Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Hugsum um Jörðina - tíminn líður hjá

Hugsum um Jörðina - tíminn líður hjá

Vetrarsólstöður 22. desember 2015. Sólin er syðst á himni, lengst suður af miðbaug himins. Segja má að þetta séu tímamót á Íslandi af náttúrunnar hendi. Vetrarsólstöður eru góð tímamót til að endurskoða. Kjörið tækifæri til að setja sér markmið, til að bæta sjálfan sig, samskiptin við aðra, samfélagið, umheiminn, Jörðina og til að byrja á einhverju nýju með hækkandi sól.

Hugsum um Jörðina

Móðir Jörð er að springa af sköpunarkrafti. Hún iðar í skorpunni og skapar linnulaust ný verk um leið og önnur glatast. Jörðin mótast af stöðu sinni í alheiminum, ef til vill þáði hún vatn sitt af smástyrnum. En hún er ekki hjúpuð vernd, hún er viðkvæm fyrir áreitum, meðal annars frá athafnasemi eigin lífvera sem þiggja af henni búsetu og næringu.

Mannkynið er ágengt um þessar mundir. Það gengur á öll vistsvæði Jarðar, allar auðlindir, allt hörfar undan því. Maðurinn er gallagripur sem getur sýnt mátt sinn og megin en með misjöfnum afleiðingum. Þessi lífvera er einnig kostagripur sem getur látið gott til sín leiða. Hún getur batnað. Hugsum um það.

Hvernig væri að strengja Jörðinni heit um að draga úr myndun gróðurhúslofttegunda og úrgangs?

Að temja sér vin- og friðsamlegt líferni.

Hugsum um mannkynið

Manneskjan er gædd mörgum gjöfum náttúrunnar en þarf nauðsynlega að hemja gallana og efla kostina. Hver einstaklingur þarf að gera það, hver hópur, hvert samfélag, hver þjóð og það þarf ávallt að vera í samhengi við hagsmuni Jarðarinnar.

Jafnvel þótt dagurinn sé of stuttur og nóttin of löng um þessar mundir, þá er einum hring lokið og annar að hefjast. Ný ferð umhverfis sólu, það er tilhlökkunarefni. Góða ferð!

Tími til að víkka sjóndeildarhringinn.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu