Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Sækja innblástur í fasteignasíður

Tón­list­ar­mað­ur­inn Frið­rik Dór Jóns­son og Lísa Hafliða­dótt­ir sál­fræð­inemi búa í ný­upp­gerðri íbúð í Hlíð­un­um. Stíl­inn kenna þau í létt­um dúr við IKEA en víða má hins veg­ar finna ís­lenska hönn­un og róm­an­tísk smá­at­riði. Þau hafa bæði mik­inn áhuga á fast­eign­um og dreym­ir um að gera upp gam­alt hús í Hafnar­firð­in­um.

Haustrigningin lemur á gluggunum og víða hefur verið kveikt á kertum þegar blaðamann og ljósmyndara ber að garði. Stemningin er í senn notaleg og afslöppuð. Á gólfinu í stofunni liggja fjólubláar, gular og grænar blöðrur en nokkrum dögum áður var tveggja ára afmæli einkadótturinnar haldið. 
Lísa og Friðrik höfðu í nokkur ár leigt íbúð í miðbænum en keyptu íbúðina í Hlíðunum haustið 2013, einungis nokkrum dögum eftir að dóttir þeirra kom í heiminn. Raunar voru þau mætt á opið hús daginn eftir að þau komu heim af spítalanum. „Ég man ekki einu sinni eftir því,“ segir Lísa og hlær. Hin margumtalaða brjóstaþoka hefur verið þar að verki. „Við vorum ekki beint að leita en mamma er mjög virk á fasteignasíðunum, eins og ég reyndar sjálfur, og hún benti okkur á þessa íbúð,“ segir Friðrik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu