„Hún var að prufa þetta í fyrsta skipti,“ segir náinn aðstandandi sautján ára stúlku frá Akranesi sem lést aðfaranótt þriðjudagsins 2. júní á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík. Stúlkan veiktist hastarlega á Akranesi aðfaranótt sunnudags eftir að hafa tekið inn e-töflu, að því talið er.
Fjölskylda stúlkunnar telur mikilvægt að það komi fram að stúlkan hafi verið að prófa efnin í fyrsta skipti. Í mesta lagi hafi verið um eina og hálfa e-töflu að ræða og þá fannst ekkert áfengismagn í blóði. „Oft þarf ekki meira til,“ segir aðstandandi stúlkunnar í samtali við Stundina. „Hún hefur ekki verið í neyslu.“
Athugasemdir