„Að sýna samstöðu í verki er mikilvægt að mínu mati. Að fara í föt - regnkápu í þessu tilfelli - fara á staðinn og sýna þolendum í raunheimum að þeir standa ekki einir, að við tökum eftir því sem þeir ganga í gegnum og erum ekki sátt, sem samfélag,“ segir Brynhildur Björnsdóttir sem ásamt þeim Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur og Maríu Lilju Þrastardóttur stendur fyrir þöglum mótmælunum gegn niðurfellingu nauðgunarmála fyrir framan húsnæði héraðssaksóknara að Skúlagötu 17 í dag. Safnast verður saman klukkan 17.00 en mótmælin hefjast klukkan 17.15.
Í upplýsingatextanum sem fylgir viðburðinum á Facebook segir að á árunum 2002 til 2015 hafi 65% nauðgunarmála á Íslandi verið felld niður af hálfu saksóknara og hafi því aldrei farið fyrir dóm. Þá séu ótalin þau mál sem eru lögð …
Athugasemdir