Hamingjan kom ekki til mín á silfurfati heldur þurfti ég að lenda í allskonar streði til að átta mig á því hvar hamingjuna er að finna. Hamingjan er í raun „default“ ástand, ef við erum sátt í eigin skinni og hugurinn er ekki að hlaupa með okkur í gönur.
Ég var með erfitt hugarfar, málaði skrattann á vegginn og ótti og áhyggjur áttu greiðan aðgang að mér. Ég kepptist við að koma í veg fyrir hugsanleg slys, reyndi eftir fremsta megni að hafa stjórn á öllum aðstæðum og reyndi lengi við fullkomnun. Það var dæmigert fyrir mig að skipta mér af afgreiðslunni í bakaríinu þegar hún gekk hægt. Ég hafði hugmyndir um hvernig væri hægt að vinna hraðar og skilvirkar. „Þú getur kannski rétt mér tvö rúnstykki á meðan við bíðum eftir VISA-vélinni,“ átti ég til að segja og uppskar illt augnaráð. Ef dóttir mín var sein heim úr bíó var ég sannfærð um að hún hefði lent í slysi og sá fyrir mér slysstað með blóðslettum og sjúkrabílum. Ég átti alltaf von á því versta. Ég hafði reyndar ekki hugmynd um að þetta væri ekki eðlilegt ástand. Það opinberaðist fyrir mér þegar ég var í fríi með fjölskyldunni í Kaliforníu, nánar tiltekið í Legolandi. Saklausari stað er vart hægt að hugsa sér. En ég var ekki í rónni. Ég heyrði stöðugt sírenuvæl í fjarska, sem þýddi aðeins eitt fyrir mig - það var neyðarástand. Ég hóaði fjölskyldunni saman í skyndi og sagði að nú hlyti eitthvað hræðilegt að vera að gerast og við þyrftum að leita skjóls. Maðurinn minn horfði gapandi á mig og benti mér á leiktækið sem gaf frá sér sírenuhljóðið. Ég greip andann á lofti! Var eiginlega meira til í heimsendi en að komast að því að það væri eitthvað mikið að mér. En ég náði áttum og gerði mér grein fyrir að þetta ástand mitt væri hvorki mér né fólkinu mínu bjóðandi.
„Ég starfaði sem lífsleiknikennari við Háskóla Íslands á þessum tíma, sem er spaugilegt í sjálfu sér, en líka dæmigert. Ég var ekki lífsleikin fyrir fimm aura.“
Ég starfaði sem lífsleiknikennari við Háskóla Íslands á þessum tíma, sem er spaugilegt í sjálfu sér, en líka dæmigert. Ég var ekki lífsleikin fyrir fimm aura. Ég fór að lesa mér til og leita mér hjálpar. Ég stúderaði jákvæða sálfræði, ég fór til sálfræðings, ég fór í jóga, ég fór í heilun, ég lærði hugræna atferlismeðferð og svo datt ég niður á lausnina fyrir mig - mindfulness var málið! Í fyrsta mindfulness tímanum sem ég fór í, þar sem ég sat með lokuð augun, gat ég fylgst með hugsunum mínum í fyrsta skipti án þess að vera á valdi þeirra. Ég lærði að hugur minn var fullur af óraunhæfum hugsunum og eins og ótaminn api út um allar trissur. Ég fann hvernig hugsanir höfðu áhrif á líðan mína. Ég fann hvar spenna var í líkamanum og hvernig óttahnúturinn gufaði upp þegar ég leyfði mér að finna hann. Ég heillaðist af þessari tækni og nýtt tímabil í lífi mínu tók við. Ég lærði að kyrra hugann og vera í tengslum við sjálfa mig. Ég hef verið að kynnast sjálfri mér mér æ síðan, með kostum og göllum. Já fullt af brestum og misgjörðum sem gott hefði verið að kannast ekki við. En það veitti mér mikið frelsi að þurfa ekki að fela neitt fyrir sjálfri mér eða öðrum lengur. Það vóg þó þyngst að mér fór að líða betur, ég hætti næstum alveg að vera hrædd og áhyggjur urðu óþarfar. Ég hætti að reyna að vera fullkomin og fór að kunna betur við sjálfa mig og aðra. Ég fann fyrir jákvæðum tilfinningum í auknum mæli og fékk æ oftar að upplifa núvitund, flæði, ánægju, sátt, samhyggð og kærleika.
Ég er samt hálffeimin við að tala um sjálfa mig sem hamingjusama manneskju. Hugurinn á það enn til að hlaupa með mig í gönur, og ég upplifi að sjálfsögðu allskonar sárar tilfinningar eins og ótta, reiði, gremju og sorg, sem ég hef lært að bjóða velkomnar og átta mig á. Núna veit ég reyndar hvað ég þarf að gera til að mér líði vel. Ég get alltaf gefið huganum frí með því að draga athyglina að andardrættinum og tengja við sjálfan mig. Þannig næ ég hugarró og fæ að upplifa það sem er að gerast á meðan það er að gerast í vinsemd og sátt. Hamingjan er því aldrei langt undan og miklu nær því að vera „default“ ástand hjá mér en áhyggjur og kvíði.
Hamingjuráð:
1. Staldraðu við sjálfan þig á líðandi stund með því að draga athyglina að andardrættinum og upplifðu það sem er að gerast á meðan það er að gerast.
2. Þú getur losnað við streitu, áhyggjur, ótta og kvíða ef þú áttar þig á þeim hugsunum sem búa að baki. Þú þarft ekki að vera á valdi þeirra frekar en þú vilt.
3. Mindfulness er áhrifarík leið til að ná hugarró, vellíðan, sjálfsvinsemd og sátt.
4. Mindfulness ástundun styrkir hamingjusvæðin í heilanum og gefur færi á fleiri jákvæðum tilfinningum, eins og þakklæti, ánægju, samhyggð og kærleika.
5. Mindfulness bíður hamingjunni heim.
Athugasemdir