Páll Stefánsson

ljósmyndari

Eitt barn á hverri einustu sekúndu í þrjár vikur hafa flúið stríðið í Úkraínu
MyndirÁ vettvangi í Úkraínu

Eitt barn á hverri ein­ustu sek­úndu í þrjár vik­ur hafa flú­ið stríð­ið í Úkraínu

Flótta­fólk, fá­tækt, Fagra­dals­fjall og frels­ið. Að­stæð­urn­ar á að­al­braut­ar­stöð­inni í Var­sjá voru ólýs­an­leg­ar. Alltof margt fólk. Á gólf­inu sváfu börn og gam­al­menni, á með­an mæð­ur og dæt­ur voru að finna lest­ar­miða fyr­ir fjöl­skyld­una áfram, lengra burtu frá þessu hræði­lega stríði.
Vaddúddí, vaddúddí
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Vaddúddí, vaddúddí

Jaðrak­an seg­ir víst vaddúddí, vaddúddí, en stofn­stærð­in á þess­um vot­lend­is­fugli er um 70 þús­und varppör. Krí­an (seinni mynd) er þrisvar sinn­um fjöl­menn­ari, en hér verpa um 200 þús­und pör. Jaðrak­an fer ekki ekki langt til vet­ur­setu, bara til Ír­lands og suð­ur til Fetla­fjarð­ar, sem heit­ir víst líka Bisk­aj­a­flói eða Bizkaia­ko Gol­koa á basknesku. Krí­an aft­ur á móti eyð­ir 5 mán­uð­um á ári í ferða­lög, en það eru 35 þús­und kíló­metr­ar frá vetr­ar­stöðv­un­um við Suð­ur­skautsland­ið til Sand­gerð­is þar sem þessi mynd var tek­in í morg­un.
Ella í Brákarsundi, Borgarnesi
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Ella í Brákar­sundi, Borg­ar­nesi

Trill­an Ella, er vor­boð­inn í Borg­ar­nesi. í ald­ar­fjórð­ung hef­ur hún glatt gesti og gang­andi þar sem hún lón­ir í Brákeyj­ar­sundi vor og sum­ar. Ella var byggð í Stykk­is­hólmi 1975, skírð eft­ir Snæ­f­elsk­um kven­skör­ungi. Það­an var hún keypt til Borg­ar­nes af Stór­út­gerð­ar­fé­lagi Mýr­ar­manna - að­al­lega til að veiða borg­fisk und­ir Þor­móðs­skeri á sér­stöku Bessa­leyfi. Nú­ver­andi eig­andi, Sig­urð­ur Hall­dórs­son, ætl­ar sér stærri hluti með Ellu... að breyta henni í sam­fé­lags­stjörnu. Fljót­lega mun Ella því fá sér­staka Face­book og In­sta­gram síðu.
Hjólaþjófatíminn er núna
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Hjóla­þjófa­tím­inn er núna

Þjófn­að­ur reið­hjól­um er nú í full­um gangi, ver­tíð­in er frá miðj­um apríl og fram í miðj­an sept­em­ber að sögn Gunn­ars Rún­ars Svein­bjarn­ar­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúa lög­regl­unn­ar. Hann sagði líka að fólk mætti vera dug­legra að at­huga hvort lög­regl­an hefði fund­ið hjól­ið. Hjól sem hafa ver­ið í vörslu lög­regl­un­ar í yf­ir eitt ár fara á upp­boð. Á upp­boð­inu í fyrra­sum­ar voru rúm­lega hundrað hjól, öll seld­ust nema tvö barna­hjól. Lög­regl­unni barst 551 til­kynn­ing um hjólastuld í fyrra.
Góðleg gimbur í góða veðrinu
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Góð­leg gimb­ur í góða veðr­inu

Sauð­fé á Ís­landi hef­ur fækk­að um meira en helm­ing frá því flest var ár­ið 1977. Þá voru 896 þús­und fjár á vetr­ar­fóðr­un en nú í vet­ur voru þau akkúrat 400 þús­und og hafa þau ekki ver­ið færri síð­an 1861. Af öll­um þess­um fjölda eru hrút­arn­ir að­eins 11 þús­und - en það gera 37 roll­ur á hvern hrút. Fjöldi sauð­fjár nú er litlu meiri en hann var ár­ið 1760 en þá bjuggu hér 43 þús­und manns.
Upp á punkt og prik
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Upp á punkt og prik

Í dag eru upp á dag tíu ár síð­an Sviss­lend­ing­arn­ir Ant­hony og Claudia komu fyrst til Ís­lands og tjöld­uðu þessu þá nýja tjaldi á Tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal. Síð­ast­lið­in tvö ár hafa þau bú­ið og starf­að á Dal­vík, en voru í stuttu stoppi í höf­uð­borg­inni á leið suð­ur og aust­ur hring­inn. Það var eitt ann­að tjald á tjald­svæð­inu og tveir litl­ir hús­bíl­ar. Líf­ið er semsagt að fær­ast í eðli­legt horf... ferða­fólk á tjald­svæð­inu og grímu­skyld­an af­lögð frá og með deg­in­um í dag.
Mars í maí
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Mars í maí

Hönn­un­ar­mars er vor­boði, og einn við­burð­ur var í Vest­ur­bæj­ar­laug­inni í dag. Að­al­heið­ur, Ás­geir Helgi, Em­il­ía og Halla döns­uðu sam­hæft í nýj­um sund­föt­um frá BAHNS, und­ir stjórn Ingu Mar­en­ar. Það var eitt­hvað fal­legt, já­kvætt við það að sjá fulla heita potta af áhorf­end­um klappa þeg­ar dans­in­um var lok­ið. Svo­lít­ið eins og við sé­um kom­in fyr­ir horn í þess­um far­aldri sem ein­hvern­veg­inn ætl­ar aldrei að ljúka.
Gott í gogginn
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Gott í gogg­inn

Fyrsti veit­inga­stað­ur­inn í Reykja­vík var opn­að­ur ár­ið 1791 af dönsku ekkj­unni, Mar­gret­he Aders­datter Ravn Ang­el. Þá voru íbú­ar Reykja­vík­ur að­eins 358. Fyr­ir heims­far­ald­ur­inn voru rétt rúm­lega 200 veit­inga­stað­ir í mið­borg­inni - þeim hafði fjölg­að um helm­ing frá alda­mót­um. Hér í Ing­ólfs­stræt­inu bíð­ur Ás­geir eft­ir að máln­ing­in þorni svo gest­ir og gang­andi geti feng­ið sér eitt­hvað gott í gogg­inn, úti í vor­sól­inni.
Byssupúðurgerðarstaðurinn
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Byssu­púð­ur­gerð­ar­stað­ur­inn

Þeystareyk­ir fóru í eyði ár­ið 1873, en fyrr á öld­um var það­an mik­ill út­flutn­ing­ur af brenni­steini til byssu­púð­ur­gerð­ar gegn­um Gása og Húsa­vík. Fyrst voru það Han­sa­kaup­menn og Hol­lend­ing­ar sem keyptu brenni­stein­inn en Dana­kon­ung­ur tek­ur sér einka­rétt af þess­um ábata­sömu við­skipt­um ár­ið 1560. Lands­virkj­un reysti 90 MW jarð­varma­virkj­un á Þeistareykj­um ár­ið 2017.
Núll gráður á Grjótnesi
Páll Stefánsson
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Núll gráð­ur á Grjót­nesi

Um miðja síð­ustu öld var bú­ið á um 30 bæj­um á Mel­rakka­sléttu. Grjót­nes (mynd) á Vest­ur-Sléttu, var mann­margt tví­býli, og bjuggu þar milli 30 og 40 manns á sumr­in þeg­ar mest var. Nú er að­eins bú­ið á tveim­ur bæj­um á Mel­rakka­slétt­unni, en hlunn­indi eru áfram nýtt á flest­um þess­ara eyðijarða, eins og reki og æð­ar­d­únn. Loft­hit­inn á Mel­rakka­slétt­unni í morg­un var 0°C.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu