„Sá banki sem ekki nýtur trausts, hann er búinn að vera. Peningahagfræði er ekkert ósvipuð guðfræði. Hún byggir á trú eða trausti.“ Þetta sagði Ásgeir Jónsson, nýr seðlabankastjóri Íslands, í Kastljóssviðtali í kvöld, aðspurður hvort hann „treysti“ íslensku bönkunum.
Ásgeir telur að störf sín fyrir greiningardeild Kaupþings í kringum hrun hafi verið góður undirbúningur fyrir starfið sem hann er nú að taka við. Sagðist hann í Kastljóssviðtalinu ekki hafa gert sér grein fyrir því á hve veikum grunni bankarnir stóðu þegar hann sagði, sem forstöðumaður greiningardeildarinnar í maí 2008 að þeir væru „burðugar stofnanir“.
Már Guðmundsson lauk tíu ára starfstímabili sínu sem seðlabankastjóri Íslands í dag og tók á móti arftaka sínum. „Blessaður seðlabankastjóri og velkominn,“ sagði hann við Ásgeir. Göntuðust þeir með að nú þyrfti nýr seðlabankastjóri að ná að lyfta gullforða ríkisins, ellegar hverfa frá. „Þetta er eiginlega eina starfið sem hefði geta dregið mig út úr háskólanum,“ sagði Ásgeir við fréttamenn.
Athugasemdir