Prentútgáfa Stundarinnar kemur næst út þann 20. desember.
Nóg að lesa fyrir börn og ungmenni
Mikil gróska er í útgáfu barna- og ungmennabóka um þessar mundir, hvort sem er eftir íslenska eða erlenda höfunda. Í Bókatíðindum, sem Félag íslenskra bókaútgefenda gefur út, kemur fram að rétt tæplega helmingur barnabóka sem koma út nú fyrir jólin eru eftir íslenska höfunda. Eftirfarandi listi, sem tekið skal fram að er langt frá því að vera tæmandi, sýnir nokkur þeirra verka sem gefnar hafa verið út eftir íslenska höfunda sem skrifa fyrir börn eða ungmenni í ár.
Nornasaga – Hrekkjavakan eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur
Aðalsöguhetja bókarinnar, Katla, opnar óvart galdragátt á hrekkjavökunni og inn um hana smýgur Gullveig, ævaforn norn í hefndarhug. Til að bjarga heiminum, og lífi besta vinar síns, þarf hún að hafa hraðar hendur því tíminn er naumur! Kristín Ragna Gunnarsdóttir er höfundur bæði mynda og texta. Hún hefur myndskreytt fjölda bóka í gegnum tíðina og oft hlotið viðurkenningar fyrir bækur sínar, meðal annars Íslensku myndskreytingaverðlaunin í tvígang.
Rauði hatturinn og Krummi eftir Ásgerði Búadóttur
Listasafn Íslands gefur nú út bókina Rauða hattinn og Krumma í annað sinn, í minningu Ásgerðar Búadóttur, sem bæði skrifaði og myndskreytti bókina, en hún var fyrst gefin út af Helgafelli árið 1961. Klippimyndirnar í bókinni eru einfaldar að formi, lifandi og fallegar. Textinn er prentaður á fimm tungumálum, íslensku, ensku, þýsku, dönsku og frönsku. Hvert tungumál hefur sinn lit af þeim fimm litum sem myndirnar eru í og tekst ...
Skráðu þig inn til að lesa
Þú færð 4 greinar fríar í mánuði. Þú hefur síðan val um að styrkja óháða blaðamennsku með áskrift á hagstæðu verði, frá aðeins 1.690 krónum á mánuði. Leiðbeiningar má nálgast á stundin.is/leidbeiningar.
Athugasemdir