Fína fólkið felur sitt á Tortóla. Fína fólkið felur sjitt á Tortóla. Fína fólkið tók saman sína fínustu seðla og keypti þeim far úr landi. Alveg eins og Danir gerðu eftir siðaskiptin 1550 samkvæmt nýjustu fréttum og stórmerkum niðurstöðum Steinunnar Kristjánsdóttur fornleifafræðings. Okkar kaþólska kirkjusilfri var öllu siglt úr landi. Í mörgum skipsförmum! Á tuttugu ára tímabili! Því var öllu komið inn í skrattaskjól hjá Danakonungi þar sem því var steypt í sjóðandi silfurpott og hrært í þar til allir kaleikar og allir skírnarfontar Norður og Suðuramts voru komnir á fljótandi form, þá var þeim hellt í mót og úr þeim steypt þrjú tignarleg silfurljón sem enn standa á gólfi Rósenborgarhallar í Kaupmannahöfn, enn jafn glansandi fín, og enn með sama aulasvipinn og árið sem þau fæddust, árið 1600, aulasvip hins illa getna. „Landsmönnum bar að láta af hendi allan eir og kopar handa konúnginum, af því það þurfti að endurreisa Kaupinhafn eftir stríðið,“ stendur á fyrstu síðu Íslandsklukkunnar. Þá voru það útlensku yfirvöldin sem rændu okkur ættarsilfrinu, nú eru það fjölskyldurnar fjórtan sinnum fjörutíu og þrír, gráðugu frumurnar í þjóðarlíkamanum, þær sem éta þær veiku og gubba gróðanum inn á reikninginn sinn, þær sem éta okkur að innan, þær sem stinga okkur í bakið og stinga undan öllu því sem verðmiða hefur og geymir það svo utan lands, utan okkar kerfis. Þess vegna sveltur heilbrigðiskerfið, þess vegna fáum við ekki nýjan spítala, þess vegna er sparað í leikskólum, þess vegna er Buglið í ruglinu, þess vegna er skólakerfið okkar í þriðju deild, þess vegna fáum við ekki fleiri starfslaun listamanna, þess vegna er ekki hægt að bora ein göng á ári, þess vegna er ekki hægt að kaupa nýjan Herjólf, þess vegna er ekki hægt að vernda Gullfoss og Geysi, þess vegna er ekki hægt að útrýma einbreiðu brúnum, þess vegna fær Vesturbyggð ekki veginn sinn um Teitsskóg. Vegna þess að feitasta prósentið okkar sefur á Saga class með hundrað milljónir í hvorum vasanum, á leið sinni út úr hagkerfinu og hlær svo crap-chattað að loknum málsverði á Sheraton Panama City um leið og það sýgur sína sveru og fitugu fingur og sýnir borðfélögunum selfís með sér og Bjarna Ben á golfgríninu í Bradenton, FLA, sem teknar voru í vikunni áður, allir á stuttermabolum frá Ashley Madison. „Nei, BB er hættur öllu off shore dæmi núna, ég meina hann verður að passa sig,“ er sagt yfir glasi af armagnakki og svo er gubbað smá í tauservíettuna með fallega íbróderaða Sheraton S-inu. Þannig sjáum við og heyrum fyrir okkur hinar eilífu mergsugur Íslands, silfurþjófana nýju, sem stungu þó á sig einni teskeið til að heiðra uppruna gróðans, áður en allt var brætt í Tortóla-pottinn, og geyma hana í skenki sínum í Gróðabæ, og fægja á Þorláksmessu um leið og þeir fá sína augnbotnaskekjandi hræsnisfullnægingu undir lestri jólakveðja Ríkisútvarpsins: „Baldur Swift og Svansí á Tortóla senda landsmönnum hugheilar jólakveðjur“. Það eru ekki allir með. Það róa ekki allir í sömu átt. Sumir liggja neðan þilja og nota ár sína til að hræra í silfurpottinum sjóðheita. Mergsugur Íslands. Við vissum af þeim, við mætum þeim stundum í umferðinni, sakbitnum með sólgleraugun í Reinsunum sínum svörtu, þessum líkkistum liðins hagkerfis, og kannski grunaði okkur að slíkir landssvikarar leyndust líka á þingi. En að þeir væru líka ráðherrar, og forsætisráðherrar, var eitthvað sem jafnvel svæsnustu samsæringamenn hafði ekki órað fyrir. Og þó spáðum við öll í órana sem ullu út úr Siðmundi Davíð fyrir síðustu kosningar, stóryrðin öll um kröfuhafana og hrægammana, dýrin sem við þekktum ekki og skildum ekki, ekki frekar en það sem hann sagði, maðurinn sem var að rústa kosningunum eins og hver annar Rassi Trump án þess að nokkur fengi við ráðið, af því enginn skildi hann, enginn þekkti þennan heim sem hann var að lýsa, enginn hafði möguleika á nokkurri innsýn í hann, en alltof mörg okkar sáu bara peningana sem hann veifaði, og kylfuna í hinni. Fyrir vikið hljómaði Svigmundur Davíð eins og sígaunatöframaðurinn Melkídes hjá Márquez í Hundrað ára einsemd sem fræddi þorpsbúana í frumskóginum um fyrrirbærið ís. Þannig vorum við á svipinn: Ha? Ís? Hvað er það? Ha? Hrægammar? Hvað er það? Við skömmuðumst okkar fyrir að vita þetta ekki og ypptum öxlum, en þarna var Svikmundur Davíð að lýsa sínum hvunndagsheimi, því á hverjum morgni flaug hann eins og undirhökustór pelíkani suður í Karíbahaf til að líta til með hreiðri sínu og elsku Önnu, telja gulleggin sem gullfrúin góða, panamíski leynireikningapassarinn Guilia Conchita Gonzalés, hafði lofað að liggja á fyrir þau hjónin (þótt hún væri reyndar látin) svo klækjust þar út um síðir svartgljáandi ungar af Toyota-ættum, vonandi kæmust þeir á legg fyrir hrægömmum miðbaugs. Úr þessum skrautlega flugheimi steig Siðblundur Davíð niður til okkar, við sjáum það nú, til að tala á kosningafundum, og leit út eins og eftirhrunsfrelsari með IceSave-geislabaug og blessun frá Ólafi V Íslandskonungi. (Ath: þá var Ólafur Ragnar í sínum fimmta fasa, en fasarnir eru þessir: Ólafur I (Framsókn), Ólafur II (Samtök frjálslyndra og vinstrimanna), Ólafur III (Alþýðubandalagið) Ólafur IV (fyrirhrunsforseti) og Ólafur V (eftirhrunsforseti). En Stríðsmundur Davíð passaði sig á því að minnast ekkert á að sjálf væru þau hjónin kröfuhafar, þau hefðu á sínum tíma flúið með milljarð úr landi, gamla góða Toyotagróðann sem myndaður var með framlagi þeirra þúsunda Íslendinga sem samviskusamir höfðu sparað fyrir sinni Corollu og sínum Landkrúser allan sjöunda áratuginn, allan níunda áratuginn og allan tíunda áratuginn og greitt inn í Pálsveldið sinn bílaumboðsskatt sem dóttir flutti svo úr landi ásamt útkaupsverðinu, langaláni Svanga-Mangans í Lánsbanka Íslands, peningar sem Corollu-eigendur höfðu líka safnað fyrir handa þeim góðu hjónum sem þeir hugðust kjósa sér til forystu að loknu þessu hvimleiða skúringastarfi Jóhönnu Sigurðardóttur, hreinir og klárir blóðpeningar sem Svangi-Mangi slapp svo við að borga til baka, því allt var klabbið afskrifað ásamt mannorði þess sama Eyjamanns. Þannig komust þúsund milljónir úr landi, í tíu ferðum á Saga Class, eins og silfrið eftir siðaskiptin, og allar urðu þær samferða þrjátíu þúsund öðrum milljónum sem vinir og kunningjar úr fíniríslífinu á Flötunum og Fyrirhrunsbyggðunum höfðu með sér, allt í boði þjóðarbankans, bankans okkar, bankans sem við eignuðumst eftir Hrun, bankans sem græðir milljarða á ári hverju, á hverri einasta músarskrefi okkar í heimabankanum, á milli þess sem hann styður og hjálpar þungvösuðum krónuflóttamönnum út í vél og breiðir þar yfir þá teppið á Saga Class og réttir þeim síðan Moggann sinn fullan af krónískum krónuelskandi krónuáróðursgreinum eftir ekki-Sigmund Davíð og Sigmund Davíð. Þeir vilja ekki aðra mynt því krónan er þeirra töframeðal sem breytir allri annarri mynt í milljón, öllum aflandseigum þeirra í skrilljón, ekki síst ef hún hrynur meira, eins og menn vita að hún gerir, því það hefur hún hundrað sinnum gert á hundrað árum. Þess vegna gera Samherji og Vestmannaeyjar upp í evrum, sem á Íslandi kallast efrur og hafa efragengi. Efragengið nýtur efragengis. Almúginn má notast við neðragengið. Þeir mega sem eiga. Við sluppum frá Dönum ’44 en sleppum aldrei frá Danskinum í okkur sjálfum, rammíslenska einokunarkaupmanninum sem situr í Saga Lounge og vætir sitt gin í tónik yfir lestri aflátsbréfanna sem kennd eru við Reykjavík. Mergsugurnar sjúga ekki bara inn að beini heldur úr því líka. Þess vegna eru sjúkrarúm í bílageymslunni, þess vegna eru börnin okkar í gámastofum, þess vegna eru holurnar í hagkerfinu okkar. Bjarni Ben gerði eina, og fyllti með smá skammti úr sinni gullblöðru, það var hola í höggi í boði frændanna hjá Borgun. Ólöf Nordal gerði aðra en hætti við á síðustu stundu að fylla hana af nordölum og áldölum þegar hún heyrði óvænt afa sinn muldra utan úr skammdegismyrkrinu orðin „íslenzk menning“ (með zetu), og kom þá fram í huga hennar Hola íslenskra fræða. En formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins voru semsagt fremst meðal jafningja. Í þeim flokki eru reglurnar skýrar: Sá ríkasti verður formaður, Ólöf næstríkasta varaformaður (Gulli minn, keep on trying…). Samt mætir hann, sá síðastnefndi, í viðtölin til að svara fyrir ruglið og tekst óaðfinnanlega að leika hlutverk heiðarlegasta flokksmannsins þrátt fyrir FL-tattúið á enninu, sem er þeim kostum búið að aðeins langminnugir fá það séð. Ó, Ísland, í höndum hramma! Hræsnara, þjófa og gamma! Og þetta er fólkið sem við erum að stóla á að hætti að bakka upp heimsins frægasta endeming sem situr í næsta herbergi við þau, undir portretti af Jónasi á Hriflu og teiknar, teiknar landakortin sín, Ísland eins og hann vildi sjá það, allt í stíl ekki-Páls Samúelssonar með risavöxnum flettiskiltaauglýsingum frá Mossack Fonseca — „utan lands og laga“. Siðblindur Davíð reyndist vera sonur föður síns, mannsins sem fenginn var gullkálfur að sjá um, en sveik þá pligt og eignaði sér hann sjálfur (það er sagan um Gróða hirðinn) að hætti mafíósa stærri landa. Vandinn hefst svo, eins og maðurinn sagði, þegar heilagur mafíuson vill stíga út úr glæpaheiminum og inn í borgaralega heiminn, þegar Mafían vill láta kjósa sig til valda og sendir sína fulltrúa í fundahreinsun: Hún tekst yfirleitt nokkuð vel en eðlið leitar út um síðir, lengi býr að fyrstu gerð, Kögun verður illa af sér öguð, sálin leitar í skattaskjól. Við Íslendingar og Ólafur V, gerðum óheiðarlegan mann að forsætisráðherra og urðum enn og aftur að athlægi heimsins. Eftir þrotlaust 7 ára puð um allar koppagrundir, í þúsund tónleikahöllum, kvikmyndahúsum og listasölum, tókst íslenskum listamönnum að reisa við laskaða ímynd Íslands en þá kom enn og aftur einn fjármálaspilltur pólitíkus og eyðilagði það á tíu mínútum. Ósvífnin og óheiðarleikinn voru svo toppuð með því að sitja áfram í þrjár vikur eftir pólitíska aftöku sem farið hafði fram í leyni í Ráðherrabústaðnum, og láta engan vita, ekki einu sinni sína allra nánustu samstarfsmenn, sem fyrir vikið röltu saklausir inn í sjónvarpsginið trekk í trekk og létu nauðbeygðir út úr sér frasa sem eiga eftir að lifa með þjóðinni næstu þúsund árin. „Það er flókið að eiga peninga á Íslandi“ og „Einhverstaðar verða peningarnir að vera“. Síðmundur Davíð ákvað að sitja áfram og hlífa okkur ekki við alþjóðlegri niðurlægingu, og fyrir það verður honum seint fyrirgefið. Hann er fjórði karkyns forsætisráðherrann af hægri kantinum í röð, ég endurtek: fjórði hvíti karlinn í röð, til að hrökklast úr embætti með skömm. Halldór Ásgrímsson hvarf fylgis- og frægðarlaus á brott, Davíð Oddsson var borinn öskrandi út úr Seðlabankanum, Geir Haarde sigldi þjóðarskútunni í strand, og nú er Sigmundur Davíð afhjúpaður sem heimsfrægur lygari. Maðurinn sem gæti tekið við honum er líka nýafhjúpaður lygari og manneskjan þar á eftir ekki alveg hrein heldur… Í tveimur ríkisstjórnarflokkum er enginn sem getur tekið við! Áts. Hvar er Jóhanna Sigurðardóttir? Er hún nokkuð svo upptekin? Eða hvað annað getur gerst? Við þurfum kosningar en óvíst hvort við fáum. Það eina sem er öruggt í þessari óvissustöðu er að Ólafur V Íslandskonungur mun umbreytast í Ólaf VI.
Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.
Hallgrímur Helgason
Mergsugur Íslands
Hallgrímur Helgason skrifar: „Vegna þess að feitasta prósentið okkar sefur á Saga class með hundrað milljónir í hvorum vasanum, á leið sinni út úr hagkerfinu og hlær svo crap-chattað að loknum málsverði á Sheraton Panama City um leið og það sýgur sína sveru og fitugu fingur og sýnir borðfélögunum selfís með sér og Bjarna Ben á golfgríninu í Bradenton, FLA, sem teknar voru í vikunni áður, allir á stuttermabolum frá Ashley Madison.“
Mest lesið
1
Mynd af Katrínu og forsetanum verður fjarlægð úr niðurtalningu kvöldfrétta RÚV
Myndskeið af Katrínu Jakobsdóttur og Guðna Th. Jóhannessyni hefur verið sýnt í niðurtalningu kvöldfrétta RÚV síðustu daga. Fréttastjóri segir það sjálfsagt að fjarlægja myndskeiðið, enda viðkvæmt í aðdraganda forsetakosninga.
2
Truflaði ávarp utanríkisráðherra og krafðist svara vegna Gaza
Kona kallaði að utanríkisráðherra á ráðstefnu í morgun og spurði hvers vegna stjórnvöld hefðu ekki fordæmt árásir Ísraelshers á Gazasvæðið. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi var í salnum og klappaði fyrir konunni.
3
Forsetaframbjóðendur mætast í Pressu
Fjórir frambjóðendur til embættis forseta Íslands mæta í beina úsendingu í Pressu á föstudag. Þátturinn verður sendur út klukkan 10.00 frá ritstjórnarskrifstofu Heimildarinnar. Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir sitja fyrir svörum.
4
Halla Hrund Logadóttir hefur þrefaldað fylgi sitt á tíu dögum
Tveir frambjóðendur til forseta mælast með mest fylgi og ekki er tölfræðilega marktækur munur á stöðu þeirra. Enginn frambjóðandi nýtur hylli yfir 30 prósent þjóðarinnar.
5
Ólafur Páll Jónsson
Hnípin þjóð
Fram undan er virkjun í neðri hluta Þjórsár. Hvers vegna breytum við grónu landi í eyðimörk, hvers vegna tökum við eitthvað sem hefur þróast um þúsundir ára og er algerlega einstakt í öllum heiminum og skiptum því út fyrir eitthvað sem endist kannski í hundrað ár og gæti verið hvar sem er?
6
Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
Þó svo að hættulega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki lengur í tísku og að Bridget Jones sé ekki lengur talin feit, eru útlitskröfur til nútímakvenna enn óraunhæfar, segir prófessor í félagssálfræði. Hún er þó bjartsýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áður hafi verið kynslóð sem er vísvitandi að berjast gegn því að fólk sé smánað út af útliti.“
7
Margt bendir til þess að bensínverð geti farið að hækka skarpt
Innkaupaverð á olíu hefur hækkað og hlutur olíufélaga í hverjum seldum lítra af bensín lækkað. Það bendir til þess að verðhækkanir gætu verið í kortunum.
8
Birgir segir mistök að ekki sé gert ráð fyrir nýrri kvennadeild á nýja Landspítalanum
Í störfum þingsins ræddu þingmenn ýmis mál. Diljá Mist Einarsdóttir gagnrýndi Samfylkinguna, Birgir Þórarinsson benti á mygluvandamál Landspítalans og sérstaklega þá stöðu sem er komin upp á kvennadeildinni. Gagnrýndi hann að ekki væri gert ráð fyrir nýrri kvennadeild í byggingu nýja Landspítalans. Jóhann Páll Jóhannesson benti á að eins og staðan er í dag geti smálánafyrirtæki notfært sér neyð fólks og grætt á þeirra stöðu.
9
Hringur af sjókví hjá Arnarlaxi fauk í óveðri og rak á land
Arnarlax varð fyrir því óhappi um helgina að hringur af sjókví frá fyrirtækinu fauk á haf út við flutning á honum. Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, segir að ekkert tjón hafi orðið á fólki eða útbúnaði vegna þessa.
10
Fiðrildi með kulnun sem lærði að hlusta á líkamann
Kara Elvarsdóttir lýsir sjálfri sér sem fiðrildi og kvíðakerlingu. Hún hefur alltaf átt erfitt með að segja nei við nýjum tækifærum sem leiddi til þess að hún fór í kulnun. Vegferðin hefur hins vegar leitt hana á betri stað og í dag leiðir hún hóp kvenna sem hreyfa sig meðvitað. En hvað er meðvituð hreyfing?
Mest lesið í vikunni
1
Sóltún keypti jeppa fyrir forstjórann í uppsagnarhrinu
Hjúkrunarheimilið Sóltún hefur verið í hagræðingaraðgerðum og sagt upp starfsfólki á síðustu mánuðum.
2
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
MAST tilkynnti starfsmönnum sínum um það á miðvikudaginn að búið væri að ráða Þorleif Ágústsson sem nýjan sviðsstjóra yfir meðal annars fiskeldisdeildina hjá stofnunina. Þorleifur hefur skrifað greinar þar sem hann talar fyrir laxeldi í sjókvíum. Þorleifur segist vera vísindamaður og að hann taki ekki afstöðu. Forstjóri MAST, Hrönn Jóhannesdóttir vill ekki ræða um ráðninguna þegar eftir því er leitað.
3
Sif Sigmarsdóttir
Á barmi skilnaðar
Værum við sáttari við hlutskipti okkar ef við værum ekki stöðugt með fyrir augunum skíðaferðir, fermingar og berar táslur á Tene?
4
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
Í frumvarpi matvælaráðherra um lagareldi er kveðið á um að laxeldisfyrirtækin í landinu hafi „ótímabundin“ rekstrarleyfi til að stunda sjókvíaeldi í íslenskum fjörðum. Hingað til hafa rekstrarleyfin verið tímabundin í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórnvöld á Íslandi ekki geta bannað sjókvíaeldi án þess að baka sér skaðabótaskyldu gagnvart laxeldisfyrirtækjunum.
5
Þórður Snær Júlíusson
Handbók um leiðir til að þykjast siðlegur ráðherra
Á Íslandi er við lýði regluverk sem á að koma í veg fyrir spillingu ráðherra og auka traust á stjórnsýslu. Nýlega var gefin út handbók með útskýringum á reglunum með raunhæfum dæmum. Raunveruleikinn sýnir hins vegar að ráðherrar láta þetta ekki hafa áhrif á hegðun sína. Reglurnar gilda bara þegar það reynir ekki á þær.
6
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
„Stanslaust vonleysi vaknar um leið og þú mætir,“ segir ungur venesúelskur hælisleitandi um Ásbrú. Þar hafi verið ómögulegt fyrir hann, eða nokkurn mann, að aðlagast íslensku samfélagi – sem er atriði sem stjórnmálamenn þvert á flokka hafa sagt mikilvægt. Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur sagst vilja fleiri búsetuúrræði á borð við Ásbrú.
7
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
Breska fyrirtækið Ortus Capital, sem Ármann Þorvaldsson, núverandi forstjóri almenningshlutafélagsins Kviku, var hluthafi í var einn af lánveitendum breska kráarfyrirtækisins Red Oak Taverns, sem eiginkona Ármanns á hlut í. Þetta fyrirtæki varð síðar að Kviku Securities í Bretlandi og keypti það breskt lánafyrirtæki af viðskiptafélögum fyrir tveimur árum fyrir milljarða króna.
8
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
Ríkissjóður verður rekinn í halla í næstum áratug samfleytt áður en viðsnúningur næst. Til að fjármagna tugmilljarða króna útgjöld vegna Grindavíkur og kjarasamninga á meðal annars að fresta greiðslum til örorkulífeyriskerfisins, selja eignir fyrir tugi milljarða króna og lækka framlög í varasjóð. Framkvæmdum sem áður hefur verið frestað er frestað á ný en peningar settir í nýja þjóðarhöll og tugir milljarða króna verða tiltækir í borgarlínu og tengd verkefni. Vaxtabyrðin á ríkissjóði verður þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 milljarð króna í slíka.
9
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
Egill Steingrímsson dýralæknir var annar af umsækjendunum um sviðsstjórastarf hjá Matvælastofnun sem meðal annars snýst um eftirlit með laxeldi. Fiskalífeðlisfræðingurinn Þorleifur Ágústsson var ráðinn fram yfir hann og vakti ráðningin athygli innan MAST vegna jákvæðra skrifa hans um laxeldi hér á landi.
10
Samfélagslega viðurkennd skotmörk
Fitufordómar grassera innan heilbrigðiskerfisins og úti í samfélaginu segja fjórar konur sem hafa um árabil barist fyrir því að jöfn virðing sé borin fyrir öllum líkömum. Prófessor í sálfræði segir fitufordóma einu hleypidómana sem enn séu samþykktir í nútímasamfélögum.
Mest lesið í mánuðinum
1
Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
Sveinn Bjarnason bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á vegum Akureyrarbæjar. Hann bankaði oft ítrekað og grét áður en starfsfólk opnaði fyrir honum. Móðir hans gerði endurteknar athugasemdir við að hann væri læstur inni og segir son sinn hafa verið vanræktan. Fyrr á þessu ári greip hún til þess örþrifaráðs að flytja hann búferlum í annan landshluta til að fá mannsæmandi aðbúnað fyrir hann. Mál Sveins varpar ljósi á alvarlegar brotalamir í þjónustu við fatlað fólk á Íslandi og sýnir hvernig mannréttindi hafa verið virt að vettugi árum saman.
2
Voru orðin lífsreynd og tilbúin fyrir betra líf saman
Bárður Sigurgeirsson húðlæknir er 68 ára gamall en gleymir sér við leik og gleði, ásamt eiginkonunni Lindu Björgu Árnadóttur. Fimmtán ára aldursmunur er á þeim hjónum, sem kynntust á Tinder fyrir sjö árum síðan.
3
Sóltún keypti jeppa fyrir forstjórann í uppsagnarhrinu
Hjúkrunarheimilið Sóltún hefur verið í hagræðingaraðgerðum og sagt upp starfsfólki á síðustu mánuðum.
4
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
Baldur Þórhallsson bældi niður eigin kynhneigð frá barnsaldri og fannst hann ekki geta verið hann sjálfur. Fyrir 28 árum tók hann ákvörðun um að koma út úr skápnum, það var ekki annað í boði ef hann ætlaði að halda áfram með lífið. Nú stefna þeir Felix Bergsson á Bessastaði. „Við eigum 28 ára ástríkt samband að baki og höfum ekkert að fela,“ segir Felix.
5
Hefur gengið á eftir Ástþóri í 19 ár vegna ógreidds reiknings
Árið 2005 sendi Steinþór Grímsson athafnamanninum Ástþóri Magnússyni reikning upp á rúmar 30 þúsund krónur á þávirði. Hann hefur ekki enn fengist greiddur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í áranna rás. Ástþór þvertekur fyrir að skulda manninum, sem og öðrum, nokkuð.
6
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
Jón Gnarr er kominn í forsetaframboð. Hann segir meiri þörf á gleði og húmor í lýðræðinu og samfélaginu þar sem offramboð sé á leiðindum og er sannfærður um að þjóðin sé að leita sér að manneskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætlar sér að mýkja freka kallinn með kærleikann að vopni og lofar að vera hvorki ofstopamanneskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hefur hann alltaf dreymt um að búa í Garðabæ.
7
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Frá árinu 2009 hefur hjúkrunarheimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrirtækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
8
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
Lagabreyting sem var fyrir einu og hálfu ári kölluð „aðför að neytendum“ var samþykkt á Alþingi í lok síðustu viku með atkvæðum minnihluta þingmanna. Um er að ræða afnám á ólögmætu samráði stærstu landbúnaðarfyrirtækja landsins. Lagabreytingunni var laumað inn í frumvarp á lokametrum afgreiðslu þess með mikilli aðkomu þeirra sem mest græða á henni.
9
Íbúð í miðbænum gerð út fyrir 700 þúsund krónur á mánuði
Í vikunni voru fimm herbergi í íbúð í miðbænum auglýst til leigu fyrir samtals 700.000 krónur á mánuði. Mikil aðsókn hefur verið í þau að sögn leigusalans. En hann segist hafa miðað verðið við markaðinn. Formaður leigjendasamtakanna segir þetta grimmilega og miskunnarlausa sjálftöku.
10
Ole Anton Bieltvedt
Af hverju er Halla Hrund Logadóttir kjörin og rétt í forsetaembættið?
Ole Anton Bieltvedt segir að forsetinn verði að vera þjóðlegur og alþjóðlegur í senn. Umhverfis- og náttúruverndarsinni. Með tandurhreinan bakgrunn, flekklaust einkalíf, mikla og góða menntun og reynslu að sama skapi.
Athugasemdir