Karlmennskan

Ég veit ég hef rödd og ég ætla að beita henni - Hanna Björg Vil­hjálms­dótt­ir

„Ég hef það ágætt, þetta er búið að vera stormur en ekki í versta skilningi“ segir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari og forkona jafnréttisnefndar KÍ. Hanna Björg skrifaði pistil sem birtist á Vísi 13. ágúst síðastliðin með fyrirsögninni „Um KSÍ og kvenfyrirlitningu“. Þar gagnrýndi hún KSÍ fyrir að þagga niður ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og bregðast þolendum. Í kjölfarið hefur formaður og síðan stjórn KSÍ sagt af sér og síðast í gær var tilkynnt um að framkvæmdastjórinn væri komin í leyfi. Hanna Björg segir að KSÍ sé höfuðvígi feðraveldis og íhaldssamra karlmennsku á Íslandi sem riði nú til falls. Hún ætlar að trúa því að ferlið sem komið er að af stað innan KSÍ og íþróttahreyfingarinnar muni skila árangri. Við ræðum um hvaða breytingar hún vilji sjá innan KSÍ og íþróttahreyfingarinnar í heild, hvernig skaðleg karlmennska litar fótboltastráka, vonbrigðin yfir afstöðuleysi landsliðsjálfara og fyrirliða karlalandsliðsins, leitum skýringa og lausna. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Intro/outro: Futuregrapher Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Veganbúðarinnar og The Body Shop.
· Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Bastarden (ásamt Ingu Steinunni og Hákoni Erni)
Paradísarheimt #9

Bast­ar­den (ásamt Ingu Stein­unni og Há­koni Erni)

Slysafrásagnir, skilningarvitin og lykt
Þjóðhættir #47

Slysa­frá­sagn­ir, skiln­ing­ar­vit­in og lykt

Leigubílstjórinn handtekinn
Á vettvangi #1

Leigu­bíl­stjór­inn hand­tek­inn

OK til bjargar Coop
Eitt og annað

OK til bjarg­ar Coop

Loka auglýsingu