Mest lesið

„Mynd af mér á bikiníi skaðar engan“

Forsætisráðherra ræddi ekki mál Moshenskys

Skýrslan um Laugaland frestast enn

Hæstréttur Bandaríkjanna með fleiri réttindi í skotsigtinu

Til stendur að vísa þriggja manna afganskri fjölskyldu úr landi í næstu viku. Hin 14 ára gamla Zainab segist eiga bjarta framtíð á Íslandi og vill verða læknir eða kennari. Hins vegar býst hún við að verða fyrir ofbeldi verði hún flutt burt.
„Ég vil ekki fara aftur til Grikklands vegna þess að það er ekki öruggt,“ segir hin fjórtán ára gamla Zainab, nemandi í Hagaskóla í Reykjavík, sem til stendur að senda úr landi.
Útlendingastofnun hefur ákveðið að vísa þriggja manna afganskri fjölskyldu, einstæðri móður ásamt dóttur hennar og syni, úr landi og til Grikklands í næstu viku. Skólafélagar dótturinnar, Zainab Safari, hafa barist af hörku fyrir því að hún og fjölskylda hennar fái að dvelja áfram hér á landi með hjálp kennara í Hagaskóla og annarra fullorðinna. Þau hafa hvergi lagt árar í bát þó að síðustu tíðindi gefi ekki tilefni til bjartsýni. Zainab segist óttast að á hana verði ráðist og hún jafnvel drepin, enda hafi hún orðið vitni að slíku ofbeldi þegar hún dvaldi þar sem flóttamaður áður en hún kom hingað. Allt viðtalið við Zainab má lesa í nýjasta tölublaði Stundarinnar, sem kemur út 5. júlí.
Eftir að Zainab sagði vinkonu sinni um ákvörðunina um brottflutning úr landi, spurði vinkonan hvernig ráðamenn gætu sofið á nóttunni.
Stundin hefur rakið mál Safari-fjölskyldunnar, móðurinnar Shahnaz og barnanna Zainab og Amirs undanfarna mánuði. Íslensk stjórnvöld hafa í tvígang hafnað því að taka mál fjölskyldunnar til efnislegrar meðferðar sökum þess að fjölskyldan hafi þegar fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi en þangað flúði fjölskyldan frá Írak í byrjun árs 2016. Alþjóðastofnanir og hjálparsamtök hafa lýst ömurlegum aðstæðum í yfirfullum flóttamannabúðum í Grikklandi, skorti á heilbrigðisþjónustu, takmörkunum á menntun barna og almennt alvarlegum vanköntum á þjónustu við flóttafólk, enda Grikkland í efnahagslegri lægð á sama tíma og holskefla flóttafólks frá Mið-Austurlöndum og Afríku hefur skollið yfir landið.
Athugasemdir