Í gærmorgun fór ég að spjalla við ungan mann í heita pottinum í Laugardalslauginni. Hann var hress og kátur, greinilega uppfullur af mjög jákvæðri orku og sagði mér að hann væri í hópi uppistandara sem kæmi víða fram, bæði hérlendis og í útlöndum. Þau öll í hópnum ættu það sameiginlegt að hafa verið greind með ýmsar raskanir og/eða syndróm eða sjúkdóma. Sjálfur væri hann einhverfur og einnig bípólar. Hann var nú ekki beint að fela það þarna í heita pottinum, enda sagði hann mér að það væri einmitt útgangspunktur hópsins að fjalla mjög opinskátt um sínar eigin raskanir sem mætti og ætti að tala um sem eðlilega hluti og þar á meðal gera grín að. Þau legðu sérstaklega mikið upp úr því að tala við ungt fólk og skólakrakka sem mörg ættu sjálf við ýmsar óleystar raskanir og syndróm að stríða.
„Ef það má tala um það, þá má leysa …
Athugasemdir