Vinir og frændur Kristins Sigurjónssonar, fyrrverandi lektors við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, hafa efnt til fjársöfnunar vegna málaferla Kristins gegn háskólanum.
Kristni var sagt upp eftir að DV greindi frá ummælum sem hann hafði látið falla um konur á lokuðum Facebook-hóp. Orðrétt skrifaði Kristinn: Það á að aðgreina vinnustaði karla og kvenna. Vandinn er bara að konur reyna alltaf að troða sér þar sem karlmenn vinna, og um leið og þær eru komnar inn, þá byrja þær að eyðileggja hann, því allir kalmennirnir eiga þá að fara að tala, hugsa og hegða sér eins og kerlingar, allt annað er áreiti og ef sagður en neðanbeltisbrandari, svo ég nefni ekki klámbrandari, þá er það kynferðisofbeldi.
Kristinn hefur krafið Háskólann í Reykjavík um tæplega 57 milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar og 5 milljónir í miskabætur.
„Hér er atvinnulaus einstaklingur að berjast fyrir rétti sínum gegn ofurefli, sem fær um 3 miljarða af skattgreiðslum ríkisins,“ skrifar Úlfar Nathanaelsson, vinur Kristins, á Facebook. Fram kemur að nú standi frændur Kristins fyrir fjársöfnun til að styðja hann í því að sækja rétt sinn. Í ljósi þess að Kristinn hefur barist gegn umgengnistálmunum hefur verið ákveðið að ef mismunur verði á fjárstuðningi til Kristins og nettó útgjalda muni afgangurinn renna til Félags um foreldrajafnrétti.
Athugasemdir