Í dag fer fram atkvæðagreiðsla á Alþingi um hið umdeilda frumvarp til nýrra laga um þungunarrof. Helstu breytingarnar sem frumvarpið hefur í för með sér frá núgildandi lögum er að ákvörðunarréttur um þungunarrof er færður í hendur hinnar þunguðu manneskju. Þá er tímaramminn rýmkaður fram að lokum 22. viku þungunar (þ.e. tuttugu og einni viku og sex dögum) frá lokum 16. viku (þ.e. fimmtán vikum og sex dögum). Inga Sæland hefur sagt frumvarpið lítilsvirðingu við lífið, að fóstur sé lítil manneskja sem eigi rétt á lífi. Hún er ekki ein um það, enda hafa margir líst yfir óhugnaði á að þungun sé rofin við lok 22. viku.
Þessi skoðun kjarnar ágreining um þungunarrof — að fósturlíf sé líf sem vernda beri líkt og líf fæddrar manneskju. Virðing fyrir lífinu er hornsteinn alls þess mikilvæga starfs sem unnið er á Alþingi í þágu mannréttinda og líf fósturs verður að njóta réttarverndar. …
Athugasemdir