Fréttablaðið segir okkur að fylgishrun Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í skoðanakönnunum sé nú orðið svo svakalegt að hvorugur flokkurinn myndi ná manni á þing ef kosið væri núna.
Tveim mánuðum eftir kosningar! Og í blússandi svonefndu „góðæri“.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst hins vegar heldur.
Venjulega þegar flokkar fá kjaftshögg í skoðanakönnunum, þá reyna forystumenn þeirra að bera í bætifláka fyrir sig með einhverju tilbrigði við þetta hér:
„Ja, við höfum nú verið að fást við svo mörg og erfið mál að það er kannski varla von að kjósendur sýni okkur þá sanngirni sem við eigum þó svo margfaldlega skilið.“
Þessi skýring á sjaldan við, og altént alls ekki núna. Hvorki Viðreisn né Björt framtíð eru að fást við einhver voðalega erfið mál.
(Óttarr Proppé mun þó kynnast því hvað er að fást við erfið mál ef hann opnar frekar á einkarekstur í heilbrigðismálum.)
Nei, þetta er ekki skýringin á fylgishruni Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.
Skýringin er miklu einfaldari.
Kjósendur Viðreisnar bundu vonir við að komið væri fram á sjónarsviðið borgaralegt, víðsýnt afl sem myndi berjast fyrir sínum málum upp á eigin býti.
Í staðinn reyndust þeir hafa kosið flokk sem gat ekki beðið eftir að verða hækja Sjálfstæðisflokksins.
Allar hrakspár um Viðreisn hafa reynst réttar.
Já, það er því miður rétt.
En engar vonir ræst.
Hið eina sem Viðreisn fékk skráð í stjórnarsáttmálann var ákvæði um jafnlaunavottun.
En því hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins síðan hlegið að opinberlega og dettur ekki í hug að styðja það.
Og kjósendur Bjartrar framtíðar, hvað skal segja um þá?
Voru þeir að kjósa samfélag þar sem forsætisráðherra - sem situr í þeirra skjóli - fagnar ógurlega þegar hrægammasjóður, margdæmdur fyrir mútugreiðslur í Afríku, eignast stóran hlut í banka sem stór hluti íslensks almennings á Íslandi á allt sitt undir?
Onei, ekki held ég það.
Þess vegna hafa kjósendur yfirgefið flokkinn í skoðanakönnunum að undanförnu.
Þeir kjósendur Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sem eru ánægðir með framgang mála, þeir eru bara komnir aftur á höfuðbólið og taka þátt í veislunni með Bjarna Benediktssyni og hrægömmunum.
Forráðamenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar munu nú koma fram í skoðanakönnunum og segja að þeir búist fastlega við því að kjósendur snúi við blaðinu.
En það mun ekkert gerast.
Það eru þeir sjálfir sem þurfa að snúa við blaðinu.
Athugasemdir