Eigin konur

Sig­þrúð­ur Guð­munds­dótt­ir - Seg­ir of­beld­is­menn oft taka sér skil­grein­ing­ar­vald yf­ir þo­lend­um

„Afhverju fara þær ekki bara?” Það er þessi rómantíska hugmyndin um að konur eigi að elska fram í rauðan dauðann og geti ekki lifað án einhvers. Margar konur koma úr ofbeldissamböndum með skömm yfir því að þetta sé þeim að kenna af því að ofbeldismaðurinn tekur að sér skilgreiningarvaldið segir Sigþrúður Guðmundsdóttir sem var framkvæmdarstýra kvennaathvarfsins í 16 ár. Í þættinum fer Sigþrúður yfir afleiðingar heimilsofbeldis, afhverju konur fara ekki strax úr ofbeldissamböndum og hvað konur í þessari stöðu geta orðið veikar af alvarlegum sjúkdómum án þess að gera sér grein fyrir því. Þær eru margar ótengdar eigin tilfinningum og líðan að þær taka jafnvel ekki eftir einkennum sem annað fólk tæki eftir. „Ef maður setur sig í þessi spor að lifa í hættu ástandi heima hjá sér, stöðugt eftirlit, takmarkað frelsi, líkamlegt ofbeldi, yfirvofandi kynferðisofbeldi þegar það hentar þeim sem maður býr með, þá getur það bara lagst á konur, líkamlega og andlega”.
· Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Edda Falak

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Barist í bökkum velferðarsamfélags
    Pressa #20

    Bar­ist í bökk­um vel­ferð­ar­sam­fé­lags

    Leiðari: Handbók um leiðir til að þykjast siðlegur ráðherra
    Leiðarar #51

    Leið­ari: Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

    The Teachers’ Lounge
    Paradísarheimt #8

    The Teachers’ Lounge

    Falsfréttir og rangar upplýsingar um stríðið
    Úkraínuskýrslan #1

    Fals­frétt­ir og rang­ar upp­lýs­ing­ar um stríð­ið

    Loka auglýsingu