Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Ólga innan háskólans vegna tanngreininga: Rektor tjáir sig ekki um gagnrýni

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Há­skóla Ís­lands, vill ekki tjá sig um gagn­rýni starfs­manna og doktorsnema sem leggj­ast ein­róma gegn því að fram­kvæmd­ar séu tann­grein­ing­ar á ung­um hæl­is­leit­end­um inn­an veggja skól­ans. Hann seg­ir mál­ið í far­vegi og að far­ið verði yf­ir þau sjón­ar­mið sem fram koma.

Ólga innan háskólans vegna tanngreininga: Rektor tjáir sig ekki um gagnrýni

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, tjáir sig ekki um þá hörðu gagnrýni sem komið hefur fram frá doktorsnemum og starfsmönnum við skólann, vegna  tanngreininga sem unnar eru innan veggja skólans fyrir Útlendingastofnun.

49 starfsmenn og doktorsnemar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands gáfu í síðustu viku út yfirlýsingu þar sem tanngreiningunum var harðlega mótmælt og stjórnendur skólans hvattir til að láta af samningsgerð við Útlendingastofnun um slíka starfsemi innan veggja skólans. Í gær, mánudag, sendu svo 62 starfsmenn og doktorsnemar af Hugvísindasviði frá sér sambærilega yfirlýsingu. Landssambands Íslenskra Stúdenta og Stúdentaráð Háskóla Íslands höfðu áður gagnrýnt tanngreiningarnar.

Blaðamaður Stundarinnar sendi skriflega fyrirspurn og spurði rektor út í afstöðu hans til þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið og hvort til greina kæmi að láta af gerð samnings við Útlendingstofnun um áframhaldandi tanngreiningar á aldri hælisleitenda, í ljósi þessarar gagnrýni. Í svari rektors kemur fram að málið sé til skoðunar á vettvangi Heilbrigðisvísindasviðs og að farið verði yfir þau sjónarmið sem fram koma. „Málefni þetta er í ákveðnum farvegi innan háskólans og er til skoðunar á vettvangi Heilbrigðisvísindasviðs. Farið er yfir sjónarmið sem fram koma. Að svo stöddu er ekki meira um málið að segja,“ segir rektor í svari sínu. 

Stundin greindi frá því þann 26. september síðastliðinn að Útlendingastofnun og háskólinn ynnu að gerð þjónustusamnings um aldursgreiningar á tönnum hælisleitenda. Stúdentaráð Háskóla Íslands ályktaði gegn samningsgerðinni og taldi hana siðferðilega óverjandi. Þann 7. nóvember lýstu svo Landssamtök íslenskra stúdenta yfir stuðningi allra stúdenta á Íslandi og íslenskra stúdenta erlendis við afstöðu Stúdentaráðs.

Starfsmenn og doktorsnemar af Menntavísindasviði háskólans tóku undir þessa gagnrýni Stúdentaráðs í yfirlýsingu sem þau sendu frá sér þann 27. nóvember síðastliðinn. „Undirritaðir starfsmenn og doktorsnemar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands taka undir yfirlýsingu Landssambands íslenskra Stúdenta og Stúdentaráðs Háskóla Íslands þar sem tekin er afstaða gegn tanngreiningum á hælisleitendum sem nú fara fram innan Háskóla Íslands. Þá er Háskóli Íslands eindregið hvattur til að láta af gerð samnings um áframhaldandi tanngreiningar á aldri hælisleitenda,“ sagði í yfirlýsingu þeirra. 

Starfsmenn og doktorsnemar á Hugvísindasviði tóku undir þessa gagnrýni í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í gær, mánudaginn 3. desember. „Viljum við sem fagfólk í hugvísindum, líkt og starfsfólk Menntavísindasviðs og samtök stúdenta gera, vekja sérstaka athygli háskólayfirvalda á samfélagslegu hlutverki menntastofnana sem og mikilvægi þess að akademískar stofnanir framkvæmi ekki aðgerðir lögvalds á borð við Útlendingastofnunar,“ sagði í yfirlýsingu þeirra. „Við tökum einnig undir með starfsfólki Menntavísindasviðs að Háskóla Íslands sem samfélagslegri menntastofnun beri að vernda og styðja ungmenni sem hingað koma í leit að öruggara lífi.“

Fjölmargir fastráðnir prófessorar við skólann skrifa undir áskoranir sinna sviða, þar á meðal Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor í stjórnun menntastofnanna, Ársæll Arnarson, prófessor í tómstunda- og félagsmálafræði, Torfi H. Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum, Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu, Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki og Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki. 

Blaðamaður Stundarinnar sendi Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands eftirfarandi spurningar: 

1. Starfsfólk Menntavísindasviðs og Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, sem og samtök stúdenta, hafa vakið sérstaka athygli háskólayfirvalda á samfélagslegu hlutverki menntastofnana sem og mikilvægi þess að akademískar stofnanir framkvæmi ekki aðgerðir lögvalds á borð við Útlendingastofnunar. Hver eru viðbrögð rektors við þessum orðum stúdenta og starfsmanna skólans? 

2. Þá hefur starfsfólk Menntavísindasviðs og Hugvísindasvið bent á að Háskóla Íslands beri skylda til þess, sem samfélagslegri menntastofnun, að vernda og styðja ungmenni sem hingað koma í leit að öruggara lífi. Tekur rektor undir þessi orð starfsmanna og nemenda eða mótmælir hann þeim? 

3. Aldursgreiningar sem byggja á líkamsrannsóknum á borð við röntgenmyndatökur af tönnum eru afar umdeildar enda eru tannlæknar ósammála um áreiðanleika og vísindalegt gildi slíkra rannsókna. Tannlæknasamtök Bretlands hafa sagt þær „óviðeigandi og ósiðlegar“ þar sem þær geti aldrei gefið nákvæmar upplýsingar um aldur, auk þess sem Rauði kross Íslands og alþjóðlegar stofnanir og mannréttindasamtök á borð við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðið, ECRE (e. European Council of Refugees and Exiles) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), hafa gagnrýnt þær harðlega. Telur rektor koma til greina, í ljósi gagnrýni mannréttindasamtaka, sem og þeirrar óánægju sem starfsmenn, doktorsnemar og samtök stúdenta við Háskóla Íslands hafa lýst yfir, að látið verði af gerð samnings við Útlendingstofnun um áframhaldandi tanngreiningar á aldri hælisleitenda? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Flúði vændi en verður send út í annað sinn: „Ég vil að hún viti að ég reyndi allt“
FréttirFlóttamenn

Flúði vændi en verð­ur send út í ann­að sinn: „Ég vil að hún viti að ég reyndi allt“

Níg­er­ísk­ar kon­ur sem hing­að leita eft­ir dvöl á Ítal­íu hafa í mörg­um til­vik­um ver­ið neydd­ar út í vændi þar og vilja ekki snúa aft­ur, því þær vita hvað bíð­ur þeirra. Ein kvenn­anna kom aft­ur til Ís­lands ör­fá­um dög­um eft­ir að hún fékk end­ur­komu­bann til þriggja ára, því hún sá enga aðra leið út.
Segir taugaveiklun hafa gripið um sig í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar ummæla Kristrúnar
StjórnmálFlóttamenn

Seg­ir tauga­veiklun hafa grip­ið um sig í Sjálf­stæð­is­flokkn­um í kjöl­far um­mæla Kristrún­ar

Jó­hann Páll Jó­hanns­son, þing­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði að tauga­veiklun hafi grip­ið um sig í Sjálf­stæð­is­flokkn­um eft­ir að Kristrún Frosta­dótt­ir steig inn í um­ræð­una um út­lend­inga­mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi í kjöl­far­ið ákveð­ið að kenna Sam­fylk­ing­unni um allt sem hef­ur mis­far­ist í mál­efn­um út­lend­inga. Þing­menn Við­reisn­ar og Pírata hörm­uðu í ræð­um sín­um þær breyt­ing­ar sem hafa átt sér stað á við­horfi til flótta­fólks.

Mest lesið

Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
1
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
2
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.
,,Aðgerðin hafði aldrei verið framkvæmd“
3
ÚttektStríðið um líkamann

,,Að­gerð­in hafði aldrei ver­ið fram­kvæmd“

Kona sem taldi sig hafa geng­ist und­ir skurð­að­gerð vegna offitu á sjúkra­húsi er­lend­is fékk síð­ar stað­fest af lækni hér­lend­is að að­gerð­in hefði ekki ver­ið fram­kvæmd. Lækn­ir kon­unn­ar seg­ir að maga­spegl­un hafi strax sýnt það. Lög­fræð­ing­ar sjúkra­húss­ins ytra segja þetta af og frá og hót­uðu kon­unni lög­sókn ef hún op­in­ber­aði nafn lækn­is­ins eða sjúkra­húss­ins.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
4
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Á vettvangi með kynferðisbrotadeildinni: Leigubílstjórinn handtekinn
9
VettvangurÁ vettvangi

Á vett­vangi með kyn­ferð­is­brota­deild­inni: Leigu­bíl­stjór­inn hand­tek­inn

„Halló. Þú þarft að koma með okk­ur,“ seg­ir lög­regl­an við mann sem verð­ur færð­ur á lög­reglu­stöð vegna gruns um kyn­ferð­is­brot. Áð­ur hafði leigu­bíl­stjóri ver­ið hand­tek­inn vegna sama máls. Báð­ir menn­irn­ir eru komn­ir í far­bann. Á vett­vangi er ný hlað­varps­sería þar sem Jó­hann­es Kr. Kristjáns­son fylg­ist með störf­um kyn­ferð­is­brota­deild­ar lög­regl­unn­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hér er fyrsti þátt­ur.
Varð vitni að handtöku í leigubílstjóramálinu
10
FréttirÁ vettvangi

Varð vitni að hand­töku í leigu­bíl­stjóra­mál­inu

Í fe­brú­ar var leigu­bíl­stjóri hand­tek­inn, en hann var grun­að­ur um al­var­legt kyn­ferð­is­brot gegn konu sem hafði ver­ið far­þegi í bíl hans. Blaða­mað­ur­inn Jó­hann­es Kr. Kristjáns­son fékk að fylgja lög­reglu eft­ir við rann­sókn máls­ins. En hann varð með­al ann­ars vitni að hand­töku ann­ars sak­born­ings­ins og fékk að sjá meint­an vett­vang glæps­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
2
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
4
FréttirLaxeldi

Rík­is­stjórn­in vill gefa kvót­ann í lax­eld­inu um ald­ur og ævi

Í frum­varpi mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi er kveð­ið á um að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in í land­inu hafi „ótíma­bund­in“ rekstr­ar­leyfi til að stunda sjókvía­eldi í ís­lensk­um fjörð­um. Hing­að til hafa rekstr­ar­leyf­in ver­ið tíma­bund­in í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórn­völd á Ís­landi ekki geta bann­að sjókvía­eldi án þess að baka sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

Á Ís­landi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyr­ir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Ný­lega var gef­in út hand­bók með út­skýr­ing­um á regl­un­um með raun­hæf­um dæm­um. Raun­veru­leik­inn sýn­ir hins veg­ar að ráð­herr­ar láta þetta ekki hafa áhrif á hegð­un sína. Regl­urn­ar gilda bara þeg­ar það reyn­ir ekki á þær.
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
7
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Ör­yrkj­ar borga fyr­ir kjara­samn­inga og tug­ir millj­arða sett­ir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóð­ur verð­ur rek­inn í halla í næst­um ára­tug sam­fleytt áð­ur en við­snún­ing­ur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna út­gjöld vegna Grinda­vík­ur og kjara­samn­inga á með­al ann­ars að fresta greiðsl­um til ör­orku­líf­eyri­s­kerf­is­ins, selja eign­ir fyr­ir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmd­um sem áð­ur hef­ur ver­ið frest­að er frest­að á ný en pen­ing­ar sett­ir í nýja þjóð­ar­höll og tug­ir millj­arða króna verða til­tæk­ir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrð­in á rík­is­sjóði verð­ur þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.
Sigríður Hrund greiddi fyrir viðtal á NBC – Verðið trúnaðarmál
9
FréttirForsetakosningar 2024

Sig­ríð­ur Hrund greiddi fyr­ir við­tal á NBC – Verð­ið trún­að­ar­mál

Sig­ríð­ur Hrund Pét­urs­dótt­ur for­setafram­bjóð­andi greiddi ásamt nokkr­um öðr­um kon­um fyr­ir birt­ingu við­tals við hana hjá banda­ríska fjöl­miðl­in­um NBC en verð­ið er trún­að­ar­mál. Hún seg­ist hafa vilj­að grípa tæki­fær­ið til þess að benda á það hve op­ið fram­boðs­ferl­ið er á Ís­landi og til þess að sýna að venju­leg kona gæti boð­ið sig fram til for­seta.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
10
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
4
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár