Nítján konur eru stofnfélagar nýs félags sem ætlað er að berjast gegn hvers kyns ofbeldi. Raunar eru konurnar sem standa að félaginu mun fleiri en það, eða á fjórða tug, en margar þeirra treysta sér ekki til þess að leggja nafn sitt við félagið formlega, af ótta við „refsingu kerfisins“.
Félaginu, Íslandsdeildinni gegn ofbeldi, er meðal annars ætla að berjast gegn kerfisofbeldi, hjálpa konum við að takast við afleiðingar ofbeldis og vinna að forvörnum gegn ofbeldi. Þegar fram líða stundir er jafnframt ætlunin að veita konum lögfræði- og sálfræðiaðstoð.
Þær Sigrún Sif Jóelsdóttir og Þórey Guðmundsdóttir eru meðal þeirra kvenna sem standa að stofnun félagsins. Þær segja ofbeldi kerfisins gegn konum sem reyna að standa gegn ofbeldi staðreynd. „Með kerfisofbeldi er átt við að ofbeldi er látið viðgangast, ýmist með aðstoð kerfisins eða með því að kerfið láti það óáreitt,“ útskýrir Þórey. „Þetta er miklu algengara en fólk áttar sig …
Athugasemdir