Í sextíu ár hef ég spurt mig hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór
Sæmundur Andrésson er svokallaður þúsundþjalasmiður enda veit hann ekki enn eftir sextíu ára lífsgöngu hvað hann ætlar að verða þegar hann verður stór. Hann spurði sig að þessu sem barn og fann aldrei svar og hefur því bæði gert við hitt og þetta, smíðað leikmyndir, lært að verða bakari, unnið sem skósmiður og sem leikari, nú síðast í uppsetningu á eigin verki, Heilablóðfall, um reynslu hans og eiginkonu hans að takast á við það þegar hún fékk heilablóðfall.