Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Skilaboð frá lögreglunni: „Lögreglan getur ekki tryggt öryggi“

Lög­regl­an svar­ar fyr­ir það á Face­book af hverju tveir menn voru ekki hneppt­ir í gæslu­varð­hald vegna gruns um nauðg­un. Líf­leg­ar um­ræð­ur hafa spunn­ist við þráð þar sem Þór­dís Elva Þor­valds­dótt­ir ósk­ar eft­ir skýr­ing­um. Lög­regl­an seg­ist ekki geta tryggt ör­yggi borg­ara, en allra leiða sé leit­að við að upp­lýsa mál.

Skilaboð frá lögreglunni: „Lögreglan getur ekki tryggt öryggi“

Líflegar umræður hafa spunnist á Facebook-síðu lögreglunnar, þar sem Þórdís Elva Þorvaldsdóttir kallar eftir skýringum á því hvers vegna menn sem liggja undir grun um að hafa nauðgað tveimur konum sitji ekki í gæsluvarðhaldi.

Þórdís Elva segir að meintir nauðgarar hafi sýnt af sér einbeittan brotavilja og samverknað og því hljóti að vera ríkir almannahagsmunir fyrir því að þeir gangi ekki lausir. „Ef almenningi stafar ekki hætta af þessum mönnum, hver er þá nógu hættulegur til að sitja í gæsluvarðhaldi? Telst það ekki til almannahagsmuna að konur séu öruggar í Reykjavík?“ spyr Þórdís. 

Lögreglan svarar innlegginu með þeim orðum að hún geti ekki rætt tiltekin mál á opinberum vettvangi og þar af leiðandi ekki útskýrt hvaða ástæður liggja að baki þessari ákvörðun. Frá því að kynferðisbrotadeildin var stofnuð árið 2007 sé hins vegar almennt lagt kapp á að nýta allar rannsóknarheimildir sem lögreglu standi til boða, svo sem húsleitir, tæknirannsóknir og gæsluvarðhald: „Í öllum málum þarf að skoða atvik til þess að meta hvort að málið uppfylli skilyrði þessarra aðgerða. Þannig þarf þetta mat alltaf að fara fram og í öllum tilvikum gerum við okkar allra besta til að ákvarða rétt.“

Um leið og Þórdís þakkar fyrir svarið bendir hún á að samkvæmt íslenskum lögum sem varða gæsluvarðhald þurfi að leika grunur á að sakborningur hafi framið afbrot sem varðar tíu ára fangelsi. „Einnig ef talið er nauðsynlegt að verja aðra fyrir árásum sakbornings, eða ef ætla má að hann reyni að afmá merki eftir brot eða hafa áhrif á samseka og síðast en ekki síst með tilliti til almannahagsmuna. Þetta tiltekna mál virðist skólabókardæmi og uppfylla flest - ef ekki öll - þau skilyrði þar sem krefjast má gæsluvarðhalds yfir sakborningi. Því spyr ég: Ef lögreglan má ekki útskýra fyrir mér hvers vegna þessir menn eru ekki í gæsluvarðhaldi, getur hún þá tryggt öryggi mitt og annarra á meðan þeir ganga lausir?

„Lögreglan getur ekki tryggt öryggi þar sem það er ekki hægt að tryggja öryggi neins.“

Ekki stendur á svari frá lögreglunni, sem segir þetta allt satt og rétt en lögreglan geti ekki tryggt öryggi fólks. „Lögreglan getur ekki tryggt öryggi þar sem það er ekki hægt að tryggja öryggi neins. Við getum hinsvegar gert okkar besta þegar kemur að rannsóknum mála og nýtt öll þau rannsóknarúrræði sem mögulegt er að nýta hverju sinni.“

Svar lögreglunnar
Svar lögreglunnar Lögreglan kveðst ekki geta „tryggt“ öryggi.

Þórdís gat ekki leynt undrun sinni á svörum lögreglunnar: „Ég rak upp stór augu við að lesa útskýringu ykkar þess efnis að lögreglan geti ekki tryggt öryggi neins, hér ofar í spjallþræðinum. En málið virðist þó kýrskýrt í orðum Ríkislögreglustjóra, sem skilgreinir öryggishlutverkið sem „meginverkefni lögreglunnar en það felur í sér að gæta almannaöryggis, halda uppi lögum og reglu, að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi“ (úr Skilgreining á grunnþjónustu lögreglunnar). Liður í því að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi borgaranna í þessu máli væri að krefjast gæsluvarðhalds yfir mönnum sem grunaðir eru um stórhættuleg og ítrekuð kynferðisbrot. Ellegar er hætta á því að skilaboðin til samfélagsins verði þau að konur - sem vilja ekki að sakborningarnir ráðist á sig - eigi engra annarra kosta völ en að sitja „í gæsluvarðhaldi“ heima hjá sér á meðan þeir ganga lausir.

Lögreglan hefur ekki svarað þessu frekar, en þræðinum sem inniheldur um 70 innlegg, hefur verið deilt um 350 sinnum, auk þess sem tæplega 5.500 hafa líkað við hann. Þetta innlegg er þó langt frá því að vera það eina á síðu lögreglunnar um þetta mál, en það má segja að það rigni yfir lögregluna fyrirspurnum og færslum þar sem fólk lýsir reiði, undrun eða vonbrigðum. 

Grundvallarmarkið að tryggja öryggi 

Líkt og fram hefur komið ætlaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að fara yfir málið í hádeginu í dag til að athuga hvort einhver mistök hafi verið gerð við rannsókn þess. Ekki hefur verið greint frá niðurstöðum fundarins að svo stöddu. 

Rétt í þessu barst þó tilkynning frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem fram kom að málin eru í algjörum forgangi hjá kynferðisbrotadeild embættisins og allt kapp lagt á að upplýsa þau. Það sé grundvallarmarkmið lögreglu að tryggja öryggi borgara. 

„Rannsókn þeirra miðar vel, en eðli málsins samkvæmt getur lögreglan hins vegar ekki upplýst um málsatvik, meðal annars með tilliti til meintra þolenda. Nauðsynlegt er þó að taka fram að sumt í umfjöllun fjölmiða er ekki í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknargögn lögreglu.

Lögreglan hefur fundið fyrir mjög sterkum viðbrögðum í samfélaginu í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um áðurnefnd mál, og hafa henni borist fjölmargar fyrirspurnir áhyggjufullra borgara vegna þessa, ekki síst á samfélagsmiðlum embættisins. Það er skiljanlegt og undirstrikar mikilvægi þess að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldi stöðugt áfram að vinna að grundvallarmarkmiði sínu, sem er að tryggja öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og dvelja í umdæmi hennar.“

Boðað hefur verið til mótmæla við lögreglustöðina í dag klukkan 17 vegna málsins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
1
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
4
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.
Askur Hrafn Hannesson
10
Aðsent

Askur Hrafn Hannesson

„Bant­ust­an er ekki Palestína”

Bar­áttu­mað­ur fyr­ir mann­rétt­ind­um vitn­ar í rapptexta Erps Ey­vind­ar­son­ar þar sem hann fjall­ar um „að­skiln­að­ar­stefnu að­flutta hvíta manns­ins” í Suð­ur-Afr­íku og bend­ir á að mann­rétt­inda­sam­tök á borð við Am­nesty In­ternati­onal hafi einnig kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, í kjöl­far­ið á ára­langri rann­sókn­ar­vinnu, að Ísra­el sé að­skiln­að­ar­ríki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
3
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
8
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Þórður Snær Júlíusson
9
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu