Lungu jarðar brenna. Neyðarástand ríkir í Amazon-regnskóginum sem brennur nú á methraða. Aldrei hafa eins margir skógareldar logað í regnskóginum. Í Sao Paulo varð dagur að nóttu þegar reykurinn lá yfir borginni, reykurinn er víst svo mikill að hann sést utan úr geimnum. Vísindamenn vara við því að skógareldarnir kunni að valda reiðarslagi í baráttunni við hamfarahlýnun.
Mikill þurrkur er á svæðinu og þegar þurrkar eru geta skógareldar blossað upp. Sumir telja þó að upptök eldsins megi rekja til þess þegar rýma þurfti land fyrir búfénaði, svo kveikt var í skóginum með þeim afleiðingum að eldurinn breiddi úr sér á ógnarhraða. Losun kolefnis frá búfénaði og landið sem er notað undir það er einn helsti skaðvaldur í baráttu mannsins við hamfarahlýnun.
Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur víða verið gagnrýndur vegna aðgerðarleysis.
Hin sögufræga Notre Dame-kirkja brennur! Hjarta Parísar verður báli að bráð. Brýr Signu fyllast af grátandi Parísarbúum sem syngja kirkjuna sína í svefn. Fólk grætur kirkjuna um heim allan.
Rétt áður en slökkviliðsmenn Parísarborgar náðu að slökkva síðustu logana steig annars konar bjargvættur fram á sjónarsviðið. Annar ríkasti maður Frakklands, François-Henri Pinault, lét af hendi hundrað milljón evrur til að endurreisa kirkjuna í sinni upprunalegu fögru mynd. Nokkrum klukkutímum síðar bauðst annar úr hópi auðugustu manna Frakklands, Bernard Arnault, til að gefa málstaðnum tvö hundruð milljón evrur. Nokkrum dögum síðar ákvað ríkisstjórn Frakklands að leggja fram 850 milljón evrur í nafni frúarkirkjunnar Notre Dame.
Ef slegið er inn í leitarvél Google, „Notre Dame brennur“ koma upp 3.360.000 leitarniðurstöður. Sé hinsvegar slegið inn „Skógareldar í Amazon“ koma 27.300 leitarniðurstöður upp á leitarvélinni.
Hjartað lifir, en lungun deyja.
Athugasemdir