Þrír létust og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu landhelgisgæslunnar á sjúkrahús eftir að einkaflugvél skall til jarðar við Múlakot í Fljótshlíð um 20:30 síðastliðið sunnudagskvöld. Tilkynning barst um flugslys við flugvöll laust upp úr 20:30 umrætt kvöld og viðbragðsteymi Rauða kross Íslands kallað út til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning. Eldur varð laus í flugvélinni og fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutningamanna fóru á staðinn. Rannsókn á tildrögum slyssins er nú í gangi hjá lögreglu.
Þau sem létust voru hjónin Ægir Ib Wessman, fyrrum yfirflugstjóri hjá WOW air, fæddur árið 1963 og Ellen Dahl Wessman sjúkraþjálfari, fædd árið 1964. Sömuleiðis lést sonur þeirra Jón Emil Wessmann fæddur árið 1998 og því aðeins tuttugu og eins árs gamall. Öll voru þau úrskurðuð látin á vettvangi.
Annar sonur hjónanna og tengdadóttir liggja nú þungt haldin á Landspítalanum en líðan þeirra er sögð stöðug samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.
Athugasemdir