Árás lögreglunnar á fund hælisleitenda og flóttamanna á Austurvelli í gær var sjokkerandi, fyrirlitleg og hættuleg.
Sjokkerandi vegna þess að í þeim mótmælum sem hófust í hruninu 2008 og stóðu í mörg ár eftir, þá sýndi lögreglan nær undantekningarlaust hófsemi og aðgæslu í aðgerðum sínum. Fundarmenn á Austurvelli gáfu ekki nokkurt einasta tilefni til þess að þeir yrðu beittir ofbeldi. Því kom árásin á þá svo á óvart.
Þeir lögreglumenn sem tóku þátt í þessu eiga að skammast sín, hver og einn. Þeir eiga að drúpa höfði og spyrja sjálfa sig: Af hverju var ég með í þessu?
En hvað hefur breyst síðan á hinum fyrri dögum?
Jú, ekki síst að Sigríður Andersen er nú orðin dómsmálaráðherra og æðsti yfirmaður lögreglunnar. Og situr í sérstakri náð Vinstri grænna.
Fyrirlitleg var árás lögreglunnar vegna þess að undirtónn hennar var rasískur. Við vitum öll að ef hópur hvítra „venjulegra“ Íslendinga hefði komið saman á Austurvelli, þá hefði lögreglan aldrei ráðist að þeim hópi - ekki einu sinni þótt menn hefðu gert sig líklega til að tjalda.
Íslenska lögreglan gerði sig lengi vel ekki bera að rasisma.
Hvað hefur breyst?
Að Sigríður Andersen er orðin dómsmálaráðherra?
Hættuleg er árásin vegna þess að þarna var ráðist með offorsi að þeim samfélagshópi sem stendur hvað höllustum fæti. Að lögreglumenn skuli telja sig hafa leyfi til að ráðast gegn þeim með þeim hætti sem gert var, gefur mjög hættulegt fordæmi.
Ef þessari árás verður ekki mótmælt verða næstu „aðgerðir“ bara verri.
Það verður að skýra hvað þarna gerðist.
Tóku lögreglumenn á vettvangi sjálfir ákvörðun um árásina?
Ef svo er, þá verður að setja ærlega ofan í við þá menn. Og biðja fundarmenn á Austurvelli afsökunar fyrir þeirra hönd.
Rasískir ofbeldismenn eiga ekki heima í svo viðkvæmu starfi í almannaþágu.
Eða var árásin gerð í samráði við lögreglustjórann á höfðborgarsvæðinu, Sigríði Björk Guðjónsdóttur?
Ef svo er, þá verður hún að skýra hvað þarna lá að baki - og hvort þetta sé í samræmi við nýja stefnu lögreglunnar.
Og var árásin gerð í samráði við dómsmálaráðherrann Sigríði Andersen, sérlegan skjólstæðing forsætisráðherra?
Þá þurfum við að fá að vita það.
Umframt allt: Það sem þarna gerðist má ekki gerast aftur og það má ekki líta á það sem „eðlilegan“ hlut í löggæslu.
En ég spyr að lokum, eins og ýmsir hafa gert: Hvað var það aftur sem Vinstri græn þóttust hafa upp úr krafsinu með því að valda Sigríði Andersen svo tryggilega í embætti dómsmálaráðherra?
Athugasemdir