Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Sjófuglum mun fækka við Ísland

Hlýn­un jarð­ar hef­ur áhrif á fugla­stofna við land­ið.

Sjófuglum mun fækka við Ísland

Sjófuglar eru þeir fuglar sem mun fækka mest til ársins 2050 samkvæmt Erpi Snæ Hansen, doktor í líffræði. Ísland og hafsvæðið umhverfis landið eru mikilvæg útbreiðslusvæði nokkurra stærstu sjófuglastofna í Norðaustur-Atlantshafi.

Ástæða þess að þessum tegundum fer fækkandi tengist fæðuskilyrðum í sjó. „Ef hlýnunin heldur áfram hefur það áhrif á fæðuna. Það er lykilatriði í spám með sjófugla. Þeir eru allir að éta sömu fæðuna, loðnu og sandsíli. Sílið hefur brugðist sérstaklega illa við þessum hitabreytingum. Aukin úrkoma og skýjafar mun einnig hafa áhrif á fæðuskilyrði, mun vinna til viðbótar við hitastigið,“ segir Erpur.

Þeir sjófuglar sem eru í bráðustu hættu þegar litið er til loftslagsmála eru lundi, stuttnefja, skúmur, fýll, langvía, kría, sjósvala og toppskarfur.

Samkvæmt Erpi er lundinn í mestri hættu en við framreiknun á framtíðarspá á stofni lundans er einungis tímaspursmál hvenær hann hverfur alveg. Spár gera ráð fyrir því að stofninum fækki um 90 prósent til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Ríkið setur meira fjármagn í stækkun flugvallar heldur en í aðgerðir gegn loftslagsvandanum
FréttirHamfarahlýnun

Rík­ið set­ur meira fjár­magn í stækk­un flug­vall­ar held­ur en í að­gerð­ir gegn lofts­lags­vand­an­um

Rík­is­fyr­ir­tæk­ið Isa­via mun lík­lega trappa nið­ur upp­bygg­ingaráform á Kefla­vík­ur­flug­velli í ljósi sam­drátt­ar í ferða­þjón­ustu. Engu að síð­ur er út­lit fyr­ir að miklu meira fé verði var­ið til stækk­un­ar flug­vall­ar­ins, til að standa und­ir auk­inni flug­um­ferð til og frá Ís­landi, held­ur en í lofts­lags­áætl­un stjórn­valda og fram­kvæmd henn­ar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár