Ungt fólk sem hefur brennandi áhuga á kirkjunni og kristinni trú heyrir til undantekninga. Flestir meðlimir Þjóðkirkjunnar eru af eldri kynslóðinni og frá 1998 hefur félagsmönnum fækkað um rúmlega fjórðung. Hneykslismál hafa skekið kirkjuna og traust til hennar er í sögulegu lágmarki, um 30 prósent. En um leið bendir sitthvað til þess að kirkjan sé að breytast og ný kynslóð að taka við. Ágætt dæmi um þetta er hinn 32 ára gamli Hjalti Jón Sverrison.
Hann er af aldamótakynslóðinni, fastur á leigumarkaði og skuldar sinn skerf af námslánum. Hjalti notar samfélagsmiðla, sendir vinum sínum hnyttin gif í sms-um og kynnist stelpum í gegnum stefnumótaappið Tinder. Hjalti ber það ekki sérstaklega utan á sér að vera klerkur, þjónn guðs á jörðu. En hann starfar sem prestur í Laugarneskirkju.
Sagt hefur verið um aldamótakynslóðina að hún eigi erfitt með að skuldbinda sig, efist meira, sé löt og sjálfselsk. Hjalti Jón hefur hins …
Athugasemdir