Það gerist ekki oft núorðið að manni blöskri.
Ég er nú svo gamall sem á grönum má sjá ... og svo framvegis.
En það gerðist nú í morgun.
Þegar ég las frétt Fréttablaðsins um að ríkið hefði hafnað gersamlega og með þjósti öllum kröfum Guðjóns Skarphéðinssonar um bætur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Ég get svo svarið það að ég fór nærri því að grenja.
Ætla ríkið og réttarkerfið aldrei að sýna manndóm?
Aldrei að þvo af okkur þann viðbjóð sem Guðmundar- og Geirfinnsmál eru?
Það hefði svo sem mátt búast við að ríkið maldaði eitthvað í móinn gagnvart ýtrustu bótakröfum Guðjóns.
En að hafna þeim öllum afdráttarlaust!
Og á þeim forsendum að „Guðjón hafi sjálfur stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reisir bótakröfu sína á“.
Og það er vísað til dóms Hæstaréttar frá 1980 þar að lútandi!!!
Sá dómur hafi fullt sönnunargildi um málsatvik.
Ekkert bendi til þvingunar af hálfu lögreglu eða dómsmálayfirvalda.
Og svo framvegis.
Vitiði, ég get bara ekki farið í gegnum málflutning Andra Árnasonar ríkislögmanns í málinu, hann er svo sorglegur, svo forstokkaður, svo viðurstyggilegur.
Andri var skipaður ríkislögmaður sérstaklega til að svara bótakröfum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum.
Hann var handvalinn af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og það skal enginn segja mér að hann hafi ekki haft einhvers konar samráð við sinn yfirmann í svo veigamiklu máli.
Já, auðvitað hefur ríkisstjórn Katrínar gefið starfsmanni sínum fyrirmæli um hvernig ætti að bregðast við. Það kemur vart annað til mála.
Ríkisvaldið hafði áður ætlað að bjóða sakborningunum smánarbætur, einhverja málamyndaupphæð.
Hæstiréttur var þó búinn að sýkna Guðjón og aðra sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum - nema reyndar Erlu Bolladóttur.
Sakborningar áttu þá að fá þessar smánarbætur en þegar þeir vildu það ekki, þá kemur þetta.
Þeir eigi ekki að fá neitt, því þetta sé þeim að kenna!
Gott ef þeir eru ekki bara sekir, ha? spyr sérlegur ríkislögmaður ríkisstjórnarinnar í raun.
Það er svo ógeðslegt, svo ofboðslega ógeðslegt að fá þetta framan í sig eins og blauta tusku.
Að ríkisvaldið ætli enn - árið 2019 og það ríkisstjórn undir forystu til þess að gera ungs fólks sem ætti ekki að vera samdauna kerfinu frá því fyrir áratugum - þá ætlar ríkisvaldið enn að verja fram í rauðan dauðann það kerfi sem færði okkur hinn svarta blett Geirfinns- og Guðmundarmála.
Athugasemdir