Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Þrjár kynslóðir gerðu upp Land Rover bíla

Jens Fylk­is­son lag­færði gaml­an Land Rover með að­stoð föð­ur síns og son­ar, þrátt fyr­ir litla reynslu af slík­um við­gerð­um. Áhug­inn á Land Rover hef­ur smit­ast til son­ar hans sem hef­ur nú lært bif­véla­virkj­un.

Þrjár kynslóðir gerðu upp Land Rover bíla
Með dálæti á Land Rover Jens Fylkisson verkfræðingur hefur lengi haft dálæti á Land Rover-bílunum. Hann gerði upp tvo slíka í samstarfi við Fylki Þórisson, föður sinn, og Hauk Jensson, son sinn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bresku Land Rover bifreiðarnar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi. Jens Fylkisson verkfræðingur hefur mikið dálæti á bílunum og gerði upp tvo slíka í samstarfi við Fylki Þórisson, föður sinn, og Hauk Jensson, son sinn.

„Útlitið er alveg einstakt,“ segir Jens. „Þú þekkir hann frá öðrum bílum. Erlendis er hann kallaður hinn eini sanni safari bíll. Í dag eru bílar meira og meira að líkjast hver öðrum og eru eins í laginu. En þetta gamla lag á Land Rover sem hefur haldist nokkurn veginn eins frá 1950 til aldamóta gerir þessa bíla sérstaka.“

Jens eignaðist Land Rover bifreið sína fyrir tæpum áratug, en Haukur, sonur hans, keypti sér sjálfur bíl nokkrum árum síðar, áður en hann hafði aldur til að taka bílpróf. Sá var Series 3 útgáfa frá árinu 1975, sem Jens segir þó ekki gamlan miðað við Land Rover. „Elstu bílarnir úr fyrstu seríu eru frá 1948, en þeir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár