Rómaveldi var sannkallað feðraveldi. Konur höfðu vissulega margvísleg réttindi en áttu þó alltaf á endanum undir karlmenn að sækja. Og í allri sögu borgarinnar og heimsveldisins eru þess varla dæmi að konur hafi opinskátt barist um völd, hvað þá stýrt herjum. Eitt af þessum örfáu dæmum er Fúlvía nokkur sem er þó furðu lítið þekkt í Rómarsögu.
Karlarnir sem skrifuðu söguna voru ekki að halda henni neitt óþarflega mikið á lofti, nema þegar þurfti að láta einhverja dóma falla um konur sem frekjur og skapfrenjur. Þá var kjörið að nota hana. Sannleikurinn er þó sá að það munaði ekki nema því sem munaði að Fúlvía gæti mögulega orðið hæstráðandi í Róm, fyrst og ein kvenna.
Hún hefði glöð orðið fyrsti keisari Rómar.
Innan marka feðraveldisins
En jafnvel hún varð samt að fara sínu fram innan marka feðraveldisins, það er að segja sem eiginkona karla sinna þótt hún væri meiri bógur …
Athugasemdir