Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Vigdís: „Allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafnklárar og þeir“

Vig­dís bað æsk­una um að standa vörð um þau mann­rétt­indi, nátt­úru og ís­lenska tungu. Fríða Rós Valdi­mars­dótt­ir sagði kröf­ur kvenna eru þagg­að­ar nið­ur líkt og of­beldi sem kon­ur eru beitt­ar hef­ur ver­ið þagg­að nið­ur í gegn­um tíð­ina.

Vigdís: „Allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafnklárar og þeir“

„Frelsið, jafnréttið og lýðræðið er ekki sjálfgefið,“ sagði frú Vigdís Finnbogadóttir, í ávarpi sem hún flutti af svölum Alþingis í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna í dag.

Þar talaði hún til æskunnar og ítrekaði mikilvægi þess að gæta náttúru landsins og íslenskrar tungu, þar sem hvorugt yrði endurheimt ef það væri einu sinni glatað. „Einstök víðerni á hálendi Íslands vinnast ekki aftur ef þau hafa einu sinni spillst.“

Vigdís ræddi einnig um jafnréttisbaráttuna og sagði að þar væri verk óunnið. Þótt jafnrétti hafi náðst með lögum vanti enn talsvert upp á að jafnrétti ríki í raun. „Allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafnklárar og þeir en þeir verða að hafa hugfast að það á ekki aðeins við um þeirra eigin dætur og systur.“

Ræðu Vigdísar er hægt að lesa í heild sinni hér að neðan. 

Í framtíðinni leynast ekki aðeins loforð 

„Það er gaman að vera til þegar fagnað er og minnst sögulegra atburða á Íslandi. Að þessu sinni er það 100 ára afmæli kosningaréttar og kjörgengi kvenna – og hvers vegna erum við að fagna sjálfstæðri hugsun kvenna og jafnræði til að velja hvernig eigi að stýra sjálfu þjóðfélaginu? Jú, það er af því að frelsið, jafnréttið og lýðræðið er ekki sjálfgefið. Það skynjum við vel í daglegum fréttum frá öðrum heimshlutum. Svo afar fátt af því sem okkur finnst sjálfsagt í daglegu lífi hefur komið inn í samfélag okkar eins og regn af himnum ofan heldur áunnist með óþreytandi elju og framsýni þeirra sem á undan okkur komu.

Jú, það er af því að frelsið, jafnréttið og lýðræðið er ekki sjálfgefið.

Þessi dagur 19. júní þegar konur fengu kosningarétt á Íslandi fyrir 100 árum er minningardagur okkar allra, karla sem kvenna, yngri sem eldri, táknrænn fyrir þjóðarhag. Hann mun standa sem fyrirmynd í hugum ótal þjóða úti í heimi þegar af honum fréttist um heimsbyggðina. Fyrirmynd um jafnrétti kvenna og karla til að kjósa sér þjóðfélagsskipan og landsstjórn. Þessi hundrað ára minningardagur kosningarréttar kvenna á Íslandi mun vissulega fréttast víða í opnum heimi samtíðarinnar.

Vörðurnar á vegferð íslenskra kvenna í hundrað ár eru ótal margar. Þær felast í margvíslegum réttindum sem náðst hafa. Körlum og konum eru tryggð sömu mannréttindi í stjórnarskrá og í lögum. Bæði kyn hafa sömu möguleika og tækifæri til að leita sér menntunar – og konur hafa svo sannarlega nýtt sér það vel.

Enn eru þó mörg verkefni sem blasa við. Það hefur til dæmis tekið nær alla þessa margnefndu öld að ná því að um 40 prósent þingmanna eru nú konur. Allt fram á 9. áratuginn eða í rúm sextíu ár voru aldrei fleiri en tvær til þrjár konur á þingi, svo furðulegt sem það nú kann að hljóma. Konur höfðu engu að síður öðlast sjálfstraust og beittu sér í margvíslegum félagsmálum, stofnuðu lestrarfélög út um allt land og áttu meðal annars frumkvæði að bæði byggingu Landspítalans og Hvítabandsspítalans á Skólavörðustíg. En þær létu sér nægja að sitja í ótryggum sætum á framboðslistum stjórnmálaflokkanna, vera þar skemmtilegar og hjálpa körlunum að komast inn á þing.

Þótt svo eigi að heita að jafnrétti kynja á Íslandi hafi náðst með lögum vitum við að talsvert vantar upp á að jafnrétti ríki í raun.

Enn er langt í land að konur hafi sömu laun og karlar, þrátt fyrir þá staðreynd að lög sem áttu að tryggja sömu laun fyrir sömu vinnu hafi verið í gildi í meira en fjóra áratugi. Einnig virðast samskipti kynjanna ekki alltaf vera eins og við best óskum, sem birtist meðal annars í ofbeldi, ekki aðeins líkamlegu heldur einnig andlegu ofbeldi, svo ekki sé nú minnst á ofsóknir á netinu sem við fréttum að færist í vöxt. Við sem höfum svo lengi stært okkur af því að vera friðsöm þjóð.

Enn er langt í land að konur hafi sömu laun og karlar, þrátt fyrir þá staðreynd að lög sem áttu að tryggja sömu laun fyrir sömu vinnu hafi verið í gildi í meira en fjóra áratugi.

Á þessum hátíðsdegi, sem er jafnréttisdagur okkar allra, þykir mér sérstaklega vænt um að fá að beina orðum mínum til ykkar unga fólk, kynslóðarinnar sem takið við stjórn og mótun samfélagsins á næstu árum og áratugum. Ég sé ykkur öll inni í fjöldanum. Ég hef svo mikinn metnað fyrir ykkur. Fyrir ykkur, hvert einasta eitt. Það verður ykkar verkefni að gera að heilsteyptum veruleika það samfélag sem stjórnarskráin okkar kveður á um. Djúpstæð hefðin hefur tafið framgang í þeim málum. Það kemur í ykkar hlut að byggja samfélag þar sem frelsið og mannréttindin sem okkur hafa verið tryggð gilda fyrir alla, konur og karla, unga sem eldri.

Við erum fámenn þjóð í stóru landi og við eigum tvö fágæt en dýrmæt djásn sem okkur hefur verið falin til verndar – það er náttúra Íslands og þjóðtungan okkar, íslenskan. Enginn getur tekið þessi djásn frá okkur, nema við sjálf. Þess vegna fæ ég aldrei nógu oft hvatt ykkur unga fólkið í landinu til að gleyma aldrei að varðveita og vernda þessi djásn sem bæði eru þess eðlis að ef þau eru einu sinni glötuð þá verða þau ekki endurheimt. Einstök víðerni á hálendi Íslands vinnast ekki aftur ef þau hafa einu sinni spillst og ef við leyfum öðrum tungumálum eða andvaraleysi að hrifsa af okkur ríkidæmi íslenskunnar, bara af því að eitthvað annað er í augnablikinu sniðugt þá verður ekki aftur snúið. Þá getur þjóðtungan glatast á fáeinum áratugum. Ég vil því á þessum merka afmælisdegi grundvallarmannréttinda biðja ykkur æskufólk að gleyma því aldrei að standa vörð um landið og tunguna.

Á þessum degi þurfum við að heita okkur því að rækta mannréttindi sem lýðræðið hefur fært okkur í stjórnarskránni.

Ég vil líka minna okkur á að frelsið og jöfnuðurinn sem okkur er tryggður í stjórnarskránni er hvorugt sjálfgefið. Það búa ekki allar þjóðir við það lán að vera tryggð mannréttindi með sama hætti og okkur Íslendingum. Á þessum degi þurfum við að heita okkur því að rækta mannréttindi sem lýðræðið hefur fært okkur í stjórnarskránni og þau mannréttindi sem löggjafinn hefur tryggt okkur með margvíslegum lagasetningum.

Mér hefur alltaf þótt svo fallegt og táknrænt að orðið kvenréttindi rímar við orðið mannréttindi.

Þá er jafn gott að rifja það upp að allir feður og allir bræður vita að dætur þeirra og systur eru jafnklárar og þeir en þeir verða að hafa hugfast að það á ekki aðeins við um þeirra eigin dætur og systur. Þetta vissu þeir Hannes Hafsteinn og karlarnir allir sem samþykktu lög um kosningarétt kvenna fyrir einni öld og þetta vita auðvitað allir hugsandi karlar, ekki síður í dag en fyrir 100 árum.

Á þessum degi þegar við minnumst hundrað ára afmælis kosningaréttar kvenna er gott og ekki síður afar mikilvægt að hlakka til framtíðarinnar. Að vita að um aldir hafi verið sagt á Íslandi að öll él birti upp um síðir. Að setja okkur að horfa til hennar björtum augum. Svartsýnin dregur úr okkur þrek, bjartsýni eykur okkur kjark. Og að vita að í framtíðinni leynast ekki aðeins loforð heldur einnig efndir. Annars hefðu konur aldrei fengið kosningarétt á Íslandi.

Hjartanlega til hamingju með daginn.“

Auk Vigdísar fluttu þau Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvennréttindafélags Íslands, barátturæður. „Við erum stödd í miðri byltingu – enn einni samfélagsbyltingunni sem knúin er af afli kvennasamstöðu,“ sagði Fríða Rós. „Ungar konur hafa risið upp og hrifsað til sín skilgreiningavaldið. Þær brjóta af sér hlekki klámvæðingar og kúgandi kynjakerfis. Þær fara úr að ofan og hafna klámvæðingu brjósta sinna.“

Ræðu hennar má einnig lesa í heild sinni hér að neðan. 

Setjum frelsið í augnsýn

Til hamingju með daginn! Gleðilegt hátíðarár!

Í janúar leit út fyrir að þetta ár yrði eins og hvert annað hátíðarár þar sem litið yrði friðsamlega yfir sigra og ósigra kvennabaráttunnar og fagnað með hátíðlegum hætti. Engan óraði fyrir því að um miðbik ársins yrðum við stödd í miðri byltingu. Ungar konur hafa risið upp og hrifsað til sín skilgreiningavaldið. Þær brjóta af sér hlekki klámvæðingar og kúgandi kynjakerfis. Þær fara úr að ofan og hafna klámvæðingu brjósta sinna, þær tísta hver í kapp við aðra um hversdagslega kynjamisréttið og hundruðum saman segja þær áður þaggaðar sögur af kynferðisbrotum sem þær hafa orðið fyrir.

Þessar aðgerðir ættu þó ekki að koma á óvart.

Við vitum að þau sem lent hafa í stríði glíma við þungbærar afleiðingar þess. Við vitum líka að afleiðingar kynferðisofbeldis eru sambærilegar og hjá fólki sem verið hefur í stríði. Á Íslandi hefur að minnsta kosti ein af hverjum fjórum konum verið beitt kynferðisofbeldi. Við þolendur getum sagt frá ofbeldinu, við getum skilað skömminni en, því miður, getum við ekki skilað afleiðingunum.

„Á Íslandi hefur að minnsta kosti ein af hverjum fjórum konum verið beitt kynferðisofbeldi.“

Það eru ekki ýkjur að segja að kynferðisofbeldi sé stríð gegn konum.

Ég spyr: Erum við samfélag sem vill gera það sem í okkar valdi stendur til að vinna að friði í þessum málaflokki? Hversu lengi ætlum við að efla einungis það starf sem tekur á afleiðingum ofbeldis í stað þess að leggja þyngri áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir?

Ég spyr: Hversu mörg ár í viðbót þarf kvennahreyfingin að starfrækja Kvennaathvarfið, Stígamót, Aflið og Drekaslóð, svo eitthvað sé nefnt, áður en komið verður á raunverulegum forvörnum til að útrýma ofbeldinu?

Í kjarabaráttu vetrarins kjarnast ójafnt mat á störfum kynjanna – það mat blasir við okkur líkt og hvítir sloppar í útfjólubláu ljósi. Lagasetningu á hjúkrunarfræðinga og aðrar kvennastéttir innan heilbrigðiskerfisins er ekki hægt að túlka öðruvísi en svo að vegið sé að hefðbundnum kvennastörfum. Vegið að störfum kvenna á Íslandi. Kröfur kvenna eru þaggaðar niður líkt og ofbeldi sem konur eru beittar hefur verið þaggað niður í gegnum tíðina.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem stjórnvöld kynntu fyrir stuttu kom fram að launamun kynjanna er hægt að leiðrétta með því að vinna gegn kynjaskiptum vinnumarkaði. Sem sagt, búið er að greina hver næstu skref þurfa að vera til að leiðrétta launamuninn. Og ég spyr: Hvernig stuðlar lagasetning á verkfall hjúkrunarfræðinga að þeirri leiðréttingu?

„Kröfur kvenna eru þaggaðar niður líkt og ofbeldi sem konur eru beittar hefur verið þaggað niður í gegnum tíðina.“

Í samfélagi okkar er nú kallað eftir breytingum úr mörgum áttum. Samfélaginu er vel hægt að breyta.

Til eru ótal leiðir til að leiðrétta kerfisvillurnar sem viðhalda misrétti kynjanna. Við eigum rannsóknir sem sýna hvernig styrkja megi dómskerfið til að gera það hæfara til að takast á við kynferðisbrotamál. Við höfum þekkingu og verkfæri til að eyða launamun kynjanna. Í landinu er svo sannarlega til staðar sá mannauður sem þarf til að hrinda þessari leiðréttingu í framkvæmd.

Nú þarf vilja til breytinga, pólitískan og samfélagslegan vilja.

Kæru áheyrendur, við erum stödd í miðri byltingu – enn einni samfélagsbyltingunni sem knúin er af afli kvennasamstöðu. Setjum frelsið í augnsýn. Ég er spennt að vita hvað gerist næst.

Gleðilegt byltingarár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár