„March of folly“ eða „fíflagangur“ heitir bók frá 1984 eftir bandaríska sagnfræðinginn Barböru Tuchman þar sem hún fjallaði um ýmis undarleg dæmi þess að ríki leiðist af eintómum fíflaskap út í fen sem verða þeim sjálfum að falli, eða skaða þau að minnsta kosti verulega. Eitt augljóst dæmi um þau, sem Tuchman notaði þó ekki, var sú ákvörðun Þjóðverja um aldamótin 1900 að hefja herskipakapphlaup við Breta. Það var algjörlega tilgangslaust því Þjóðverjar máttu vita að með því að hefja smíði stórra orrustuskipa sem gætu jafnast á við hin bresku, þá myndi Bretum hlaupa svo kapp í kinn að þeir hæfu smíðar af enn meiri krafti en áður. Enda fór svo og af stokkum breskra skipasmíðastöðva hlupu nú æ stærri og öflugri orrustuskip, kennd við fyrsta nútímalega orrustuskipið, hið breska Dreadnought.
Ekki var nóg með að Þjóðverjar gætu aldrei unnið Breta í þessu kapphlaupi heldur hafði þetta þær afleiðingar að …
Athugasemdir