Nýtt efni
Bætt þjónusta rædd „mörg hundruð sinnum“
Það er ólíklegt að vagnar Strætó bs. muni fyllast af flugfarþegum um páskana þrátt fyrir að öll langtímastæði Isavia við Leifsstöð séu full. Leið 55, sem ekur út á völl, fer nefnilega of seint af stað til að ná morgunflugi.
Einn af frumkristnu söfnuðunum: Ofsótt fyrir að vera kynóðir nautnabelgir
Kirkjufeður á borð við Klemens og Íreneus börðust af krafti gegn fylgisfólki Carpocratesar frá Alexandríu sem bæði var talið kommúnistar og kynsvallarar.
Að éta fíl - Í Malaví verður lítið mikið
Malaví er ein þjóða sem skora lægst á lista Sameinuðu Þjóðanna yfir velmegun þjóða. Stór hluti af framlögum Íslands til þróunarsamvinnu ratar þangað, ríflega 1.600 milljónir króna í ár. Blaðamaður Heimildarinnar hélt utan til að kynna sér aðstæður og örlög heimamanna.
Rúmlega helmingur landsmanna á móti því að ríkisbankinn kaupi tryggingafélag
Miklu fleiri landsmenn eru óánægðir með kaup Landsbankans á TM en ánægðir. Fátt bendir þó til annars en að kaupin verði kláruð í nánustu framtíð.
Ekki rétt að vísa eigi stuðningsfólki Hamas úr landi
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í aðsendri grein í Morgunblaðinu um miðjan mars að vegna nýrrar reglugerðar ætti að vísa öllum þeim sem hefðu lýst yfir stuðningi við Hamas úr landi. Hið sanna er að reglugerðin bannar 6 nafngreindum einstaklingum að koma hingað til lands, segir Útlendingastofnun.
Dagur Hjartarson
Björgunarvesti
Dagur Hjartarson vill seinka því eins og hann getur að börnin hans læri trúarjátningu vestræns samfélags: Að allt sé ógn við líf þitt.
Listamannalaun sköpuðu þrjú og hálft ársverk
„Alvöru listir eru samfélaginu jafnmikilvægar og taugakerfið er mannslíkamanum,“ segir Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands.
Þeir sem svindla á ökuprófi fá ekki að taka það aftur í allt að sex mánuði
Innviðaráðherra telur svindl í ökuprófi vera „alvarlegt vandamál hér á landi“ og hefur lagt fram frumvarp um viðurlög við slíku svindli. Samkvæmt gildandi lögum hefur svindl engin önnur áhrif en að viðkomandi er vísað úr prófinu. Hann getur svo tekið það aftur viku síðar.
Getur tekið ár að fá upplýsingar um kynferðisbrotamenn frá Snapchat
Jóhannes Kr. Kristjánsson hefur unnið hlaðvarpsseríu fyrir Heimildina sem heitir „Á vettvangi“. Fyrsti þáttur fer í loftið 22. apríl næstkomandi. Í þáttunum fylgir Jóhannes kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir í um tveggja mánaða skeið.
Varðberg fær fjórar milljónir frá utanríkisráðuneytinu
Félag um vestræna samvinnu og alþjóðamál hefur gert styrktarsamning við ríkið svo það geti haldið ráðstefnu, kynningar og fræðslu vegna afmælis stofnsáttmála NATO.
3 Body Problem á Netflix og vandi Fermis: Hvar eru allar geimverurnar?
Vinsæl Netflix sería eftir sögu kínverska rithöfundarins Liu Cixin tekst á við spurningu sem kennd er við ítalska eðlisfræðinginn Enrico Fermi: Ef alheimurinn er iðandi af lífi, hvar eru allir?
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
Baldur Þórhallsson bældi niður eigin kynhneigð frá barnsaldri og fannst hann ekki geta verið hann sjálfur. Fyrir 28 árum tók hann ákvörðun um að koma út úr skápnum, það var ekki annað í boði ef hann ætlaði að halda áfram með lífið. Nú stefna þeir Felix Bergsson á Bessastaði. „Við eigum 28 ára ástríkt samband að baki og höfum ekkert að fela,“ segir Felix.
Markaðsvirði Alvotech lækkað um næstum 100 milljarða króna á rúmri viku
Alvotech tilkynnti nýverið um 76 milljarða króna tap á síðasta ári. Samhliða sagðist félagið ætla að margfalda veltu sína í ár. Markaðurinn hefur ekki tekið vel í þessar upplýsingar og virði Alvotech fallið skarpt síðustu daga.
Fyrsti svarti leiðtogi ríkisstjórnar Evrópulands
Vaughan Gething hefur brotið blað í sögunni með því að vera fyrsti svarti maðurinn sem leiðir ríkisstjórn í Evrópulandi. Fjölskyldusaga hans er um margt óvenjuleg og rætur hans og taugar liggja jafnt til Wales og Sambíu.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
Auglýsing sem birtist á fasteignavefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjögurra herbergja íbúð í Reykjavík auglýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mánuði. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, segir stöðuna vera grafalvarlega. Hann segir mörg heimili á leigumarkaði búi í dag við grimmilega og kerfisbundna fjárkúgun.
Athugasemdir