Átján blaðamenn á vefnum mbl.is lýsa verkfallsbrotum yfirstjórnar og starfsmanna prentútgáfu Morgunblaðsins í yfirlýsingu sem send var út nú síðdegis.
Verkfall Blaðamannafélags Íslands hjá miðlum fjölmiðlafyrirtækja innan vébanda Samtaka atvinnulífsins stóð yfir á vefmiðlum frá klukkan 10 til 14 í dag. Verkfallið náði til mbl.is, Vísis.is, Fréttablaðsins.is og að hluta ruv.is.
Að sögn blaðamanna mbl.is tóku hins vegar ritstjóri og framkvæmdastjóri Morgunblaðsins ákvörðun um að brjóta verkfallið með hjálp starfsmanna af prentútgáfu og verktaka.
„Um leið og blaðamenn á mbl.is lögðu niður störf í morgun tóku nokkrir blaðamenn á Morgunblaðinu, sem að öllu jöfnu skrifa ekki fréttir á mbl.is, til við að skrifa fréttir á mbl.is. Að auki voru fyrrverandi sumarstarfsmaður og lausapenni á Morgunblaðinu kallaðir til til þess að skrifa fréttir á mbl.is á meðan þeir blaðamenn miðilsins, sem voru á vakt á þessum tiltekna tíma, lögðu niður störf í samræmi við löglega boðaðar aðgerðir sem stóðu til klukkan 14,“ segir í yfirlýsingunni.
„Við undirrituð blaðamenn og fréttastjórar á frétta- og íþróttadeild mbl.is lýsum yfir vonbrigðum með þetta framferði“
„Þessi umræddu fréttaskrif voru með vitund og vilja ritstjóra og framkvæmdastjóra Morgunblaðsins. Við undirrituð blaðamenn og fréttastjórar á frétta- og íþróttadeild mbl.is lýsum yfir vonbrigðum með þetta framferði og þau viðhorf til löglega boðaðra aðgerða sem þarna birtast. Við teljum að þetta framferði sé til þess fallið að varpa rýrð á mbl.is, ekki síst þá blaðamenn sem þar starfa og leitast eftir fremsta megni við að sinna starfi sínu af heilindum og fagmennsku. Að okkar mati er þetta síst til þess fallið að finna vænlega lausn á kjaradeilunni sem nú stendur yfir. Með því að senda þessa yfirlýsingu viljum við að það komi skýrt fram að þær fréttir og umfjallanir, sem skrifaðar voru og birtar á mbl.is á meðan á löglega boðuðum aðgerðum félaga í Blaðamannafélagi Íslans stóð, eru ekki á okkar ábyrgð.“
Undir yfirlýsinguna rita: Anna Sigríður Einarsdóttir, Anna Lilja Þórisdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Erla María Markúsdóttir, Freyr Bjarnason, Guðmundur Hilmarsson, Guðrún Hálfdánardóttir, Hallur Már Hallsson, Ívar Benediktsson, Jóhann Ólafsson, Jón Pétur Jónsson, Kristján Jónsson, Sindri Sverrisson, Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Víðir Sigurðsson, Þorgerður Anna Gunnarsdóttir, Þorsteinn Ásgrímsson Melén og Þórunn Kristjánsdóttir.
Blaðamannafélag Íslands hefur enn ekki náð samningi við Samtök atvinnulífsins vegna kjara blaðamanna. Hins vegar hefur félagið samið við Útgáfufélagið Birtíng, Kjarnann og Útgáfufélagið Stundina.
Athugasemdir