Námskeið Öldu Karenar Hjaltalín sem fram fór í Laugardalshöllinni á dögunum var tæplega „masterclass“ í því að takast á við lífið og eigin takmarkanir, eins og titill þess lofaði. Þetta segir Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir og lektor við MPM-nám Háskólans í Reykjavík, sem sat námskeiðið. „Þetta var skemmtilegt, svo langt sem það nær, en þetta var ekki alveg nóg,“ segir hann.
Óhætt er að segja að Alda Karen hafi verið mikið á milli tannanna á fólki að undanförnu. Færri komust að en vildu á viðburðinn sem var auglýstur undir titlinum Life: Masterclass — Into Your Brain og slagorðinu: Þú ert nóg. Alda Karen fyllti salinn og fór létt með það, sem vakti eðlilega athygli fjölmiðla. Ummæli hennar í Íslandi í dag á Stöð 2, þar sem hún sagði frá því að hún kyssi peninga til að laða þá til sín og ræddi möntruna Þú ert nóg sem lausn gegn sjálfsvígum …
Athugasemdir