Í gær féllu enn á ný dómar í Hlíðamálinu svokallaða. Margt má segja um dóminn og mæli ég með lesningu á honum. Niðurstöðu verður að öllum líkindum áfrýjað. Hér má lesa annan dóminn.
Í dag, þann 19. júní, finnst mér við hæfi að rifja upp ástæður sem og viðhalda þeirri umræðu sem skapaðist fyrir fjórum árum og varð kveikir að samstöðufundi fyrir þolendur á þeim tíma og þeirri reiði sem varð í samfélaginu:
Á árunum 2011-2016 bárust lögreglu 825 tilkynningar um nauðganir og er það stærsti málaflokkurinn undir skilgreiningunni kynferðisbrot.
Á árunum 2011-2016 var fjöldi nýrra mála sem komu inn á borð Stígamóta 1.967. Árið 2017 voru ný mál 484 og 2018 voru þau 418.
Meðalmásferðartími hjá lögreglu vegna nauðgana eru 171 dagur frá fyrstu skráningu.
Meðalmálsferðartími hjá lögreglu frá því nauðgunarkæra kemur inn þar til ákveðið er að hætta rannsókn eru 123 dagar.
Talið er að þau mál sem koma inn á borð Stígamóta og lögreglu sé ekki nema brotabrot þeirra kynferðisafbrota sem eiga sér stað.
Gerð var rannsókn á málaflokknum og tekin þar fyrir árin 2008-2009. Þar komu 164 mál til lögreglu.
Heildarsakfellingarhlutfall var 19,3% af þeim 119 málum þar sem rannsókn lögreglu var ekki hætt af formlegum ástæðum.
Ákæruhlutfall í nauðgunarmálum er lágt. Af þeim nauðgunarmálum sem tilkynnt voru til lögreglu á árunum 2008 og 2009 og vísað til ríkissaksóknara var ákæra gefin út í einungis 35% þeirra.
Árin 2014-2015 bárust 368 mál til ríkissaksóknara er vörðuðu kynferðisbrot. Ákæra var gefin út í 134 málum eða 36% tilvika. 131 mál var fellt niður og fallið frá saksókn í 3 málum, hætt við rannsókn í 1 máli.
Þessar tölur sýna og sanna að enn er mikil þörf fyrir umræðu um þessi mál, viðhorfsbreytingu innan kerfisins, betri lagaramma og að mínu mati er skilningi á málaflokknum ábótavant.
Það er grafalvarlegt að ekki séu fleiri mál kærð til lögreglu en raun ber vitni en ég myndi telja að það sé vegna þess að kerfið hefur brugðist brotaþolum trekk í trekk í þessum málaflokki.
Við hljótum að geta gert betur árið 2019!
Konur, áfram veginn!
Athugasemdir