Bjarni Benediktsson laug um ástæður þess að skýrslan um skattaskjólin var ekki lögð fram strax í haust.
Hann laug um það hvenær skýrslan barst ráðuneyti hans, hann laug um einhverja „endanlega gerð“ hennar sem hefði ekki verið tilbúin fyrr en eftir að þing var farið heim, og þegar upp um hann komst, þá reyndi hann að ljúga því að þetta hefði bara verið „ónákvæm tímalína“ hjá sér.
En skýringar hans er auðvitað ekki hægt að bjóða fullorðnu fólki.
Enda laug hann bara - punktur.
Því er staðan þessi:
Við Íslendingar erum að fá forsætisráðherra sem sér sóma sinn í að leyna mjög mikilsverðri skýrslu fyrir almenningi rétt fyrir kosningar. Það var hans ákvörðun og aðeins hans.
Við erum að fá forsætisráðherra sem lýgur blákalt og meðvitað um hvernær hann fékk skýrsluna og kallar það í hroka sínum „þvætting, fyrirslátt og pólitík“ þegar menn vilja ræða málið frekar.
Við erum að fá forsætisráðherra sem heldur áfram að ljúga þegar upp um hann kemst og býður upp á afsakanir sem þættu klénar hjá leikskólakrakka.
Og við erum fá forsætisráðherra sem getur ekki viðurkennt að hafa sagt vísvitandi ósatt, en heldur áfram að dreifa lygunum þvers og kruss.
Og við erum að fá forsætisráðherra sem heimtar af samstarfsmönnum að þeir taki undir lygi hans eða „leyfi honum að njóta vafans“ - vafans sem þó er enginn.
En svo er spurningin þessi:
Erum við líka að fá forsætisráðherra sem fer til Bessastaða og býður nýjum forseta Íslands upp á sömu leikskólalygina?
Á Guðni Th. Jóhannesson að þurfa að þola - rétt eins og þjóðin öll - að fyrir framan hann standi nýr æðsti valdsherra og ljúgi?
- - -
Athugasemd.
Einhverjir töldu að með lokaorðum mínum hér væri ég á einhvern hátt að mælast til þess að forsetinn „gerði eitthvað“ í málinu. Það var alls ekki meiningin að gefa eitthvað þvíumlíkt í skyn eða ætlast til þess á nokkurn hátt. Ekkert slíkt er í verkahring forseta. Mér finnst bara leiðinlegt fyrir hönd heiðarlegs forseta að þurfa að ræsa slíkan forsætisráðherra sem hér um ræðir.
Athugasemdir