Næstkomandi fimmtudagskvöld mun hópurinn „My Voices Have Tourettes“ standa fyrir góðgerðaruppistandi á skemmtistaðnum The Secret Cellar í Lækjargötu. Viðburðurinn hefst klukann fimm síðdegis og stendur fram yfir miðnætti, en markmiðið er vitundarvakningn um geðheilbrigði.
Hópinn skipar fólk sem glímir við tauga- og geðraskanir, þau Elva Dögg Hafberg, Dan Zerin og Hanna Proppé Bailey. Elva og Dan eru með Tourettes en Hanna er með geðklofa. Í hópinn bættust síðan Þórhallur Þórhallsson sem er haldinn ofsa-kvíðaröskun, Stefnir Benediktsson sem stríðir við geðhvörf og svo Carmela Torrini og Steindór Haraldsson sem bæði eru einhverf.
Megininntak uppistandanna er hversdagslíf meðlima hópsins og hvernig sé að lifa með raskanirnar, eða eins og Elva Dögg orðar það: „allt þetta fyndna og asnalega sem maður lendir í þegar maður þarf að lifa með einhverju sem fellur ekki inn í normið“.
Tilgangur sýningarinnar, segir Elva, er að útvíkka merkingu þess hvað telst vera eðlilegt og venjulegt. „Við eigum öll heima í sama menginu, við erum öll normal.“
„Við eigum öll heima í sama menginu,
við erum öll normal“
Hópurinn var stofnaður árið 2018 fyrir Reykjavík Fringe hátíðina en hátíðin var haldin í fyrsta skipti hér á landi í fyrra. Þar er lagt mikið upp úr því að gefa jaðarhópum pláss á sviði og því fannst hópnum tilvalið að hefja grínferilinn þar.
Uppistand hópsins sló í gegn á hátíðinni og í kjölfarið var þeim boðið að flytja uppistand öll fimmtudagskvöld á The Secret Cellar, fyrsta og eina grínklúbbi Íslands. Hópurinn fyllir salinn kvöld eftir kvöld.
Á viðburðinum næstkomandi fimmtudag verður efnt til fjáröflunar fyrir þrjú félög; Tourette-samtök Íslands, Geðhjálp og Einhverfusamtökin. Til sölu verða bolir og veggspjöld hönnuð af vinum hópsins, þeim Hauki Tý Þorsteinssyni og Herthu Maríu Úlfsdóttur.
Auk uppistandsins mun hópurinn opna fyrir spurningar úr sal og gefa áhorfendum kost á að fræðast um raskanirnar. Elva segir hópinn vilja koma málefnum hópsins á dagskrá í samfélaginu. „Það eru allir að díla við eitthvað eða þekkja einhvern sem eru að díla við eitthvað,“ sgeir hún. „Þetta verður fyrsta góðgerðarkvöld hópsins en hópurinn stefnir á að halda fleiri af slíku tagi í framtíðinni.“
Athugasemdir