yf­ir­völd brugð­ust við í að­drag­anda og eft­ir­leik flóð­anna. Fjór­tán lét­ust í flóð­inu þar af átta börn. Að­stand­end­ur hinna látnu hafa far­ið fram á slíka rann­sókn síð­an flóð­ið varð. Nýj­ar upp­lýs­ing­ar í mál­inu komu fram í rann­sókn Heim­ild­ar­inn­ar fyr­ir ári.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
3
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
10
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár